„Einstök upplifun“

Isabel Alej­andra Díaz verk­efna­stjóri sum­ar­nám­skeiðs­ins Tungu­mála­töfrar á Ísafirði segir það ein­staka upp­lifun að vinna með þeim fjöl­breytta hóp tví­tyngdra barna sem sækja nám­skeiðið. Því mun ljúka með svo­kall­aðri Töfra­göngu um helg­ina.

Isabel Alejandra Díaz, verkefnastjóri Tungumálatöfra.
Isabel Alej­andra Díaz, verk­efna­stjóri Tungu­mála­töfra. Mynd: Aðsend mynd

Töfra­ganga á Ísafirði er nýr árlegur við­burður sem hefst með skrúð­göngu frá Edin­borg­ar­hús­inu og endar á fjöl­skyldu­skemmtun í Suð­ur­tanga. Við­burð­ur­inn er opinn öllum og er fólk hvatt til að koma í bún­ingum, með flögg eða aðrar skreyt­ingar sem lífga upp á göng­una. Lúðrar og trommur leiða göng­una niður í Suð­ur­tanga.

[links]Til­gang­ur­inn er að fagna fjöl­breyti­leik­anum á Ísafirði. Dag­skráin í Suð­ur­tanga hefst strax að lok­inni göngu með söng barna sem tóku þátt í sum­ar­nám­skeið­inu Tungu­mála­töfrum í þess­ari viku. Þau fleyta síðan tré­bátum á Pollinum. Að því loknu bjóða Vest­firð­ingar margra landa í Ísa­fjarð­arbæ upp á mat­ar­s­mökkun þar sem fram­reiddir eru réttir frá mörgum ólíkum löndum. Að lokum verður farið í leiki eins og snú snú, fuglafit og henna­málun auk þess sem sögu­st­und og and­lits­máln­ing verður í boði.

Feimin fyrsta daginn

Töfra­gangan sprettur upp úr Tungu­mála­töfrum sem er árlegt sum­ar­nám­skeið fyrir fjöl­tyngd börn. Nám­skeiðið er ætlað fjöl­tyngdum börnum og er mark­mið þess að búa til málörvandi umhverfi í gegnum list­kennslu. Það er hugsað fyrir íslensk börn sem hafa fæðst erlendis eða flutt til ann­arra landa og börn af erlendum upp­runa sem hafa sest að hér á landi.

Isabel Alej­andra Díaz verk­efna­stjóri segir í sam­tali við Kjarnann að nám­skeiðið hafi gengið mjög vel í ár. „Eins og í fyrra upp­lifðum við að börnin voru feimin fyrsta dag­inn, sér­stak­lega vegna þess að þau eru tví­tyngd. Þau reyna að tala og finna orðin en þegar líður á nám­skeiðið fer þetta allt að koma vegna þess að þau vinna svo vel saman,“ segir hún.

Hún bendir á að eftir nokkra daga eigi börnin mun auð­veld­ara með sam­skipti, þau séu opn­ari fyrir kennsl­unni og leikj­unum og skemmti sér vel.

[adspot]

Magnað að fylgjast með börnunum

Börnin fá tæki­færi til að sýna það sem þau hafa unnið að á nám­skeið­inu en lista­verk þeirra verða til sýnis á byggða­safn­inu og einnig munu þau fleyta litlum bátum um helg­ina sem þau hafa búið til sjálf.

Isabel segir að nám­skeið sem þessi krefj­ist mik­illar vinnu og að þau sem standa að því gætu ekki gert það upp á sitt eins­dæmi. „Margir hafa staðið við bakið á okkur, fyr­ir­tæki og bæj­ar­búar sjálfir,“ segir hún. Þá eru þrír til fjórir ung­lingar sem vinna sem sjálf­boða­liðar og segir hún gríð­ar­lega hjálp í þeim.

Börnin eru hvaðanæva að, til að mynda frá Póllandi, Banda­ríkj­unum, Englandi, Sýrlandi, Írak, Nígeríu, Danmörku og Sviss. Isabel segir þetta vera góða blöndu og að þau séu ein­stak­lega hjálp­leg við hvort annað. Hún segir algjör­lega magnað að fylgj­ast með þessum krökkum og ekki síst þegar þau syngja saman. Þau skilji hvernig það er að eiga erfitt með sam­skipti og tengja þau vel saman, meðal ann­ars vegna þess. Hún segir það vera ein­staka upp­lifun að vinna með þessum börnum.

Eigum að bera virðingu fyrir fjölbreytileikanum

Kjarninn fjall­aði um nám­skeiðið fyrr á árinu og sagði Anna Hildur Hildi­brands­dótt­ir, ein for­svars­manna þess, málörvun barna vera mjög mik­il­væga og hægt væri að nota marg­breyti­leika tungu­máls­ins til að skilja hvert ann­að. Ekki þyrfti ein­ungis eitt tungu­mál til þess.

„Við eigum líka að bera virð­ingu fyrir fjöl­breyti­leik­anum og hvetja fólk til að aðlag­ast. Við skulum gera það fal­lega og eiga í sam­ræð­u,“ sagði Anna Hild­ur. Hún telur mik­il­vægt að Íslend­ingar geri sér grein fyrir því að inn­flytj­endur komi með þekk­ingu inn í sam­fé­lagið og að þeir mót­ist enn fremur af við­horf­inu sem tekur við þeim. „Ef þessi börn fá örvandi umhverfi þegar þau koma hingað til lands þá eru þau betur í stakk búin fyrir líf­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár