Íslendingar fengið „glýju í augun“ vegna teknanna sem uppboðsleiðin skilar Færeyingum

Jón Gunn­ars­son segir að Íslend­ingar eigi ekki að bera sig saman við Fær­ey­inga hvað varðar sjáv­ar­út­veg, enda hafi Ísland náð miklu meiri árangri á því sviði. Bjarni Bene­dikts­son segir ein­hverja kunna að hafa fengið „glýju í augun“ vegna verðs­ins sem Fær­ey­ingar fá fyrir kvót­ann.

Jóni Gunn­ars­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manni atvinnu­vega­nefndar Alþingis, finnst að Íslend­ingar eigi ekki að bera aðferðir Fær­ey­inga við úthlutun veiði­heim­ilda saman við til­högun sjáv­ar­út­vegs­mála á Íslandi. Þá telur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að Íslend­ingar hafi fengið „glýju í augun“ vegna frétta af upp­boði Fær­ey­inga á veiði­heim­ildum.

Þetta kom fram í umræðum um upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi sem fram fór á Alþingi í dag að frum­kvæði Oddnýjar Harð­ar­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Sem kunn­ugt er hafa Fær­ey­ingar að und­an­förnu boðið upp um 10 pró­sent veiði­heim­ilda í til­rauna­skyni og fengið marg­falt hærra verð fyrir kvót­ann en íslenska ríkið tekur sér í formi veiði­gjalda.

„Hér er vitnað til Fær­ey­inga sem hafa ekki náð nálægt því þeim árangri í sjáv­ar­út­vegi sem Íslend­ingar hafa náð, langt frá því. Við eigum ekki að bera okkur saman við þetta. Við eigum að horfast í augu við þær stað­reyndir og reyna að móta leiðir, mál­efna­lega, til þess að mæta þeim og ná sátt um þessi mál, ekki bregð­ast hlut­verki okkar ítrekað,“ sagði Jón Gunn­ars­son í umræð­unum. Hann kall­aði eftir því að þing­is­menn hættu öllum hástemmdum yfir­lýs­ingum og næðu „sáttum við þjóð­ina og hags­muna­að­ila í þessu mik­il­væga máli.“

Bjarni Bene­dikts­son telur einnig að það geti komið íbúum hinna dreifðu byggða í koll að láta mark­að­inn ráða för. 

„Umræðan nú, eins og mig grun­aði, á ein­hverjar rætur að rekja til nýlegrar reynslu Fær­ey­inga af því að bjóða upp lít­inn hluta veiði­heim­ild­anna, einkum kvóta í Barents­haf­inu. Ein­hverjir kunna að hafa fengið glýju í augun vegna þess að þeir erlendu aðilar sem þar keyptu greiddu fyrir það hærra verð en veiði­gjöldin hér­lendis. En það þarf auð­vitað að skoða málið betur en að horfa bara á útboðs­verðið eitt og sér,“ sagði Bjarni og bætti við:

„Það mistókst ger­sam­lega að finna dreifðan hóp að þessum nýju heim­ildum. Í ræðu máls­hefj­anda var vakin athygli á því að ein­hverjir kynnu að sitja eftir með sárt ennið ef kerf­inu væri ekki breytt. Nefnt var nýlegt dæmi úr Þor­láks­höfn því til stuðn­ings. En er það ekki einmitt svo að ef allt fer á upp­boð þá er eng­inn fyr­ir­sjá­an­leiki, þá er engin vissa? Þá fyrst verður hv. þing­maður að fara til Þor­láks­hafnar og segja: Ja, það er nú bara þannig, kæru íbúar hér, að það var mark­að­ur­inn sem réði? Hver er þá fyr­ir­sjá­an­leik­inn fyrir íbúa hinna dreifðu byggða? Hann er eng­inn.“

Bjarni sagði að það væri göf­ugt mark­mið að tryggja þjóð­inni sann­gjarna hlut­deild í afrakstri veiða af sjáv­ar­út­vegsauð­lind­inni. Hins vegar teldi hann það yrði ekki gert með því að „bjóða allar heim­ild­irnar upp“.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppboðsleiðin

FréttirUppboðsleiðin

Bylting í vændum? Meiri­hluti á Alþingi fylgj­andi upp­boði á afla­heim­ildum

Fjórir stjórn­mála­flokkar af sex á Alþingi eru fylgj­andi upp­boði á afla­heim­ildum í stað þess að úthluta þeim út frá veiði­reynslu. Flokk­arnir eru miss­ann­færðir í þess­ari afstöðu sinni og eru Píratar og Björt Framtíð með skýr­ustu stefn­una í mál­inu af stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum en Vinstri græn eru skept­ísk­ust. Þessi nið­ur­staða gengur í ber­högg við nið­ur­stöðu sátta­nefnd­ar­innar á síð­asta kjör­tíma­bili. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru alfarið á móti upp­boðs­leið­inni.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár