Var að drepast úr dauðahræðslu

Vigdís Gríms­dóttir er flutt frá Ströndum til Reykja­víkur. Hún hafn­aði við­tali en sam­þykkti sam­tal. Tækni­væddir draugar. Lífs­háskinn og end­ur­koman í lík­amann. Slysið í bak­arí­inu og mála­ferlin. Var ein­mana í mann­haf­inu í París en aldrei í Árnes­hreppi. Fann fyrir Guði á Vatna­jökli. Óléttu­prófið í Kaup­fé­lag­inu

Rithöfundurinn
Rit­höf­und­ur­inn Vigdís Gríms­dóttir nýtur mik­illar virð­ingar vegna bóka sinna. Hér er hún heima hjá sér í mið­borg Reykja­víkur. Mynd: Kristinn Magnússon

„Hugsaðu þér allt plássið sem hver maður hefur. Fólkið og víð­áttan,“ segir Vigdís Gríms­dóttir, rit­höf­undur og kenn­ari, þegar við höfum heils­ast. Ég hafði spurt um Strand­irnar og hug hennar til þess svæðis sem hafði fóstrað hana síð­asta ára­tug­inn. Þarna stóð hún svart­hærð með rauðan vara­lit og óað­finn­an­lega klædd í svart. Allt í stíl. Hefð­ar­frúin sem flutti næstum alla leið á Horn­strandir til að njóta þess að búa í örlitlu sam­fé­lagi íslenskrar sveita­menn­ingar. Ég verð dálítið sem stjörnu­s­leg­inn. Vigdís hefur alla tíð verið hátt skrifuð í mínum huga sem rit­höf­undur og mann­eskja. Hún biður mig afsök­unar á því að kaffi­vélin sé biluð. Ég býð þér upp á sóda­vatn í stað­inn,“ segir hún. Ég þakka fyrir mig og læt eins og mér sé sama um kaffi­leysið.

Fyrir nokkrum dögum fluttu Vigdís og María Guð­munds­dóttir ljós­mynd­ari frá Ströndum til Reykja­víkur. Stökkið er stórt. Vigdís og María bjuggu um ára­bil í Árnes­hreppi. Þær settu svo sann­ar­lega svip á sam­fé­lagið, ljós­mynd­ar­inn og rit­höf­und­ur­inn, og nutu virð­ingar og vin­áttu sam­borg­ara sinna í einu minnsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins þar sem innan við 40 manns hafa vet­ur­setu á stóru og ein­angr­uðu land­svæði.

Ekki viðtal

„Þetta verður sam­tal en ekki við­tal,“ segir Vigdís ákveðin þegar hún hafði boðið mér sæti á nýja heim­il­inu. Ég malda í móinn og vil halda mér utan við við­talið að vanda. En Vigdís gefur sig ekki. Við eigum sam­eig­in­legan bak­grunn í að skrifa bækur og að hafa búið á Ströndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár