Eva Joly Bendir Íslend­ingum á að fylgj­ast með hags­muna­á­rekstrum þeirra sem taka ákvarð­anir í sam­fé­lag­inu.

Varar Íslendinga við

Eva Joly, Evr­ópu­þing­maður og rann­sókn­ar­dóm­ari, seg­ist vilja hjálpa Íslend­ingum að fá „eðli­lega“ hlut­deild í arði alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja sem starfa á land­inu. Hún varar við stöð­ugum hags­muna­á­rekstrum fólks í stjórn­un­ar­stöðum á Íslandi og kallar samn­ing Íslend­inga við Alcoa samn­ing fyrir þró­un­ar­ríki.

Eftir við­tal við Evu í Kast­ljós­inu í síð­ustu viku líkti Tryggvi Þór Her­berts­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­stjóri fjár­fest­inga­bank­ans Askar capital, skoð­unum hennar við hug­mynda­fræði íslamíska rík­is­ins ISIS.

„Það segir margt um þann fyrr­ver­andi þing­mann, en ekk­ert um mig. Ég tala yfir­vegað um rök­rænt efni. Ég er að varpa ljósi á mik­il­væg mál sem varða Ísland,“ segir Joly.

Í kjöl­far þess að Hreiðar Már Sig­urðs­son og Sigurður Ein­ars­son, stjórn­endur Kaup­þings, voru dæmdir í fang­elsi í síð­ustu viku er mik­il­væg­ast, að hennar mati, að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara fái að njóta heið­urs fyrir góðan árangur.

„Það sem er mik­il­vægt núna er að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sé ekki svipt heiðr­inum sem það á skilið. Það þarf að við­halda því þar til öll málin sem það vinnur að ná að fara í gegnum allt kerfið.“

Fáir vildu taka að sér stöðu sér­staks sak­sókn­ara á sínum tíma. Aðeins tveir sóttu um. Nýlega var einn hávær­asti gagn­rýn­andi emb­ætt­is­ins ráð­inn útgef­andi 365 og rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, stærsta dag­blaðs lands­ins, sem er í eigu eig­in­konu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, eins af þeirra sem hafa verið grun­aðir um efna­hags­brot í aðdrag­anda hruns­ins.

„Við vitum að þau eru gift. Ég get bara beðið fólk um að rifja upp það sem ég sagði í sjón­varp­inu árið 2009. Ég meina: Það að vera sér­stakur sak­sókn­ari gerir mann ber­skjald­aðan fyrir miklu hatri frá valda­miklu fólki, sem berst á móti. Og leiðin til að gera það er að vega að stofn­un­unum. Gagnsæi er mik­il­vægt og það er mik­il­vægt að það séu til sjálf­stæðir fjöl­miðlar sem muna feril Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og vita frá hvaða sjón­ar­hóli hann talar. Í dag er mik­il­vægt að halda því á lofti að sér­stakur sak­sókn­ari hefur unnið þrek­virki. Þetta fólk má segja það sem það vill, en það breytir ekki veru­leik­anum, er það?“

Tímabært að vera á verði

Eva Joly hefur sér­stakar áhyggjur af hags­muna­á­rekstrum á Íslandi, ekki síst vegna smæðar sam­fé­lags­ins. „Ég held að þetta sé alvar­legt vanda­mál fyrir Ísland. Sem betur fer höfum við blogg­ar­ana og ennþá ein­hverja sjálf­stæða fjöl­miðla. En ég held að það sé tíma­bært að segja að þið ættuð að vera á verði.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár