Með trampólín í stofunni

María Margrét Jóhanns­dóttir býr á Sóla­valla­göt­unni, þar sem lista­verk og lit­ríkir veggir setja sterkan svip á íbúð­ina. Líf og fjör er á heim­il­inu en þau hjónin eiga tvær dætur, Kiru fimm ára og Natalíu átta mán­aða.

María Margrét Jóhanns­dóttir tekur á móti blaða­manni og ljós­mynd­ara á fal­legu heim­ili sínu í reisu­legu húsi á Sól­valla­götu en þar býr hún ásamt eig­in­manni sínum, og dætr­unum þeirra tveimur, Natalíu átta mán­aða og Kiru fimm ára. María er sem stendur í fæð­ing­ar­or­lofi en hún starf­aði áður sem blaða­maður og lauk nýverið meist­ara­prófi í alþjóða­sam­skiptum. 

Húsið
Húsið

María Margrét leiðir blaða­mann um íbúð­ina með Natalíu á arm­inum, sem brosir sínu blíð­asta á meðan eldri dóttirin sýnir listir sínar á litlu trampolíni á stofu­gólf­inu. Það er líf og fjör á heim­il­inu sem virð­ist vera við­eig­andi í þess­ari lit­ríku og skemmti­legu íbúð.

Trampólínið
Trampólínið

Lestrarhornið
Lestr­ar­hornið

Íbúðin, sem er 115 fer­metrar, er sér­lega björt og fal­leg og það er greini­legt að þar búa miklir list- og bókaunn­endur og fag­ur­kerar. Málverk og lista­verk setja mik­inn svip á íbúð­ina og fal­legur bóka­skápur, sem prýðir heilan vegg, gefur stof­unni fal­legt yfir­bragð. ­Glugg­a­rnir­ eru stórir og fal­legir og fal­legir gips­listar eru í loft­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár