María Margrét Jóhannsdóttir tekur á móti blaðamanni og ljósmyndara á fallegu heimili sínu í reisulegu húsi á Sólvallagötu en þar býr hún ásamt eiginmanni sínum, og dætrunum þeirra tveimur, Natalíu átta mánaða og Kiru fimm ára. María er sem stendur í fæðingarorlofi en hún starfaði áður sem blaðamaður og lauk nýverið meistaraprófi í alþjóðasamskiptum.
María Margrét leiðir blaðamann um íbúðina með Natalíu á arminum, sem brosir sínu blíðasta á meðan eldri dóttirin sýnir listir sínar á litlu trampolíni á stofugólfinu. Það er líf og fjör á heimilinu sem virðist vera viðeigandi í þessari litríku og skemmtilegu íbúð.
Íbúðin, sem er 115 fermetrar, er sérlega björt og falleg og það er greinilegt að þar búa miklir list- og bókaunnendur og fagurkerar. Málverk og listaverk setja mikinn svip á íbúðina og fallegur bókaskápur, sem prýðir heilan vegg, gefur stofunni fallegt yfirbragð. Gluggarnir eru stórir og fallegir og fallegir gipslistar eru í loftinu.
Athugasemdir