Bensínverð á Íslandi aldrei verið hærra í krónum talið

Í apríl 2012 var sett met þegar við­mið­un­ar­verð á lítra af bens­íni á Íslandi fór í 268,1 krónur. Verðið hefur hækkað hratt á þessu ári sam­hliða því að efna­hags­kerfi heims­ins hafa tekið við sér eftir kór­ónu­veiruna.

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­verði hér­lendis er nú 268,9 krónur á lítra. Það hefur hækkað um 28 pró­sent frá miðjum des­em­ber 2020 og um heil 38,6 pró­sent frá því í maí í fyrra, þegar það var 194 krónur á lítra.

Alls renna 139,3 krónur af hverjum seldum lítra, 51,8 pró­sent, til íslenska rík­is­ins vegna virð­is­auka­skatts, almenns bens­ín­gjalds, sér­staks bens­íns­gjalds og kolefn­is­gjalds. Hlutur olíu­fé­laga í hverju seldum lítra er 43,9 krónur, en hann lækkar rúm­lega níu pró­sent í krónum talið frá því í októ­ver. Það sem eftir stendur er svo lík­legt inn­kaupa­verð sem í dag nemur 85,8 krónur á lítra, en það hækkar um næstum tíu pró­sent milli mán­aða.

Þetta má sjá í nýj­ustu Bens­ín­vakt Kjarnans sem unnin er í sam­vinnu við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Seið. Við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­i síð­unnar Bens­ín­verð.is, sem Seiður heldur úti, til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó ætið með lægstu verðum.

Verðið hefur aldrei áður verið hærra í krónum talið. Fyrra met var sett í apríl 2012 þegar það fór upp í 268,1 krónur á lítra. Þá hafði um nokk­urt skeið verið mik­ill órói í Mið­aust­ur­löndum í kjöl­far arab­íska vors­ins sem leitt hafði til hækk­ana á heims­mark­aðs­verði á olíu. Þegar við bætt­ust miklir kuldar í Evrópu þá rauk verðið á jarð­efna­elds­neyti fyrir bíla upp um allan heim, þar með talið hér­lendis.

Þá þóttu hækk­an­irnar svo miklar að þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins lagði fram frum­varp til laga um ráð­staf­anir til að lækka elds­neyt­is­verð. Þær ráð­staf­anir fólu í sér að lækka ýmis gjöld sem ríkið leggur á elds­neyti. Málið náði ekki fram að ganga.

Miklar hækkanir á heimsmarkaði

Ísland fram­leiðir vit­an­lega ekk­ert jarð­efna­elds­neyti heldur flytur það allt inn. Þótt fjöldi bíla sem ganga fyrir raf­magni hafi rúm­lega tífald­ast frá árs­lokum 2016 og til síð­ustu ára­móta – þegar bílar sem gengu fyrir raf­magni voru 14.680 – þá eru bíl­arnir sem nota jarð­efna­elds­neyti þó enn í miklum meiri­hluta. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru bensín og dísel­bíl­arnir um 320 þús­und í lok árs 2020.

Hækkandi heims­mark­aðs­verð á olíu hefur því bein áhrif á veskið hjá lands­mönnum þegar það kemur fram í smá­sölu­verð­inu hér­lendis og hækkar auk þess verð­bólgu, sem er nú 4,5 pró­sent. Há verð­bólga hefur leitt til þess að Seðla­banki Íslands hefur hækkað vexti um alls 0,75 pró­sentu­stig í 1,5 pró­sent á nokkrum mán­uðum. Næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur er á morgun, mið­viku­dag, og búast flestir grein­endur við að vextir verði hækk­aðir enn á ný. Það þýðir að láns­fjár­magn lands­manna verður dýr­ara.

Sveifl­urnar á heims­mark­aðs­verði hafa verið gríð­ar­legar. Verðið fór niður í 20 dali á tunnu í apríl í fyrra, fór yfir 86 dali á tunnu í síð­asta mán­uði og er nú um 83 dalir. Grein­ing­ar­að­ilar spá því að það fari yfir 90 dali fyrir árs­lok.

Ástæð­urnar fyrir hærra olíu­verði eru að mestu tvær. Í fyrsta lagi hefur eft­ir­spurn eftir olíu hefur stór­auk­ist eftir að hag­kerfi heims­ins fóru að taka aftur við sér eftir að hafa dor­mað í eitt og hálft ár vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Aðild­ar­ríki Samtaka olíu­fram­leið­enda (OPEC) hafa hins vegar átt í erf­ið­leikum með að auka fram­leiðslu sína vegna van­fjár­fest­inga og töfum á við­haldi vegna far­ald­urs­ins.

Í öðru lagi er mik­ill skortur á jarð­gasi og kolum, sem hafa valdið miklum hækk­unum á raf­orku, og ýtt fleirum í að nota olíu, sem hefur enn aukið á eft­ir­spurn­ina.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­legir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Líklegt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­aðar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um villur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarninn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið undanfarið ár