Svona gerðist slysið í læknum í Hafnarfirði: Yngri drengurinn vaknaður

Lögregla og fjöl­skylda barn­anna þakka þeim sem komu til aðstoðar þarna á vett­vangi fyrir ótrú­lega yfir­vegun og þrek­virki, sem hinir sömu sýndu af sér við afar erf­iðar aðstæður.

Svona gerðist slysið í læknum í Hafnarfirði: Yngri drengurinn vaknaður

Dreng­ur­inn sem haldið var sof­andi á Land­spít­al­anum eftir slys í læknum í Hafn­ar­firði er nú vakn­aður, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá spít­al­anum. Dreng­ur­inn er níu ára gam­all. 

Slysið varð þann 14. apríl. Eldri bróðir drengs­ins fór út í læk­inn á eftir honum og reyndi að koma litla bróður sínum til bjargar. Hann lenti þá í sjálf­heldu líkt og bróðir sinn. End­ur­lífga þurfti báða dreng­ina, en sá eldri komst til með­vit­undar á vett­vangi. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá spít­al­anum er yngri bróð­ur­inn á hægum bata­vegi. Hann verður áfram á gjör­gæslu­deild við Hring­braut þar sem hann mun fá við­eig­andi stuðn­ing og með­ferð. Fjöl­skyldan dvelur þar hjá honum.

„Við erum öll þakk­lát­ari en orð fá lýst.“

Vildu ná boltanum 

Lög­reglan hefur lokið rann­sókn á slys­inu og sent frá sér atvika­lýs­ingu. Hún er svohljóð­andi: 

Skömmu fyrir slysið voru þarna á ferð þrjú systk­ini, tveir bræður og systir þeirra, þegar þau veittu athygli bolta, sem hafði verið í rennu fyrir affalli Reyk­dals­stíflu í nokkra daga. Stúlkan, sem er 11 ára, og drengirnir, sem eru 9 og 12 ára,  fóru að reyna ná bolt­anum úr renn­unni. Mjög mik­ill vatns­straumur var í stífl­unni vegna auk­ins vatns­magns í læknum. Eftir árang­urs­lausar til­raunir tók yngri dreng­ur­inn þá afdrifa­ríku ákvörðun að fara út í renn­una, en ljóst var að börnin gerðu sér enga grein fyrir hætt­unni sem þarna leynd­ist, ekki frekar en þeir björg­un­ar­að­ilar sem komu síðar á vett­vang.

Reykdalsstífla
Reyk­dals­stífla

Hringsnerist í hyl 

Þegar sá yngri féll í renn­una tók hann að sökkva og hringsner­ist í hyl, sem er neðst í renn­unni, en árfar­veg­ur­inn í renn­unni mynd­aði hring­iðju þarna í hylnum, ásamt því sem gróður gerði það að verkum að fót­festa var lítil sem engin. Í því fer eldri bróð­ir­inn að reyna að aðstoða þann yngri, en við það fellur hann einnig í hyl­inn og því kom­inn í sömu sjálf­heldu, líkt og yngri bróð­ir­inn. Á þeim tíma­punkti hringir systirin í móður þeirra, sem í fram­hald­inu kemur umsvifa­laust á stað­inn og hringir strax í 112 og kallar eftir aðstoð.

Móðirin reyndi að bjarga drengjunum 

Áður en björg­un­ar­lið kom á vett­vang, um fjórum mín­útum eftir til­kynn­ing­una, reyndi móð­irin, ásamt 16 ára stúlku sem kom þarna að, að ná drengj­unum upp. Fljót­lega náðu þær saman taki á eldri drengnum án þess þó að hafa náð að draga hann upp úr hylnum vegna straums­ins sem þarna var.

Systir drengj­anna, sem var í sam­skiptum við 112 á meðan þessu stóð, stöðv­aði öku­mann, karl­mann um þrí­tugt, sem átti leið hjá og kom hann móð­ur­inni og stúlkunni til aðstoðar með eldri dreng­inn, sem tókst að ná upp úr hylnum. Við björg­un­ina á þeim yngri féll karl­mað­ur­inn hins vegar einnig út í hyl­inn og við það var hann sömu­leiðis kom­inn í sjálf­heldu.

„Áður en björgunarlið kom á vettvang, um fjórum mínútum eftir tilkynninguna, reyndi móðirin, ásamt 16 ára stúlku sem kom þarna að, að ná drengjunum upp.“

Lögreglan lenti líka í sjálfheldu 

Á þessum tíma­punkti kom björg­un­ar­lið á stað­inn og fóru lög­reglu­menn strax í að koma þeim til aðstoðar og fljót­lega náð­ist karl­mað­ur­inn einnig upp úr hylnum. Báðir voru þeir mjög kaldir og illa átt­aðir en öndun eldri drengs­ins kom fljótt eftir að hafa fengið aðstoð. Lög­reglu­maður, sem var þarna til aðstoðar, freist­að­ist til að sækja yngri dreng­inn, sem var enn í hylnum. Við það að fara í hyl­inn lenti hann í sömu aðstöðu og karl­mað­ur­inn og eldri dreng­ur­inn. Eftir ein­hvern tíma og til­raunir náð­ist í fót­legg lög­reglu­manns­ins og þannig að draga hann upp úr hylnum, en þá hafði lög­reglu­mað­ur­inn náð taki á yngri drengnum og þeir báðir dregnir úr hylnum. Í fram­hald­inu voru hafnar end­ur­lífg­un­ar­til­raunir á yngri drengum.

Bræð­urnir og karl­mað­ur­inn voru fluttir á slysa­deild til aðhlynn­ingar, en aðstoð var jafn­framt veitt þeim sem komu að björg­un­inni á vett­vangi.

Ástand yngri bróð­urs­ins er stöðugt, en ein­hver meiðsli (mar, tognun) hlut­ust af bæði hjá eldri bróð­urnum og þeim sem komu að björg­un­inni.

Stíflan var tæmd  

Bæj­ar­yf­ir­völd Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar hafa tekið málið til skoð­unar með til­liti til þess að koma í veg fyrir að atvik sem þetta end­ur­taki sig þarna í og við Reyk­dals­stífl­una, en stíflan hefur verið tæmd þar til að  ráð­staf­anir verða gerðar.

Lög­reglan og fjöl­skylda barn­anna vilja þakka þeim sem komu til aðstoðar þarna á vett­vangi fyrir ótrú­lega yfir­vegun og þrek­virki, sem hinir sömu sýndu af sér við afar erf­iðar aðstæður. Einnig vill lög­reglan senda fjöl­skyldu barn­anna, og ekki síst yngri drengnum, bar­áttu- og bata­kveðjur.

Þakklátari en orð fá lýst 

Í sam­tali við dv.is segir ónafn­greindur aðstand­andi drengj­anna að fjöl­skyldan sé afar þakk­lát öllum þeim sem unnu að björg­un­inni. Lækn­arnir á spít­alnum séu „snill­ingar“. 

Haft er eftir við­kom­andi að fjöl­skyldan hafi ótt­ast um afdrif drengj­anna. „Við héldum að þeir hefðu báðir drukknað. Við vorum byrjuð að syrgja strax. Það var mik­ill léttir að end­ur­lífg­unin skyldi strax bera árángur hjá eldri drengnum en óvissan um yngri dreng­inn hefur staðið þangað til í dag. Við erum öll þakk­lát­ari en orð fá lýst. Bróðir hans spurði hann áðan til nafns og við gátum ekki betur séð en að hann reyndi að segja nafnið sitt.“

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Slys við Reykdalsstíflu

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár