Þórshöfn í Færeyjum Mynd: Shutterstock

Litli maðurinn og hafið: Færeyska byltingin

Færeyska lands­stjórnin stefnir að því að bjóða upp fisk­veiði­heim­ildir, þvert gegn vilja útgerð­ar­manna sem hafa bók­fært veiði­leyfi sín sem eign. Georg L. Petersen, rit­stjóri á fær­eyska blað­inu Dimma­lætt­ing, skrifar um upp­boð á fisk­veiði­heim­ildum í Færeyjum.

Það reynd­ist þraut­inni þyngri fyrir vinnu­nefnd sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Færeyja, Högna Hoydal, að kom­ast að sam­komu­lagi og að gera til­lögu til laga­frum­varps um hvernig haga eigi fær­eyskri útgerð og fisk­veiði­stjórnun í fram­tíð­inni. Nefndin skil­aði 248 síðna áliti.

Formaður nefnd­ar­innar, Johnny í Grótinum, hafði fulla stjórn á efn­inu þegar það var lagt fram í Þórshöfn á dög­unum. „Nýtt og var­an­legt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­komu­lag fyrir Færeyjar“ er heiti álits nefnd­ar­innar sem hún afhenti ráð­herra við það tæki­færi.

Áður en nefndin hélt til starfa var að miklu leyti búið að binda hana á höndum og fótum – veiði­rétt­indi skyldu seld á opin­berri upp­boðs­sölu.

Sér­fræð­ingar og stjórn­un­ar­á­ætlun skyldu vera grund­völl­ur­inn undir stjórnun veiði­á­lags. Þetta var ekki til umræðu og er nefnt á fleiri stöðum í álit­inu, og sér­stak­lega þar sem nefndin tekur sölu fisk­veiði­heim­ilda á upp­boði til með­ferðar.

„Enn einu sinni skal þess getið að nefnd­inni er skipað að gera til­lögu að upp­boðs­kerfi, og því er hún ekki beðin um mat á hvort upp­boðs­kerfið sé

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppboðsleiðin

FréttirUppboðsleiðin

Bylting í vændum? Meiri­hluti á Alþingi fylgj­andi upp­boði á afla­heim­ildum

Fjórir stjórn­mála­flokkar af sex á Alþingi eru fylgj­andi upp­boði á afla­heim­ildum í stað þess að úthluta þeim út frá veiði­reynslu. Flokk­arnir eru miss­ann­færðir í þess­ari afstöðu sinni og eru Píratar og Björt Framtíð með skýr­ustu stefn­una í mál­inu af stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum en Vinstri græn eru skept­ísk­ust. Þessi nið­ur­staða gengur í ber­högg við nið­ur­stöðu sátta­nefnd­ar­innar á síð­asta kjör­tíma­bili. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru alfarið á móti upp­boðs­leið­inni.

Mest lesið undanfarið ár