Greiðslur vegna launa í sóttkví mun lægri en reiknað var með

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna launa­greiðslna til þeirra sem hafa þurft að sæta sótt­kví eru ein­ungis um tíu pró­sent af því sem gert hafði verið ráð fyrir. Kostn­að­ur­inn nemur 191 milljón króna en hafði verið áætl­aður um tveir millj­arðar króna.

Á þriðja tug þúsund manns hafa lokið sóttkví á Íslandi.
Á þriðja tug þús­und manns hafa lokið sótt­kví á Íslandi. Mynd: EPA

Alls hafa verið greiddar út 191 milljón króna vegna launa fólks sem þurft hefur að fara í sótt­kví vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, en hægt var að sækja um greiðslu frá Vinnu­mála­stofnun vegna þessa til 1. júlí síð­ast­lið­ins.

Gert hafði verið ráð fyrir því að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna launa­greiðslna í sótt­kví yrði um tveir millj­arðar króna og því ljóst að heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna aðgerð­ar­innar verður mun lægri en áður var talið.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem inni­heldur yfir­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerða stjórn­valda vegna COVID-19, og var lagt fyrir rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Þar segir enn fremur að mun færri hafa nýtt sér úrræðið en reiknað var með „þrátt fyrir að 23.604 hafi lokið sótt­kví frá því í lok febr­úar.“

Samkomulag við upphaf faraldurs

Rík­is­stjórn­in, Sam­tök atvinnu­lífs­ins og Alþýðu­sam­band Íslands komust að sam­komu­lagi um hvernig staðið verði að launa­greiðslum til fólks sem þarf að vera í sótt­kví vegna COVID-19 5. mars síð­ast­lið­inn, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var farin að láta veru­lega á sér kræla hér­lendis.

[adspot]Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá aðil­unum þremur kom fram að í sam­komu­lag­inu fælist að Sam­tök atvinnu­lífs­ins myndu beina þeim til­mælum til atvinnu­rek­enda að laun yrðu greidd til ein­stak­linga sem sæta sótt­kví að fyr­ir­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda og að Alþýðu­sam­band Íslands myndi beina þeim til­mælum til aðild­ar­sam­taka sinna að sjóð­fé­lagar í sjúkra­sjóðum þeirra sem sýkj­ast nytu óskertra greiðslna úr sjóð­unum að tæmdum veik­inda­rétt­i.

Stjórn­völd myndu svo beita sér fyrir því að breyt­ingar yrðu gerðar á lögum um sjúkra­trygg­ingar í þá veru að atvinnu­rek­andi sem greiðir launa­manni, sem sætt hefur eða mun sæta sótt­kví, laun, „geti krafið sjúkra­trygg­ingar um end­ur­greiðslu kostn­aðar upp að ákveðnu hámarki séu til­teknar aðstæður fyrir hendi eins og til dæmis að launa­maður geti ekki sinnt vinnu heiman frá sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár