Tveir drengir þungt haldnir eftir slys: Vitni tjáir sig um málið

Ungum dreng er haldið sof­andi á spít­al­anum en óvíst er með ástand hans. Framundan er erfið bið. Hinn dreng­ur­inn er vak­andi og gengur vel eftir atvikum. Maðurinn sem kom að björgun þeirra fékk lækn­is­að­stoð í dag og mun fá áfalla­hjálp líkt og lög­regla og starfs­fólk spít­al­ans.

Tveir drengir þungt haldnir eftir slys: Vitni tjáir sig um málið
Reyk­dals­stífla Mynd: Aðsend

Tveir drengir á tólfta ári voru fluttir upp á Land­spít­ala í dag eftir að þeir höfðu farið í læk­inn sem liggur á milli Ljósatraðar og Lækjak­innar í Hafn­ar­firði, við Reyk­dals­stífl­una. Vísir sagði fyrstu frétt af mál­inu, en þar kom fram að ótt­ast væri um líf drengj­anna. Ástand þeirra er alvar­legt, en þeir eru komnir undir lækn­is­hendur.

Reykdalsstífla
Reyk­dals­stífla Hér má sjá loft­mynd af svæð­inu.

Fyrstu fréttir hermdu að þriðji dreng­ur­inn hafi komið þeim til bjargar og hafi honum verið kalt en ekki meint af. Í til­kynn­ingu frá lög­reglu segir hins vegar að um karl á þrí­tugs­aldri hafi verið að ræða. Slökkvi- og sjúkra­lið var kallað út upp úr klukkan hálf þrjú vegna slyss­ins. Að minnsta kosti sjö sjúkra­bílar voru sendir á vett­vang. „Aðstæður á slys­stað voru mjög erf­iðar og áttu lög­reglu­menn erfitt með að athafna sig. Björg­un­ar­að­gerðir gengu því erf­ið­lega, en lífg­un­ar­til­raunir með annan dreng­inn báru fljótt árangur en verr gekk með hinn og ekki er hægt að full­yrða frekar um afdrif hans,“ segir í til­kynn­ingu frá lög­reglu. 

Stíflan algjörlega óvarin

Rann­sókn­arteymi lög­regl­unnar var á staðnum fram eftir degi. Það var Margeir Sveins­son stöðv­ar­stjóri í Hafn­ar­firði einnig. „Það var til­kynnt að þessir drengir hefðu farið í læk­inn og að þriðji aðili hefði farið til hjálpar. Síðan komu lög­reglu­menn þeim til aðstoðar og björg­uðu þeim,“ segir Margeir.

Skóla­stjóri Lækj­ar­skóla, Haraldur Har­alds­son var einnig á vett­vangi, en sam­kvæmt Margeiri er hins vegar ekki um nem­endur skól­ans að ræða. Verið var að vinna í því að ná í for­eldra drengj­anna þegar Stundin náði tali af Margeiri. 

Reykdalsstífla
Reyk­dals­stífla Slysið varð á þessu svæði. Rann­sókn­ar­lög­reglan er nú á störfum á vett­vangi.

Öllu form­legu skóla­starfi lauk um tvö leitið í Öldutúns- og Lækja­skóla. Göngu­stígur liggur með stífl­unni og ekk­ert sem ver hana. Hægt er að ganga fram á ystu brún, en sam­kvæmt íbúum við göt­una er dýptin mikil þar sem hún er mest.  

Erfiðlega gekk að ná öðrum drengnum upp úr vatninu

Karl­maður sem býr rétt við vett­vangs slyss­ins varð vitni að björg­un­inni. Hann sagði að báðir drengirnir hafi verið þungt haldnir þegar þeir voru dregnir upp úr læknum. 

Samkvæmt honum er foss í stífl­unni við hlið­ina á laxa­stig­anum. Fossinn er vatns­mik­ill núna. 

„Í hylnum þar fyrir neðan var bolti. Ég ímynda mér að þeir hafi verið að sækja hann. Hvirfill mynd­ast þarna fyrir neðan og hann er svo öfl­ugur að ég held að full­orð­inn maður ætti ekki í vand­ræðum með að fest­ast í honum,“ segir mað­ur­inn. 

Samkvæmt Vísi var annar dreng­ur­inn fluttur með­vit­und­ar­laus á spít­ala. Hinn dreng­ur­inn komst til með­vit­undar á staðnum, eftir lífg­un­ar­til­raunir. Maðurinn sem Stundin ræddi við kom að þegar búið var að ná öðrum drengnum upp, en sá var aðfram­kom­inn eftir slysið. 

„Sá elsti var alveg búinn á því en var ennþá að reyna að bjarga hinum drengnum. Með miklum erf­ið­is­munum þá tókst okkur, og lög­regl­unni, að draga hann upp. Hann var á bólakafi þá í hylnum. Ég veit ekki hvort hann var fastur eða hvað en þeir voru í vand­ræðum að ná honum upp. Hann var lík­lega búinn að vera lengi undir. Vonandi hefur hann það af,“ segir mað­ur­inn. 

Ekki búsettir í Hafnarfirði

Sr. Jón Helgi Þór­ar­ins­son, sókn­ar­prestur í Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju, fékk þær upp­lýs­ingar frá lög­reglu að drengirnir væru ekki búsettir í Hafn­ar­firði. Hann muni því ekki sinna sál­gæslu fyrir aðstand­endur drengj­anna. DV greindi frá þessu.

Í sam­tali við Stundina seg­ist Jón Helgi ekki vita hvaðan drengirnir koma. Hann segir eðli­legt að börnum á svæð­inu sé brugðið þegar svona atvik verði og verið sé að skoða hvernig brugð­ist verði við í sam­starfi við skóla­yf­ir­völd í Hafn­ar­firði. 

Tilkynning frá lögreglu 16:45: Óvíst með afdrif drengsins

Um klukkan hálf­þrjú í dag barst Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynn­ing um tvo drengi sem sagðir voru hætt komnir við Reyk­dals­stíflu í Hafn­ar­firði. Þegar að var komið reynd­ust drengirnir vera fastir í fossi, sem kemur af stífl­unni, en á vett­vangi var enn fremur karl á þrí­tugs­aldri, sem reyndi að koma þeim til aðstoðar.

Aðstæður á slys­stað voru mjög erf­iðar og áttu lög­reglu­menn erfitt með að athafna sig. Björg­un­ar­að­gerðir gengu því erf­ið­lega, en lífg­un­ar­til­raunir með annan dreng­inn báru fljótt árangur en verr gekk með hinn og ekki er hægt að full­yrða frekar um afdrif hans.

Drengirnir, sem eru á grunn­skóla­aldri, voru fluttir á slysa­deild.

Starfs­menn Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar komu á vett­vang og munu þeir, ásamt lög­reglu, fara yfir aðstæður á og við slys­stað­inn til að tryggja að slys sem þetta geti ekki end­ur­tekið sig.  Vett­vangs­vinnu lög­reglu er ekki lokið.

Drengnum haldið sofandi 

„Annar dreng­ur­inn vak­andi og gengur vel eftir atvikum. Hinum er haldið sof­andi í önd­un­ar­vél en spít­al­inn getur ekki gefið frek­ari upp­lýs­ingar um ástand hans þar sem það liggur ekki fyrir,“ segir í upp­lýs­ingum frá Lands­spít­al­anum.

Báðir drengirnir voru end­ur­lífg­aðir en ljóst er að læknar munu þurfa tíma til að meta ástandið. Staðan er óljós sem stendur og framundan er erfið bið fyrir aðstand­endur. Ætt­ingjar eru hjá drengj­unum.

Þá hefur karl­mað­ur­inn sem kom að björgun drengj­anna fengið aðstoð á Land­spít­al­anum í dag og mun hann fá áfalla­hjálp, líkt allir sem komu að björg­un­inni, lög­reglan og starfs­fólk spít­al­ans.

Eru það vinnu­reglur hjá Land­spít­al­anum að ef um and­lát er að ræða eða end­ur­lífgun hjá barni þá er alltaf farið yfir stöð­una og veitt áfalla­hjálp eftir atvikum. 

Uppfært mið­viku­dag­inn 15. apríl. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum lög­regl­unnar í gær var talið um tvo drengi á tólfta ald­ursári væri að ræða. Hið rétta er að um tvo bræður var að ræða, annar er fæddur 2002 og hinn 2005. Yngri drengnum er haldið sof­andi á Land­spít­alnum, en sá eldri vakn­aði í gær. 

Drengirnir eru búsettir á Tálkna­firði, en ell­efu ára gömul systir þeirra var með þeim á vett­vangi.

Samkvæmt DV.is varð slysið með þeim hætti að börnin misstu bolta í læk­inn. Annar dreng­ur­inn fór á eftir bolt­anum og fest­ist í læknum. Bróðir hans reyndi að aðstoða hann og fest­ist líka í læknum. Systir þeirra gerði vart um slysið og leit­aði hjálpar. Veg­far­andi sem kom að náði öðrum drengnum upp úr læknum áður en lög­regla kom á vett­vang. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Slys við Reykdalsstíflu

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár