Reynir að skapa einstakt andrúmsloft

Hilda Gunn­ars­dóttir, sem er betur þekkt sem fata­hönn­uð­ur­inn Milla Snorra­son, býr á Loka­stígnum þar sem hún býður gestum og gang­andi upp á te úr katli sem hún fékk í­ Kola­port­inu og er hennar helsti dýr­gripur. Fáir munir eru í íbúð­inni en þeir eru allir vel valdir og minna hana á eitt­hvað eða ein­hvern sem henni þykir vænt um.

Hilda tekur á móti blaða­manni og ljós­mynd­ara á fal­legu heim­ili sínu á Lokastíg í Reykja­vík. Íbúðin er lítil og nota­leg en Hilda vill frekar hafa fáa og per­sónu­lega hluti með sál og sögu en að elt­ast við nýj­ustu hönn­un­ar­strauma. Litirnir eru hlut­lausir sem skapar þægi­legt and­rúms­loft og stórir gluggar gera það að verkum að íbúðin er afar björt. Inn­blástur fyrir heim­ilið fær hún mikið úr nátt­úr­unni.

Hilda býður okkur sæti við borð­stofu­borðið og hellir upp á te búið til úr jurtum sem hún týndi sjálf. Þetta er einmitt svona íbúð sem þú drekkur te í. Meint á mjög jákvæðan hátt. „Ég er drekk örugg­lega fimm bolla á dag,“ segir Hilda og hlær. „Ég býð fólki alltaf upp á te þegar það kemur í heim­sókn. Þú spurðir mig áðan hver upp­á­halds­hlut­ur­inn minn væri og ég get sagt þér að það gæti bara verið hraðsuðu­ket­ill­inn minn. Ég held mjög mikið upp á hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár