Miðflokkurinn nálgast kjörfylgi sitt á ný

Áhrif Klaust­ur­máls­ins á fylgi stjórn­mála­flokka virð­ast vera að ganga til baka og Mið­flokk­ur­inn, sem var í aðal­hlut­verki í því máli, mælist nú með nákvæm­lega sama fylgi og Framsókn. Erfitt gæti verið að mynda meiri­hluta­stjórn miðað við fylgi flokka í dag.

Í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum, sem fram fóru 28. októ­ber 2017, fékk Mið­flokk­ur­inn, þá nokk­urra vikna gam­all stjórn­mála­flokkur sem stofn­aður var utan um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, 10,9 pró­sent atkvæða.

Það var ívið meira fylgi en spár höfðu gert ráð fyrir í aðdrag­anda kosn­ing­anna þótt ekki skeik­aði miklu.

Fylgi Mið­flokks­ins dal­aði síðan í kjöl­far kosn­ing­anna og fór niður í 5,8 pró­sent í lok árs 2017. Í fyrra óx það síðan jafnt og þétt og var orðið 8,7 pró­sent sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup í lok sum­ars og heil tólf pró­sent í lok nóv­em­ber það ár. Flokk­ur­inn var á flugi.

Þá kom Klaust­ur­málið upp. Það sner­ist um upp­töku af drykkju og nið­ur­lægj­andi orð­ræðu fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins, þar á meðal allri stjórn hans, og tveggja þing­manna Flokks fólks­ins, um meðal ann­ars aðra stjórn­mála­menn, fatl­aða og sam­kyn­hneigða. Auk þess heyrð­ist á upp­tök­unni umræður um að fá þing­menn Flokks flokks­ins yfir í Mið­flokk­inn og umræður um greiða­semi við sendi­herra­skipan þegar for­maður og vara­for­maður Mið­flokks­ins sátu í rík­is­stjórn á sínum tíma.

Klaust­ur­málið rúm­lega helm­ing­aði fylgi Mið­flokks­ins og það mæld­ist 5,7 pró­sent í lok des­em­ber. Síðan þá hefur það risið jafnt og þétt og í Þjóð­ar­púlsi Gallup sem birtur var í gær mæld­ist það níu pró­sent.

Mið­flokk­ur­inn er því að nálg­ast kjör­fylgi sitt og mælist nú stærri en hann gerði í lok ágúst í fyrra.

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur standa í stað

Mið­flokk­ur­inn er klofn­ings­flokkur úr Fram­sókn­ar­flokknum. Flestir lyk­il­menn hans fylgdu Sigmundi Davíð þaðan í kjöl­far þess að hann missti for­ystu­hlut­verk sitt þar. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn naut góðs af Klaust­ur­mál­inu í könn­unum fyrst um sinn, bætti við sig tæp­lega fjórum pró­sentu­stigum og mæld­ist með 11,4 pró­sent fylgi um síð­ustu ára­mót. Það var mesta fylgi sem hann hafði mælst með á árinu 2018 í könn­unum. Síðan þá hefur fylgið dalað eilítið en stendur í stað milli síð­ustu tveggja kann­ana og mælist níu pró­sent. Því mælist fylgi Fram­sóknar nákvæm­lega það sama og klofn­ings­flokks­ins Mið­flokks­ins eins og er.

Hinn flokk­ur­inn sem Mið­flokk­ur­inn þykir lík­leg­astur til að kroppa fylgi af er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Fylgi hans stendur hins vegar í stað á milli kann­ana, mælist slétt 25 pró­sent, sem er nán­ast kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum. Því er ljóst að aukið fylgi við Mið­flokk­inn virð­ist vera að koma ann­ars staðar að en frá Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokki.

Þrír tapa fylgi

Þeir flokkar sem tapa fylgi á milli síð­ustu kann­ana Gallup eru Sam­fylk­ing, Vinstri græn og Sós­í­alista­flokkur Íslands. Sam­fylk­ingin mæld­ist með 19,1 pró­sent fylgi í jan­úar en mælist nú 15,9 pró­sent, Vinstri græn mæld­ust með 12,3 pró­sent fylgi í lok febr­úar en mæl­ast nú með pró­sentu­stigi minna og Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með um eða yfir fimm pró­sent fylgi í síð­ustu könn­unum, en er nú með 3,5 pró­sent.

Allt eru þetta flokkar sem eru ansi ólíkir Mið­flokknum, bæði í áferð og stefnu.

Viðreisn bætir lít­il­lega við sig milli kann­ana og fengi 10,3 pró­sent atkvæða ef kosið væri í dag og Píratar standa í stað með stuðn­ing 11,6 pró­sent kjós­enda.

Flokkur fólks­ins er sá eini þeirra átta flokka sem eiga full­trúa á Alþingi í dag sem mælist ekki með mann inni. Fylgi hans mælist ein­ungis 3,7 pró­sent, en stutt er síðan að tveir brottreknir þing­menn úr flokknum, Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, gengu til liðs við Mið­flokk­inn. Þeir voru báðir á meðal þeirra sex þing­manna sem sátu á Klaust­ur­barnum seint í nóv­em­ber í fyrra.

Erfitt að sjá ríkisstjórn í kortunum

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír: Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur mæl­ast sam­an­lagt með 45,6 pró­sent fylgi sem myndi lík­ast til ekki duga til að mynda meiri­hluta­stjórn. Líkt og áður sagði er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að mæl­ast nán­ast í kjör­fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er rétt undir sínu. Vinstri græn er áfram sem áður sá flokkur sem tapar mestri póli­tískri inni­stæðu á rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu sam­kvæmt mæl­ingum, en fylgi flokks­ins mælist nú 5,3 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi. Það þýðir að tæp­lega þriðji hver kjós­andi hefur yfir­gefið Vinstri græn frá því í síð­ustu þing­kosn­ingum.

Frjáls­lynda miðju­blokk­inn, sem sam­anstendur af Sam­fylk­ingu, Pírötum og Viðreisn, mæld­ist með 40,9 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í jan­úar og hefði við slíkar aðstæður getað myndað rík­is­stjórn með annað hvort Fram­sókn­ar­flokki eða Vinstri grænum ef kosið hefði verið á þeim tíma, þótt sá meiri­hluti yrði með tæp­asta móti. Síðan þá hefur sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna lækkað og mælist nú 37,8 pró­sent. Það er til marks um hversu flókin hin póli­tíska staða er um þessar mundir að þeir þrír flokkar gætu ekki myndað rík­is­stjórn með meiri­hluta atkvæða á bak við sig án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks nema að að slík myndi inni­halda tvo aðra flokka.

Mörg atkvæði á flokka sem næðu ekki inn

Sós­í­alista­flokkur Íslands hafði verið á umtals­verðri sigl­ingu í könn­unum upp á síðkastið og mælst með nægj­an­legt fylgi til að ná inn manni í tveimur Þjóð­ar­púlsum Gallup í röð. Fylgi hans lækkar nú um 1,5 pró­sentu­stig og stendur í 3,5 pró­sentum sem myndi ekki duga til að ná inn þing­manni ef kosið yrði nú.

Skammt fyrir ofan Sós­í­alista­flokk­inn í nýj­ustu könnun Gallup er Flokkur fólks­ins með 3,7 pró­sent fylgi sem myndi heldur ekki duga til að ná inn manni.

Það þýðir að ef kosið yrði í dag gætu um 7,6 pró­sent atkvæða þeirra sem taka afstöðu fallið niður dauð. Af öllum sem svör­uðu könn­un­inni sögð­ust þó rúm­lega 13 pró­sent að þeir myndu skila inn auðu eða ekki kjósa og tæp­lega tíu pró­sent neit­uðu að gefa upp afstöðu sína. Slík staða gæti haft veru­leg áhrif á það hvernig þing­menn myndu rað­ast á aðra flokka.

Það er þó erfitt að sjá, úr þeim fylgis­tölum sem birt­ast í könn­unum um þessar mundir, að nokkur flokkur ætti að vera spenntur fyrir því að fara í kosn­ingar í bráð. Sitjandi rík­is­stjórn myndi ekki ná meiri­hluta atkvæða á bak við sig, sú blokk stjórn­ar­and­stöð­unnar sem hefur áhuga á að mynda kjöl­festu í næstu rík­is­stjórn nýtur ekki nægj­an­legs fylgis til að láta þann draum ræt­ast og eng­inn mögu­leiki virð­ist vera fyrir Mið­flokk­inn að mynda rík­is­stjórn þar sem nær allir flokkar með mæl­an­legt fylgi, utan Sjálf­stæð­is­flokks, hafa opin­ber­lega eða í einka­sam­tölum úti­lokað sam­starf við hann.

Nið­ur­stöð­urnar eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 1. til 31. mars 2019. Heild­ar­úr­taks­stærð var 6.705 og þátt­töku­hlut­fall var 55,4 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokk­anna í könn­un­inni eru 0,2-1,6 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár