Samherji fær að sleppa við yfirtökuskyldu á Eimskip

Samherji þarf ekki að taka yfir Eimskip þrátt fyrir að hafa skapað yfir­töku­skyldu. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að að vegna COVID-19 eigi að veita und­an­þágu frá yfir­töku­skyld­unni.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, og Þorsteinn Már Baldvinsson, sem steig niður úr forstjórastólnum tímabundið í nóvember 2019 en settist aftur í hann nýverið.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, og Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem steig niður úr for­stjóra­stólnum tíma­bundið í nóv­em­ber 2019 en sett­ist aftur í hann nýverið. Mynd: Samherji

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur veitt Samherja Holding, ann­ars hluta Sam­herj­a­sam­stæð­unnar und­an­þágu frá yfir­tökutil­boðs­skyldu í Eimskip þar sem eft­ir­litið telur „að núver­andi aðstæður á fjár­mála­mark­aði í ljósi Covid-19, bæði hér á landi og í heim­inum öllum, séu með þeim hætti að skil­yrði 5. mgr. 100. gr. verð­bréfa­við­skipta­laga um sér­stakar aðstæður séu upp­fyllt.

Fjár­mála­eft­ir­litið telur að vernd­ar­hags­munir yfir­töku­reglna lag­anna séu tryggðir og að með veit­ingu und­an­þágu frá til­boðs­skyldu sé, eins og atvikum máls­ins er háttað, ekki gengið á minni­hluta­vernd ann­arra hlut­hafa.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands.

Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, segir að það séu mjög sér­stakar og óvenju­legar aðstæður á fjár­mála­mark­aði. „Við töldum því ekki skyn­sam­legt að til­boð um yfir­töku færi fram í skugga þessa umróts en við vonum að aðstæður verði heppi­legri síðar. Eins og við höfum sagt áður þá hefur trú okkar á fram­tíð Eimskips ekk­ert breyst.“

[adspot]Sam­herji Hold­ing sendi fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands erindi 20. mars síð­ast­lið­inn þar sem félagið óskaði eftir und­an­þágu frá yfir­töku­skyldu sem mynd­að­ist eftir að félagið eign­að­ist yfir 30 pró­sent eign­ar­hlut í Eim­skip, tíu dögum áður.

Samherji Holding seldi sig í kjöl­farið niður fyrir 30 pró­senta markið í Eimskip.

Sam­stæða með mikla fjár­fest­inga­getu

Hlut­hafa­fundir Sam­herja sam­­þykkti 11. maí 2018 að Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unni yrði skipt upp í tvennt. Skipt­ingin var látin miða við 30. sept­­em­ber 2017. Eftir það er inn­­­­­lendu starf­­­sem­in og starf­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­­sem­i og hluti af fjár­­­fest­ing­­ar­­starf­­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Hold­ing ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­­ur­­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lagi á Ísland­i.

Sam­eig­in­legt eigið fé félag­anna tveggja sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una, og eitt stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi, var 111 millj­arðar króna í lok árs 2018. Fjár­fest­inga­geta þeirra er því mik­il.

Félögin tvö stunda ekki ein­ungis við­­skipti með sjá­v­­­ar­af­­urð­­ir. Sam­herji hf. á til að mynda stóran hlut í smá­­­söluris­­­anum Hög­um, en það er sjötti stærsti hlut­hafi þess með 4,22 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Sam­herji Hold­ing ehf. er síðan stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­­­skip, með nú 30,11 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Bald­vin Þor­­­­steins­­­­son, sonur Þor­­­­steins Más og fram­­­kvæmda­­­stjóri við­­­skipta­­­þró­unar hjá Sam­herja, er stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Eim­­­skips og í jan­úar í fyrra var Vil­helm Már Þor­­­steins­­­son, frændi þeirra, ráð­inn sem for­­­stjóri skipa­­­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár