Fjalla­mað­ur­inn Árni Tryggva­son hefur stundað fjalla­mennsku í yfir 30 ár. Hann er virkur í starfi björg­un­ar­sveit­anna. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Heyrðum snjóflóðin falla í myrkrinu”

Árni Tryggva­son björg­un­ar­sveit­ar­maður hefur komið á vett­vang alvar­legra slysa á fjöllum og jöklum. Hann á að baki far­sælan feril sem fjall­göngu­maður og leggur mikið upp úr örygg­is­málum. Hann segir frá lífs­háska á vest­firsku fjalli.

„Mér tókst að stöðva mig fremst á hengj­unni þaðan sem voru hund­ruð metrar niður þver­hnýpið, beint á móti fjall­inu Hesti í Öndund­ar­firði. Neðan við hengj­una tóku við brattar hlíðar og svo stór­grýti. Það hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum. Mér tókst að krafla mig upp til félaga míns. Þegar ég komst til hans féll­umst við í faðma og hágrétum um stund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjallgöngur

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár