Spurði út í hagsmunatengsl vegna björgunarpakka

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hvort ráð­herrar hefðu rætt um mögu­leg hags­muna­tengsl sín í ljósi umfangs­mik­illa efna­hags­að­gerða sem nú er verið að grípa til vegna heims­far­ald­urs­ins.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að því, í óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn á Alþingi í gær, hvort rík­is­stjórnin hefði átt ein­hverja umræðu um hags­muna­mat ein­stakra ráð­herra gagn­vart þeim umfangs­miklu efn­hags­að­gerðum sem nú er verið er að ráð­ast í til að sporna við áhrifum heims­far­ald­urs­ins.

„Hefur rík­is­stjórnin rætt um ein­hver hags­muna­tengsl innan sinna raða? Hefur það komið til tals, að mögu­legu séu ráð­herrar á, að minnsta kosti á gráu svæði, þegar kemur að hæfi sínu í að gera þessar aðgerðir vegna tengsla sinna við fyr­ir­tæki sem aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar hafa veru­leg áhrif á. Hefur þetta verið rætt, eða kemur til greina að ræða það?“ spurði Þór­hildur Sunna.

Katrín svar­aði því til að auð­vitað gætu ráð­herrar sagt sig frá málum, ef þau vörð­uðu þeirra per­sónu­legu hags­muni. „Um það eru dæmi. Það hefur ekki gerst í tengslum við þessar aðgerðir,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra, en svar­aði því hins vegar ekki, hvort umræða hefði átt sér stað innan rík­is­stjórn­ar­innar um þessi mál.

Hæfi ráðherra nýlega til umræðu

Þór­hildur Sunna er for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, en sú nefnd hefur meðal ann­ars frum­kvæði að því að kanna ákvarð­anir ein­stakra ráð­herra og verk­lag þeirra. Málefni sem varða hæfi ráð­herra til að taka ákvarð­anir sem varða hags­muni ein­stakra einka­fyr­ir­tækja hafa nýverið verið á borði nefnd­ar­innar.

Í des­em­ber réð­ist nefndin í frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í ljósi tengsla hans við Samherja.

Ráð­herr­ann hafði sjálfur lýst því yfir í stöðu­upp­færslu á Facebook í des­em­ber 2017, eftir að gagn­rýni kom fram vegna tengsla hans við Samherja og ára­tuga­vin­áttu við Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra og einn aðal­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, að hann myndi meta hæfi sitt í málum sem vörð­uðu fyr­ir­tækið „líkt og allir stjórn­mála­menn þurfa að gera þegar fjöl­skyld­u-, vina- og kunn­ingja­tengsl gætu haft áhrif á afstöðu til ein­stakra mála“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár