Jóhanna um Árna Pál: „Búinn að skjóta sig mjög alvarlega í fótinn“

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir heyr­ist gagn­rýna Árna Pál Árnason, arf­taka sinn í for­manns­stóli Sam­fylk­ing­ar­innar, harð­lega í nýrri heim­ild­ar­mynd sem tekin var upp á síð­ustu dögum hennar í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Jóhanna um Árna Pál: „Búinn að skjóta sig mjög alvarlega í fótinn“
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir Heim­ild­ar­mynd um síð­ustu daga hennar í emb­ætti verður frum­sýnd 15. októ­ber næst­kom­andi. Mynd: Pressphotoz

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir færir fram harða gagn­rýni á Árna Pál Árnason, arf­taka hennar í stóli for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, í heim­ild­ar­mynd þar sem skyggnst er á bak við tjöldin í stjórn­ar­ráð­inu síð­ustu daga hennar í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Í mynd­inni heyr­ist Jóhanna gagn­rýna Árna Pál í sam­tali við Hrannar Björn Arnarson, aðstoð­ar­mann hennar. „Ég held að hann sé búinn að skjóta sig mjög alvar­lega í fót­inn með þessu,“ segir Jóhanna. „Hann sagði sjálfur að hann hefði haft umboð þing­flokks­ins sem hann hafði ekki,“ bætir hún við.

„Það er hrein­lega allt brjálað í okkar röðum, heyr­ist mér,“ svarar Hrannar Björn Arn­ars­son, aðstoð­ar­maður hennar.

Það sem Jóhanna vísar til er ákvörðun Árna Páls að fresta því að ljúka sam­þykkt nýrrar stjórn­ar­skrár fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar sem haldnar voru í lok apríl 2013. Svo fór að Árni Páll lýsti því yfir opin­ber­lega í byrjun mars 2013 að Alþingi gæti ekki klárað málið fyrir kosn­ingar. Þess í stað vildi hann semja við stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana um kafla frum­varps til nýrrar stjórn­ar­skrár. Frum­varpið byggði á drögum stjórn­laga­ráðs, sem kosið var í beinni kosn­ingu, og var sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í októ­ber 2012 að leggja drög stjórn­laga­ráðs til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá.

Í mynd­inni segir Jóhanna að hún hafi lagt „mjög mik­inn metnað í það að þjóðin fái nýja stjórn­ar­skrá.“

„Þingið hefur allar for­sendur til að ljúka mál­inu með far­sælum hætti áður en kjör­tíma­bil­inu lýkur,“ segir hún í ræðu sem sýnd er í mynd­inni. Svo fór hins vegar ekki. Fjallað var ítar­lega um málið í for­síðu­grein Stund­ar­innar í síð­asta mán­uði. 

Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn náðu tæpum meiri­hluta í kosn­ing­unum og var ákveðið að setja stjórn­ar­skrána í nefnd. Ekki er útlit fyrir að stjórn­ar­skrá stjórn­laga­ráðs verði sam­þykkt af Alþingi, en hins vegar hefur Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lýst því yfir að breyt­ingar geti verið gerðar á núver­andi stjórn­ar­skrá. Bjarni hefur lagt til að þjóðin kjósi um afmörkuð atriði stjórn­ar­skrár­innar sam­hliða kom­andi for­seta­kosn­ingum, en hins vegar hefur þegar verið kosið um þau atriði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. 

Plakat fyrir heimildarmyndina
Plakat fyrir heim­ild­ar­mynd­ina Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Björn B. Björns­son fylgdi Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttir eftir á síð­ustu vikum hennar sem for­sæt­is­ráð­herra.

Heim­ild­ar­myndin Jóhönnu heitir: Jóhanna - Síðasta orr­ustan. Hún hefst á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar 2013 þegar Árni Páll Árnason tekur við af Jóhönnu. Í maí 2013 tók Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son við lyklunum að for­sæt­is­ráðu­neyt­inu af Jóhönnu. Þetta er í fyrsta skipti sem heim­ild­ar­mynd af þessu tagi er gerð á Íslandi, þar sem fylgst er með stjórn­mála­manni í valda­stöðu og þeirri atburð­ar­rás sem fylgir­með­ferð Alþingis á stóru máli, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá fram­leið­endum mynd­ar­innar. Leik­stjóri og hand­rits­höf­undur er Björn Brynjólfur Björns­son og er hann jafn­framt hand­rits­höf­undur ásamt Elísa­betu Ron­alds­dóttur. Jón Karl Helgason sá um kvik­mynda­töku og tón­listin í mynd­inni er eftir Tryggva M. Bald­urs­son. Myndin verður frum­sýnd í Bíó para­dís 15. októ­ber næst­kom­andi.

Nið­ur­stöður skoð­ana­könn­unar, sem birt var í síð­ustu viku, voru að 43 pró­sent teldu Jóhönnu hafa staðið sig best allra for­sæt­is­ráð­herra sem nefndir voru í könn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að viðkvæmum málum“
FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár