Aðstoðarmaður Bjarna segir uppboðsleiðina „ekki treysta byggð í landinu“

Teitur Björn Ein­ars­son, sem vill leiða fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, leggst gegn upp­boði veiði­heim­ilda, meðal ann­ars á grund­velli byggða­sjón­ar­miða, í grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag.

Aðstoðarmaður Bjarna segir uppboðsleiðina „ekki treysta byggð í landinu“

Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra sem sæk­ist nú eftir fyrsta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, skrifar grein í Frétta­blaðið í dag þar sem hann leggst gegn upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi.

„Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er í dag arð­bær atvinnu­grein sem greiðir skatta og gjöld en það hefur ekki alltaf verið þannig og ekki sjálf­gefið að nýt­ing auð­lindar gefi af sér arð,“ skrifar Teitur sem telur að úrbóta á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu sé þörf „alveg þangað til öllum mark­miðum um sjálf­bærni auð­lind­ar­innar, arð­semi grein­ar­innar og efl­ingu atvinnu og byggðar í land­inu er náð“.

Þá víkur hann að upp­boðs­leið­inni: „En ekki er að sjá að upp­boðs­leiðin feli í sér slíkar nauð­syn­legar úrbætur. Sú leið stuðlar ekki betur að verndun nytja­stofna við Íslands­mið en nú er gert. Þá er óljóst hvernig upp­boðs­leiðin leiðir til meiri hag­kvæmni í grein­inni en hætta er á að skuld­setn­ing auk­ist. En aðal­at­riði er að upp­boðs­leiðin mun ekki treysta atvinnu eða byggð í land­inu enda vand­séð hvernig auknar álögur á helstu atvinnu­grein lands­byggð­ar­innar og óvissa innan hennar styrki stöðu fólks sem þar býr og treysti atvinnu þess.“

Jón Steins­son, hag­fræð­ingur við Columbia-háskóla sem hefur talað fyrir upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi um ára­bil, fjallar einnig um upp­boðs­leið­ina í pistli sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag. Hann bendir á að upp­boð veiði­heim­ilda í Færeyjum skili lands­mönnum þar marg­falt meiri arði af auð­lind­inni en Íslend­ingar hafa fengið að venj­ast. Áður hefur Jón gagn­rýnt sjálf­stæð­is­menn og sakað þá um tví­skinn­ung fyrir að tala fyrir mark­aðs­lausnum á flestum sviðum en leggj­ast gegn þeirri mark­aðs­lausn sem upp­boð afla­heim­ilda er. „Mér finnst alltaf jafn athygl­is­vert hvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er tor­trygg­inn varð­andi þessa mark­aðs­lausn. Af hverju skyldi það vera að mark­að­ur­inn virk­aði illa í þessu til­viki en vel almennt að þeirra mati?“ sagði hann í sam­tali við Stundina í fyrra þegar greint var frá því að fjórir af sex stjórn­mála­flokkum á Alþingi eru fylgj­andi upp­boði á afla­heim­ildum í stað þess að úthluta þeim út frá veiði­reynslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fiskveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár