Mynd: Kristinn Magnússon

„Þetta fór eins og mikill meiri­hluti svona mála“

Hildur Björk Mar­grét­ar­dóttir er eitt af and­lit­unum á bak­við erf­iða töl­fræði í kyn­ferð­is­brota­málum. Hún seg­ist hafa verið mis­notuð í æsku af manni sem tengd­ist henni. Hún lýsir brotum manns­ins, afleið­ingum þeirra og hvernig hún náði að vinna sig út úr ofbeld­inu. Hildur seg­ist hafa náð mestum bata þegar hún fór að opna sig um málið. Hún kærði mann­inn til lög­reglu fyrir nærri tíu árum síðan en mál­inu var vísað frá þar sem um var ræða orð gegn orði. Meintir ger­endur eru aðeins dæmdir sekir í fimmta hverju til­kynntu kyn­ferð­is­broti gegn börnum.

Maður varð vitni að alls konar ofbeldi og varð fyrir því sjálfur,“ segir Hildur Björk Mar­grét­ar­dóttir. Hún er 26 ára gömul og flutti hún nýverið til Skand­in­avíu með eig­in­manni sínum og börnum. 

Að hennar sögn braut mað­ur­inn ítrekað á henni. Fyrst þegar hún var ein­ungis um fjög­urra ára gömul og sein­ast þegar hún var á ferm­ing­ar­aldri. Nafn manns­ins er ekki nefnt þar sem hann var ekki dæmdur sekur. Hildur þurfti lengi að bera harm sinn í hljóði en í dag seg­ist hún hafa náð mestum bata með því að tala opin­skátt um upp­lifun sína. Hún kærði málið aðeins 17 ára gömul til lög­reglu þar sem það var fellt niður vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum.

Hildur seg­ist oft fyll­ast reiði yfir því hvernig hann er upp­haf­inn af ákveðnum hópum. „Enginn sér þessa réttu mynd, eins og við þekkjum hann. Það fer ekk­ert meira í taug­arnar á mér en að heyra þetta. Þetta er mjög óþægi­leg til­finn­ing. Um dag­inn heyrði ég ein­hvern vera að tala um hann á jákvæðum nótum og mig lang­aði að stoppa hann og segja nei,“ segir Hildur.

Umræddur maður vildi ekki svara ásök­unum Hildar þegar Stundin leit­aði eftir við­brögðum hans. „Mér dettur ekki í hug að fara að ræða ein­hver svona mál í fjöl­miðlum. Alveg síst af öllu. Leyfum henni bara að tjá sig villt og galið, og halda því áfram sem hún hefur gert hingað til,“ segir mað­ur­inn.

Flúði til nágrannakonu

Hildur segir að fyrsta atvikið sem hún muni eftir hafi átt sér stað þegar hún var ein­ungis á fjórða ári. „Fyrsta brotið átti sér stað þegar mamma var að fara í botn­langa­að­gerð og þá átti hann að hugsa um mig á meðan. Þarna var 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár