„Leyniskýrsla“ reyndist fréttabréf

Til­vitnun um að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gæfi ekki eftir íslenska hags­muni ekki frá kröfu­höfum heldur Ásmundi Einari Daðasyni, aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs.

„Leyniskýrsla“ reyndist fréttabréf

„Leyni­skýrsl­urnar“ sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vís­aði til í ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna eru frétta­bréf sem fjölda kröfu­hafa berst reglu­lega frá Einari Karli Har­alds­syni almanna­tengli og ráð­gjafa slita­stjórnar Glitnis. Full­yrð­ingin um að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gæfi ekki eftir íslenska hags­muni er úr slíku bréfi, að því er fram kemur í grein eftir við­skipta­rit­stjóra DV sem birt­ist á vef blaðs­ins í dag. 

Í skrifum við­skipta­rit­stjór­ans kemur hins vegar ekki fram að þau orð sem Sig­mundur las upp eru til­vitnun frétta­bréfs­rit­ara í pistil eftir Ásmund Einar Daðason, þing­mann og aðstoð­ar­mann for­sæt­is­ráð­herra sem birt­ist fyrr á þessu ári. Einar Karl benti á þetta í nýjasta frétta­bréfi sínu til slita­stjórnar Glitnis, líkt og Stöð 2 greindi frá í kvöld. 

Í við­tali Björns Inga Hrafns­sonar við Sigmund Davíð í þætt­inum Eyjunni, sem tekið var í dag en sýnt í kvöld, var Sig­mundur spurður sér­stak­lega um umrædda til­vitnun. Tók for­sæt­is­ráð­herra þá fram af fyrra bragði að þarna væri ekki verið að vitna í mat fram­sókn­ar­manna sjálfra heldur væri þetta „mat þess­ara aðila sem eru fengnir til að kort­leggja stjórn­málin og greina þau“. Þetta sagði Sig­mundur áður en Stöð 2 sagði frétt­ina um að hér væri um að ræða til­vitnun í Ásmund Einar.

Í grein hans sem birt­ist í Morg­un­blað­inu þann 22. jan­úar segir hann orð­rétt: „Erlendir kröfu­hafar þrota­bú­anna eru hægt en örugg­lega að átta sig á því að rík­is­stjórn­inni er full alvara að standa vörð um hags­muni almenn­ings á Íslandi.“

Ekki nið­ur­staða skýrsl­unnar
„Við vitum að full­trúar kröfu­haf­anna hafa tekið saman per­sónu­legar upp­lýs­ingar um stjórn­mála­menn, blaða­menn og aðra sem hafa tjáð sig um þessi mál eða telj­ast lík­legir til að geta haft áhrif á gang mála,“ sagði Sig­mundur í ræðu sinni og bætti við að „í sumum til­vikum hafa verið gerðar sál­grein­ingar á fólki til að átta sig á því hvernig best sé að eiga við það.“  

Sagði hann nið­ur­stöðu einnar leyni­skýrslu kröfu­haf­anna hafa verið rakta „í punkta­formi á for­síðu“ þar sem staðið hefði: “The Progressive Party stands firms on Icelandic inter­ests. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gefur ekki eftir íslenska hags­muni.“

Að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2 var þetta hins vegar ekki nið­ur­staða skýrsl­unnar, heldur ensk þýð­ing á til­vitnun í grein eftir Ásmund Einar. Þannig virð­ist for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa gefið flokks­systk­inum sínum vill­andi upp­lýs­ingar um helg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár