Rektor vill umburð­ar­lyndi Vil­hjálmur Egilsson, rektor Háskól­ans á Bifröst, kallar eftir umburð­ar­lyndi í garð kenn­ara og nem­enda nú þegar ákvörðun hef­iur verið tekin um að taka á móti hæl­is­leit­endum. Mynd: Pressphotos

Hælisleitendum einungis mismunað á viðskiptalegum forsendum, segir rektor

Hæl­is­leit­endur sem fá úthlutað hús­næði hjá Háskól­anum á Bifröst munu hvorki hafa aðgang að heitum pottum né lík­ams­rækt ólíkt öðrum íbúum svæð­is­ins. Vil­hjálmur Egilsson, rektor Háskól­ans á Bifröst, segir ákvörð­un­ina byggja á við­skipta­legum for­sendum. Fjár­hagur skól­ans bjóði ekki upp á annað en ítrasta aðhald í fjár­málum.

Háskól­inn á Bifröst ætlar ekki að veita hæl­is­leit­endum, sem fá inni í hús­næði á svæð­inu, aðgang að heitum pottum og lík­ams­rækt. Nemendur og kenn­arar við skól­ann hafa sér­stök aðgangskort til þess að nýta sér aðstöð­una en hinir nýju íbúar munu ekki fá nein slík. Vil­hjálmur Egilsson, rektor Háskól­ans á Bifröst, segir nem­endur borga fyrir aðgang að heitum pottum og lík­ams­rækt með skóla­gjöldum sínum og þá sé aðstaðan hluti af kjörum starfs­manna. Þessi þjón­usta sé hins vegar ekki inni­falin í leig­unni sem Útlend­inga­stofn­una greiði.

„Ekki hefur enn komið til tals hvort stofn­unin vill greiða sér­stak­lega fyrir þessa þjón­ustu,“ segir Vil­hjálmur sem við­ur­kennir að ákveðin mis­munun sé fólgin í því að meina hæl­is­leit­endum að hafa aðgang að sömu þjón­ustu og aðrir íbúar svæð­is­ins. Hann segir þessa mis­munun þó ein­ungis byggða á við­skipta­legum for­sendum þar sem umrædd aðstaða sé í eigu skól­ans en ekki aðil­ans sem leigir út íbúð­irnar. „Eina mis­mun­unin sem er í gangi er á við­skipta­legum for­sendum þannig að þeir sem greiða fyrir þjón­ustu fá hana en aðrir ekki,“ segir Vil­hjálmur í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

„Eina mis­mun­unin sem er í gangi er á við­skipta­legum for­sendum þannig að þeir sem greiða fyrir þjón­ustu fá hana en aðrir ekki“

Fyrstu íbúarnir komnir

Líkt og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hefur Háskól­inn á Bifröst sam­þykkt að leigja Útlend­inga­stofnun sex íbúðir sem afhentar verða hæl­is­leit­endum með fjöl­skyldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár