Mynd: Jón Trausti Reynisson

Byggðarhrun gæti orðið í Árneshreppi

Íbúar í Árnes­hreppi ótt­ast byggð­ar­hrun á sama tíma og fyrsta mal­bikið er komið. Aðeins tæp­lega 50 manns í hreppnum og nokkrir hugsa sér til hreyf­ings. Hval­ár­virkjun sögð lík­leg til að bjarga byggð­inni.

Það kemur mal­bik á vegi í fyrsta sinn í sögu hrepps­ins, síð­sum­ars árið 2015. Stór­virkar og másandi vinnu­vélar hlunkast áfram með til­heyr­andi ískri og jarð­hrær­ingum. Jörðin nötrar undan átök­unum þegar gömlu mal­ar­veg­irnir hverfa undir bundið slit­lag. Að vísu er aðeins mal­bikað framan við helstu byggða­gjarn­ana til að ryk­binda. Nútíminn er samt mættur þótt í mýflugu­mynd sé. En þetta er fram­för. Það er bros á hverju and­liti í Árnes­hreppi. Einn veg­stubbur er í botni Norð­ur­fjarðar, sá nær að kaup­fé­lag­inu. Ekki átti að mal­bika planið framan við versl­un­ina og bens­ín­dælu N1. Sveit­ar­fé­lagið átti ekki þær tvær millj­ónir sem þurfti. Eftir fund ráða­manna hrepps­ins, Vega­gerð­ar­innar og olíu­fé­lags­ins, var ákveðið að leggja í púkk. Og planið fékk sitt slit­lag. Annar stubbur er í Melavík. Þá fengu íbú­arnir í Tré­kyllis­vík sinn stubb og við Djúpuvík var lagt slit­lag. Loks var flug­brautin á Gjögri mal­bikuð. Það var mál manna að miklu lengra þyrfti að ganga til að tryggja heils­árs­bú­setu í hér­að­inu. En það breytir ekki því að bylt­ingin er komin í þetta afskekkta hérað sem best er lýst með bók­artitli Hrafns Jök­uls­sonar, Þar sem veg­ur­inn endar. 

Slæmir fyrirboðar

Á sama tíma og íbúar Árnes­hrepps fagna mal­bik­inu sínu hrann­ast upp slæmir fyr­ir­boðar um enn frek­ari búseturöskun. Aðeins eiga tæp­lega 50 manns lög­heim­ili í hreppnum og hluti þeirra hugar að brott­flutn­ingi. Kvóti til fisk­veiða er ekki til staðar þótt svæðið liggi að gjöf­ulum fiski­miðum sem íbú­arnir nýttu um aldir sér til fram­færis. Þær veiðar sem nú eru stund­aðar eru að mestu af aðkomu­mönnum sem stunda strand­veiðar eða skemmti­veiðar á sumrin þegar best er og blíð­ast. Þess á milli syndir þorsk­ur­inn óáreittur í fló­anum. 

Jarðir eru til sölu með kvóta. Vandinn er hins vegar sá að verð­mæti kvót­ans er óljóst þar sem búvöru­samn­ing­ur­inn rennur út árið 2017. Eftir þau tíma­mót veit eng­inn hvaða breyt­ingar verða og hvort bændur fái sínar 7 þús­und krónur á ári með hverri kind. Fjár­fest­ing í kvóta er því áhættu­söm. Og það getur verið sniðugra fyrir bændur sem komnir eru á aldur að bregða búi og leggja inn kvót­ann en fá samt bein­greiðsl­urnar. Lítið er um kyn­slóða­skipti. Bændur eld­ast og þegar þeirra tími tekur enda lýkur hugs­an­lega búsetu á jörðum þeirra. Fjöl­margar jarðir hafa farið í eyði und­an­farna ára­tugi. Mörgum rennur þetta til rifja þar sem svæðið er ein­stak­lega fal­legt og býður upp á fjöl­marga mögu­leika í land­bún­aði, sjáv­ar­út­vegi og ferða­iðn­aði, ef réttar aðstæður skap­ast. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár