Sorpa á svig við útboðsreglur

Titr­ingur vegna gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar

Kæru­nefnd útboðs­mála hefur skikkað Sorpu bs. til að bjóða út inn­kaup vegna kaupa á tækni­lausn og tækni­legri ráð­gjöf við upp­bygg­ingu fyr­ir­hug­aðrar gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar í Álfsnesi. 

Þetta kemur fram í úrskurði sem kveð­inn var upp á föstu­dag­inn og Stundin hefur undir höndum. Íslenska Gáma­fé­lagið ehf. og Metanorka ehf. kærðu fyr­ir­hug­aða samn­ings­gerð Sorpu við danska fyr­ir­tækið Aikan þann 9. októ­ber síð­ast­lið­inn og kröfð­ust þess að fram færi útboð í sam­ræmi við lög um opin­ber inn­kaup. 

Kæru­nefndin úrskurð­aði kærendum í hag og telur að Sorpa hefði átt að „fylgja þeim ferlum laga um opin­ber inn­kaup sem ætlað er að tryggja jafn­ræði og gagn­sæi og þar með virka sam­keppni í opin­berum inn­kaupum í stað þess að láta fara fram ófull­burða útboð á vegum ráð­gjáfa­fyr­ir­tækis sem aug­ljós­lega gat ekki upp­fyllt kröfur laga”. Er hér vísað til verk­efnis sem verk­fræði­stofan Mannvit tók að sér fyrir Sorpu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár