Tilkynntum kynferðisbrotum fækkar innan kirkjunnar

Fagráði þjóð­kirkj­unnar um kyn­ferð­is­brot barst eitt erindi árið 2014 og varð­aði það æsku­lýðs­starf. Þrjú erindi varð­andi ráð­gjöf bár­ust á árinu. Þetta er mikil fækkun fá árinu áður, þegar fimm erindi bár­ust.

Dómkirkjan og Alþingishúsið í miðborg Reykjavíkur.
Dóm­kirkjan og Alþing­is­húsið í mið­borg Reykja­víkur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eitt erindi tengt kyn­ferð­is­broti innan æsku­lýðs­starfs kirkj­unnar var til­kynnt til fagráðs þjóð­kirkj­unnar um kyn­ferð­is­brot árið 2014. Málinu var vísað til barna­vernd­ar­nefndar. Fagráð­inu bár­ust einnig þrjú erindi 2014 þar sem óskað var eftir ráð­gjöf, hvar eitt erindið var frá fyrra ári. Þetta kemur fram í árbók þjóð­kirkj­unnar fyrir árið 2014 til 2015.

Þar kemur einnig fram að eitt af erind­unum var ósk um ráð­gjöf vegna fyr­ir­spurna fjöl­miðla um mál sem starfs­maður kirkju hafði komið að sem stuðn­ings­að­ili þolenda. Í öðru til­viki óskaði biskup aðkomu fagráðs vegna erindis sem varð­aði gam­alt heim­il­is­of­beld­is­mál. Gerandi í því til­viki hafði gegnt ábyrgð­ar­hlut­verki innan kirkj­unnar.

Þriðja til­vikið varð­aði fyr­ir­spurn um útlán kirkju og sam­starf safn­aðar við utan­að­kom­andi aðila um tón­leika­hald, eftir að upp kom að einn for­svars­manna tón­leik­anna hefur verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni.

Fimm tilkynningar um kynferðisbrot 2013

Fagráð þjóð­kirkj­unnar um með­ferð kyn­ferð­is­brota var stofnað árið 1998. Næstu 11 ár eftir það bár­ust ein­ungis þrjár til­kynn­ingar. Þegar umræðan um kyn­ferð­is­brot innan kirkj­unnar komst í hámæli 2010 komu tíu til­kynn­ingar inn á borð fagráðs­ins. Tilkynnt var um fjóra starfs­menn kirkj­unnar 2011 og tvo 2012.

Árið 2013 bár­ust fagráð­inu fimm erindi sem vörð­uðu kyn­ferð­is­brot. Einu mál­inu var vísað til barna­vernd­ar­nefndar, þremur var lokið á árinu og eitt var einn í vinnslu við lok árs­ins og er það málið sem vísað er í árið 2014. Tvö mál­anna voru ásökun um kyn­ferð­is­brot af hendi ein­stak­linga í þjón­ustu kirkj­unnar. Þá barst einnig eitt erindi þar sem sókn­ar­prestur og sókn­ar­nefnd­ar­for­maður báðu fagráðið um að fara yfir verk­lag sem þau höfðu við­haft í kjöl­far ábend­ingar um að dæmdur kyn­ferð­is­brota­maður starf­aði innan safn­að­ar­ins. Þetta kemur fram í árbók kirkj­unnar fyrir árin 2013 til 2014.

Ekki var hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar fyrir árið 2015 fyrr en árbók kirkj­unnar verður gefin út í haust. Elína Hrund Krist­jáns­dóttir sókn­ar­prestur tók við sem for­maður fagráðs­ins síð­asta sumar af Gunnari Rúnari Matth­í­assyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár