„Má þetta í alvörunni á Íslandi?“

Starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar fóru inn í íbúð hæl­is­leit­anda og hand­léku eigur hans, meðal ann­ars fjöl­skyldu­myndir.

Starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar fóru inn í íbúð hæl­is­leit­anda og hand­léku eigur hans, meðal ann­ars fjöl­skyldu­myndir. Maðurinn seg­ist ekki hafa vitað af þessu né veitt starfs­mönn­unum leyfi til að fara inn í her­bergi sitt.

Atvikið olli mann­inum miklu hug­ar­angri og í kjöl­far þess hætti hann tíma­bundið að borða og drekka, sagði komið fram við sig eins og dauðan mann og að ef til vill væri bara best að deyja. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Rauða kross­inum gerðu sam­tökin athuga­semd við vinnu­brögð Útlend­inga­stofn­unar. 

Þeir lög­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við telja aug­ljóst að mað­ur­inn hafi orðið fyrir ólög­mætri röskun á frið­helgi einka­lífs og heim­ilis. Vinnu­brögðin hljóti að ganga í ber­högg við þau rétt­indi sem kveðið er á um í stjórn­ar­skrá og alþjóð­legum mann­rétt­inda­sátt­málum. Útlend­inga­stofnun hefur brugð­ist illa við spurn­ingum Stund­ar­innar um málið og ekki svarað fyr­ir­spurn sem var send fyrir meira en viku. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár