Kári útskýrir brot Sigmundar Davíðs og býður honum að flytja til Panama

Kára Stef­áns­syni ofbýður full­yrð­ing Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í Kast­ljós­inu. Samkvæmt siða­reglum þing­manna og ráð­herra bar Sigmundi að upp­lýsa um hálfs millj­arðs króna kröfu aflands­fé­lags sem hann og eig­in­kona hans stofn­uðu í gegnum pana­ma­íska lög­fræði­stofu með hjálp Lands­bank­ans í Lúx­em­borg. „

Kári Stefánsson og Sigmundur Davíð
Kári Stef­áns­son og Sig­mundur Davíð For­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar býður fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra að flytja til Panama og í stað áfram­hald­andi þing­starfa. Mynd: Samsett mynd / Stundin

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, skrifar Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, opið bréf í dag, í kjöl­far full­yrð­ingar Sig­mundar Davíðs að staða hans gagn­vart þrota­búum íslensku bank­anna væri í eðli sínu sú sama og ann­arra Íslend­inga.

Sig­mundur var eig­andi að aflands­fé­lag­inu Wintris, ásamt eig­in­konu sinni, sem átti um hálfs millj­arðs króna kröfu í þrotabú íslensku bank­anna. Það er að segja, áður en Sig­mundur seldi eig­in­konu sinni sinn helm­ings­hlut í Wintris á einn doll­ara dag­inn áður en reglur tóku gildi sem gerðu skylt að upp­lýsa um eign­ar­hlut­inn.

„Allar þessar kröfur eru kröfur sem eru í eðli sínu eins og kröfur alls þess fólks sem átti pen­inga í bönk­unum fyrir hrun,“ sagði Sig­mundur í við­tali við Kast­ljósið.

„Þú veist að þetta er steypa“

Kári gagn­rýnir Sigmund harð­lega fyrir ranga lýs­ingu á stöð­unni. „Ég er ekki í nokkrum vafa um það Sig­mundur Davíð að þú veist að þetta er steypa. Fólkið sem átti pen­inga í bönk­unum fyrir hrun eign­að­ist ekki kröfur í þrotabú bank­anna við hrunið. Þeir sem eign­uð­ust kröfur í þrotabú bank­anna voru þeir sem tóku þótt í fjár­mögnun þeirra á annan máta en með því að eiga í þeim sparifé. Fyrir hrun voru þessar kröfur nær alfarið í eigu stórra stofn­ana og pen­inga­mark­aðs­sjóða. Það var ekki fyrr en undir það síð­asta, rétt fyrir fall bank­anna, að farið var að selja kröf­urnar á spott­prís og lítil eign­ar­halds­fé­lög eins og Wintris fóru að kaupa þær. Eftir hrun voru þær svo á útsölu og hljóta að hafa verið góð kaup þeim sem töldu sig vita hvernig íslensk stjórn­völd myndu halda á málum, að maður tali nú ekki um þá sem réðu því.“

Kári lýsir því sem sið­leysi af Sigmundi að hafa leynt almenn­ing hags­muna­tengslum sínum, á sama tíma og hann fór með umboð almenn­ings til að beita sér í samn­ingum við kröfu­hafa.

„... þá er það samt sið­laus glæpur að upp­lýsa ekki þjóð­ina um þennan eign­ar­hlut.“

MótmæltUm 26 þús­und manns mót­mæltu á Aust­ur­velli í kjöl­far upp­ljóstrana á leyndum hags­munum Sig­mundar Davíðs.

Sig­mundur gekk út úr við­tali við sænska frétta­skýr­ing­ar­þátt­inn Uppdrag Granskning þegar hann var spurður út í Wintris, eftir að hafa hafnað því að hann kann­að­ist við það. Það var ein­ungis eftir að við­talið var tekið sem eig­in­kona Sig­mundar ljóstr­aði upp um til­vist félags­ins.

„Sem for­sæt­is­ráð­herra barst þú end­an­lega ábyrgð á þeim samn­ingum sem voru gerðir við kröfu­haf­ana og lést samt engan vita að þú værir einn af þeim,“ skrifar Kári. „Þú varst beggja vegna borðs­ins í þeim samn­ingum. Þótt við göngum út frá því sem vísu að kröf­urnar sem þú áttir hafi ekki haft áhrif á það hvernig þú tókst afstöðu til samn­ing­anna, þá er það samt sið­laus glæpur að upp­lýsa ekki þjóð­ina um þennan eign­ar­hlut.“

Það sem Kári segir um brot á sið­ferð­is­reglum á sér stoð í form­legum siða­reglum ráð­herra og þing­manna, sem voru í gildi þegar Sig­mundur hélt beinum og óbeinum tengslum sínum við Wintris leyndum.

Stangaðist á við siðareglur

Sigmundi var skylt, sam­kvæmt reglum for­sætis­nefndar Alþingis frá mars 2009, að upp­lýsa um hlut­inn sinn í Wintris, en það gerði hann ekki. Þá er skýrt kveðið á um það í siða­reglum ráð­herra að þeim beri að upp­lýsa um hags­muni sína. 

„Ráðherra upp­lýsir um fjár­hags­leg hags­muna­tengsl eða önnur slík tengsl sem valdið geta hags­muna­á­rekstum,“ segir í siða­regl­unum í þeirri útgáfu sem var í gildi frá 2011 til 2016. 

Um leið og Sig­mundur vék sem for­sæt­is­ráð­herra tóku við skýr­ari og strang­ari sið­ar­glur, þar sem sér­stak­lega var kveðið á um fjöl­skyldu­tengsl: „Ráðherra forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar og gætir þess að per­sónu­leg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.“

„Takist honum ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.“

Þannig voru siða­reglur ráð­herra upp­færðar til sam­ræmis við siða­reglur þing­manna, sem Sig­mundur stóðst ekki þegar hann leyndi hags­munum sínum gagn­vart íslensku bönk­unum: „Þingmenn skulu við störf sín forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða ann­arra per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar. Takist þing­manni ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.“

Þá er ljóst að það var í höndum Sig­mundar Davíðs sjálfs, sem for­sæt­is­ráð­herra, að stýra því að hags­munir ráð­herra væru allir uppi á borð­inu, eins og sagði í siða­reglum ráð­herra: „... For­sæt­is­ráð­herra getur í sam­ráði við rík­is­stjórn ákveðið að kalla með skipu­lögðum hætti eftir frek­ari upp­lýs­ingum um hags­muna­tengsl ráð­herra sem birtar yrðu almenn­ingi.“

Biður Sigmund að flytja til Panama

Kári beinir orðum sínum til Sig­mundar og segir að „sú stað­reynd að þú varst einn af kröfu­höf­unum sem þú varst að semja við fyrir okkar hönd geri það að verkum að við viljum þig ekki nálægt Alþingi og fynd­ist eðli­legt að þú flytt­ist til Panama.“

Það var í Panama sem lög­fræði­stofan Mossack Fonseca starf­aði, en félagið Winstris var í umsjón lög­fræði­stof­unnar sem til­búið aflands­fé­lag þegar Sig­mundur og Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona hans, tóku við því í gegnum eigna­stýr­ingu Lands­bank­ans í Lúx­em­borg. Óskað var eftir því að eig­endur félags­ins yrðu þau tvö, með 50 pró­sent hlut hvort.

Sig­mundur hefur ekki beðist afsök­unar á því að leyna almenn­ing hags­munum sínum. Hann baðst hins vegar afsök­unar á „frammi­stöðu“ sinni í við­tal­inu við Uppdrag Granskning. Þá hefur hann hins vegar farið fram á að Rík­is­út­varpið biðji sig afsök­unar.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár