Háskólinn stefnir fyrrverandi aðjúnkt til ógildingar á úrskurði

„Af hálfu Háskóla Íslands hefur því verið ákveðið að höfða mál,“ segir í til­kynn­ingu frá for­seta Félags­vís­inda­sviðs

Háskóli Íslands hefur falið lög­manni á lög­manns­stof­unni Lex að höfða mál á hendur Friðriki Eysteins­syni, fyrr­ver­andi aðjúnkt í mark­aðs­fræðum, til ógild­ingar á úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál frá 21. jan­úar 2015. Í úrskurð­inum var háskól­anum gert að verða við beiðni Friðriks um aðgang að skýrslu sem unnin var af sál­fræði­stofu fyrir Félags­vís­inda­svið Háskóla Íslands. „Stefn­andi krefst jafn­framt máls­kostn­aðar að skað­lausu úr hendi stefnda,“ segir í stefn­unni sem Stundin hefur undir höndum.

Forsaga máls­ins er sú að haustið 2013 ræddu sál­fræð­ingar við starfs­fólk við­skipta­fræði­deildar vegna sam­skipta­vanda í deild­inni. Útbúin var skýrsla sem Friðrik hefur barist fyrir að fá afhenta, enda telur hann að efni hennar stað­festi að hann hafi verið beittur órétti af stjórn­endum deild­ar­innar auk þess að hafa orðið fyrir þöggun og ein­elti vegna gagn­rýni sinnar á starfs­hætti skól­ans. Friðrik glímir við ólækn­andi krabba­mein, en fimm ára ráðn­ing hans við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands rann út í ágúst árið 2013.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár