„Hann er að hætta sem forsætisráðherra, enginn vafi á því“

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sé að hætta sem for­sæt­is­ráð­herra. Yfir­lýs­ing Sig­mundar til erlendra fjöl­miðla var tækni­leg árétt­ing.

„Hann er að hætta sem forsætisráðherra, enginn vafi á því“
Ásmundur og Sigurður Ingi Ásmundur Einar Daðason og Sigurður Ingi Jóhanns­son ræddu við fjöl­miðla um að Sigurður yrði for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Nútíminn

Yfir­lýs­ing Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar til erlendra fjöl­miðla um að hann hafi ekki sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra hefur vakið óvissu um stjórn lands­ins. 

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir ljóst að Sig­mundur hætti sem for­sæt­is­ráð­herra.

„Hann er bara að hætta sem for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi að taka við, það er bara þannig. Enginn vafi á því,“ segir Ásmundur Einar í sam­tali við Stundina. „Hann er bara að stíga til hliðar og Sigurður Ingi Jóhanns­son tekur við sem for­sæt­is­ráð­herra,“ ítrekar hann.

Forsætisráðherra hefur ekki sagt af sér

Fjöl­miðlar um allan heim hafa greint frá frétt­inni um að for­sæt­is­ráð­herra Íslands segi af sér. Í yfir­lýs­ingu frá Sigmundi til erlendra fjöl­miðla áréttar hann ekki ein­ungis að hann hafi ekki sagt af sér, heldur er einnig settur fyr­ir­vari við tím­ann:

„Í dag hefur for­sæt­is­ráð­herra Íslands, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, lagt til við þing­flokk Fram­sókn­ar­flokks­ins að vara­for­maður flokks­ins taki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um ótil­greindan tíma. For­sæt­is­ráð­herra hefur ekki sagt af sér og mun halda áfram for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Yfir­lýs­ingin hefur vakið óvissu með stöðu stjórnar lands­ins. 

Tæknileg árétting

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, útskýrir í sam­tali við Morg­un­blaðið að yfir­lýs­ingin sé tækni­leg árétt­ing. „Það var lagt til við þing­flokk­inn að [Sig­mund­ur] stigi til hliðar og Sig­urður Ingi tæki við emb­ætt­is­skyld­um ráð­herra um lengri eða skemmri tíma, eft­ir því sem semd­ist milli flokk­anna. Þannig að þetta er nú bara ná­kvæm­lega það sem gerð­ist, og bara til að svara spurn­ing­um um hvort hann sé bú­inn að segja af sér eða ekki. Þetta er bara tækni­lega rétt,“ segir Jóhannes. Hann segir að til að segja af sér þurfi for­seti að hafa veitt ráð­herr­anum lausn, sam­kvæmt 15. grein stjórn­ar­skrár­innar. „Það má vel vera að ein­hverj­ir mis­skilji þetta. En þetta er svona.“

Óljóst hvort ráðstöfunin sé tímabundin

Ekki virð­ist hafa verið ákveðið hvort ráð­stöf­unin sé aðeins tíma­bundin. Aðspurður hvort Sig­mundur sé að hætta tíma­bundið seg­ist Ásmundur þurfa að skoða málið betur til að átta sig á umræð­unni. „Ég er að keyra hérna, ég verð að fá að kíkja á þetta betur.“

Ásmundur Einar segir að yfir­lýs­ing þing­flokks­ins sé skýr. „Þetta kemur skýrt fram í yfir­lýs­ing­unni. Hann er bara að stíga til hliðar.“

Yfir­lýs­ing þing­flokks­ins er svohljóð­andi: 

„For­sæt­is­ráð­herra legg­ur til að vara­for­maður flokks­ins taki við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra svo það megi verða til að rík­is­stjórn­in geti lokið þeim mik­il­væg­um verk­um sem hún hef­ur unnið að og varða mik­il­væga þjóðar­hags­muni.

Þing­flokk­ur­inn lýs­ir ánægju með þá virð­ing­ar­verðu af­stöðu for­manns­ins sem felst í því að hann skuli vera reiðubú­inn að stíga þetta skref til að gera rík­is­stjórn­inni kleift að vinna áfram að þeim mik­il­vægu verk­efn­um sem nú liggja fyr­ir.  Þing­flokk­ur­inn styður eft­ir sem áður for­mann flokks­ins og þykir mik­il­vægt að halda áfram þeirri vinnu sem sem for­maður­inn hef­ur átt svo stór­an þátt í að leggja grunn að.

Formaður, vara­for­maður og aðrir þing­menn flokks­ins eru sam­mála um að  mik­il­vægt sé að halda áfram að upp­lýsa um þann fjölda fyr­ir­tækja í eigu Íslend­inga sem skráð eru er­lend­is til að tryggja að all­ir standi skil á sínu til sam­fé­lags­ins eins og for­maður flokks­ins og kona hans hafa gert.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár