Íslenskir háskólar fjársveltir miðað við nágrannalöndin

Háskóla Íslands vantar að minnsta kosti 60 pró­sent meira fjár­magn til að ná með­al­tali OECD. Ísland er eina landið sem ver meiri fjár­munum í hvern grunn­skóla­nem­anda en háskóla­nem­anda. „Ískyggi­legar tölur" segir pró­fessor.

Háskóla Íslands vantar um 60 prósent meira fjármagn til að ná meðaltali OECD ríkjanna.
Háskóla Íslands vantar um 60 pró­sent meira fjár­magn til að ná með­al­tali OECD ríkj­anna. Mynd: Kjarninn.

Fjár­fram­lög íslenskra stjórn­valda til háskóla er mun lægra heldur en á sam­an­burð­ar­lönd­unum. Íslensk stjórn­völd verja innan við tveimur pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu í vís­inda­rann­sóknir og þróun á háskóla­sviði. Háskóla Íslands vantar að minnsta kosti 60 pró­sent meira fjár­magn til að ná með­al­tali OECD. Um 130 pró­sent vantar til að ná með­al­tali fjár­fram­lags hinna Norð­ur­land­anna til rann­sókna og þró­unar. 

Markmiðum ekki náð

Fjár­veit­ingar rík­is­ins til háskóla 2014 voru rúmir 16 millj­arðar króna. Vísinda- og tækni­ráð, sem starfar undir for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og hefur það hlut­verk að efla vís­inda­rann­sóknir, vís­inda­menntun og tækni­þróun í land­inu, mót­aði stefnu fyrir árin 2014 til 2016 þar sem mark­miðið var að verja þremur pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu í vís­inda­rann­sóknir og þróun. Eins og áður segir, er hlut­fallið samt sem áður innan við tvö pró­sent.

Magnús Karl Magn­ús­son, deild­ar­for­seti lækna­deildar og pró­fessor í lyfja- og eit­ur­efna­fræði við Háskóla Íslands, hélt erindi um fjár­veit­ingar til háskóla í hádeg­inu í dag. Hann segir töl­urnar ískyggi­legar.

„Hlut­fallið er lægra en við héldum. Á árunum 1999 til 2010 juku Norð­ur­landa­þjóð­irnar fjár­magn til háskóla per hvern stúd­ent um 38 til 118 pró­sent, á meðan Íslend­ingar á sama tíma juku um 7,7 pró­sent. Meðaltal OECD jókst á sama tíma um 46 pró­sent,” segir Magnús. „Með öðrum orðum, við erum að fljóta sof­andi að feigðar­ósi.” 

Alvarlegar afleiðingar að fjársvelta kerfið

Magnús segir Ísland eina OECD ríkið sem eyði meiri fjár­munum í grunn­skóla­nem­endur en háskóla­nem­endur. Að fjársvelta háskóla­kerfið geti haft alvar­legar afleið­ingar.

„Nýliðun innan skól­anna er allt of lítil og þannig sköpum við ekki tæki­færi fyrir okkar best mennt­aða vís­inda­fólk sem er til­búið að starfa hvar sem er í heim­inum,” segir hann. „Fjármagn til rann­sókna er af mjög skornum skammti.” Um sé að ræða stór­kost­legt hags­muna­mál fyrir fram­tíð íslenskrar þjóðar. Engin þjóð hafi náð að halda í við sam­keppni eða auka vel­ferð án mennt­unar.

„Ég held að þetta sé stærsta mál sem þarf að takast á við næsta ára­tug­inn hér á Íslandi. Það hefur eng­inn póli­tískur flokkur tekið mála­flokk­inn í for­gang, því miður. Háskóla­fólk hefur líka þagað alltof lengi,” segir Magnús.

Máttlausir stjórnmálamenn

Á síð­asta ári voru heild­ar­tekjur Háskóla Ísland um 17 millj­arðar og þar af voru beinar fjár­veit­ingar um 11,8 millj­arðar. Til að ná Norð­ur­lönd­unum þyrfti HÍ að afla sér um 38,5 millj­arða í tekjur og þar af þyrfti föst fjár­veit­ing að vera rúm­lega 26 millj­arðar í stað 11,8 í dag. 

„Vöxtur háskóla um allan heim er gíf­ur­legur,” segir Magnús. „Skýr­ingar á þeim vexti er ekki að finna í fjölgun nem­enda, enda eru þessar tölur allar leið­réttar fyrir fjölda nema á hák­sól­a­stigi. Þarna er um að ræða stór­auknar fjár­fest­ingar í háskóla­stig­inu, bæði til að auka gæði náms og stór­auka rann­sóknir og nýsköpun þess­ara lyk­il­stofnan í sam­fé­lag­inu.”

Menntun virð­ist vera lít­ils metin í íslensku sam­fé­lagi, að mati Magnúsar og segir hann háskóla­menntun og aðra starfs­menntun virð­ist sitja þar sér­stak­lega á hak­anum.

„Það er ekk­ert póli­tískt afl sem setur mennta, vís­inda og nýsjköp­un­ar­mál á odd­inn sem er mjög sér­kenni­legt. Ekki síst má nefna að hás­kól­fólk hefur setið og þagað um sinn mik­il­væga mála­flokk alltof lengi. Þessu þarf að breyta.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár