Mikill munur á fylgi frjálslyndu flokkanna eftir könnunum

Maskína mælir stöðu Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata mun sterk­ari en hún mælist í könn­unum MMR og Gallup. Fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist hins vegar svipað hjá Maskínu og hjá MMR.

Formenn og talsmenn þeirra flokka sem eiga fulltrúa á Alþingi nú í kappræðum í sjónvarpssal í aðdraganda kosninganna 2017.
Formenn og tals­menn þeirra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi nú í kapp­ræðum í sjón­varps­sal í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þrír flokkar í stjórn­ar­and­stöðu, sem hafa unnið nokkuð náið saman á þessu kjör­tíma­bili, skil­greina sig sem frjáls­lynda og eru með margar sam­bæri­legar áherslur í sínum stefnum, mæl­ast með sam­an­lagt 47 pró­sent fylgi í könnun Maskínu. Þetta eru Sam­fylk­ingin, sem mælist með 19 pró­sent fylgi, og Viðreisn og Píratar, sem mæl­ast báðir með 14 pró­sent stuðn­ing.

Yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga þá myndu þessir flokkar bæta sam­an­lagt við sig 19 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. Sam­eig­in­lega fylgi Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata mælist hins vegar einu pró­sentu­stigi minna en það gerði í könnun Maskínu sem birt var í byrjun des­em­ber 2018, þegar fylgið mæld­ist 48 pró­sent.

[adspot]Þetta er mun meira fylgi en flokk­arnir þrír hafa mælst með í reglu­legum könn­unum Gallup og MMR á þessu kjör­tíma­bili. Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ust þeir með 36,9 pró­sent fylgi og hjá MMR mæld­ust þeir með 36,7 pró­sent. Fylgi flokk­anna þriggja hefur hald­ist nokkuð stöðugt á þessum slóðum allt kjör­tíma­bilið hjá bæði Gallup og MMR og aldrei mælst í þeim hæðum sem það mælist hjá Maskínu. 

Ekki gert ráð fyrir Sósíalistaflokknum

Ein skýr­ingin er sú að Maskína virð­ist ein­ungis spyrja um stuðn­ing við þá átta flokka sem nú þegar eiga full­trúa á Alþingi. Sam­an­lagt fylgi þeirra í könnun fyr­ir­tæk­is­ins mælist 99,9 pró­sent.

Í könn­unum bæði Gallup og MMR hefur Sós­í­alista­flokkur Íslands hins vegar verið að mæl­ast með fylgi sem gæti vel skilað honum mönnum inn á þing.

Í nýj­ustu könnun MMR mæld­ist sá flokkur til að mynda með meira fylgi en nokkru sinni áður, eða 5,2 pró­sent, og hjá Gallup mælist fylgið um þrjú pró­sent.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn náði manni inn í borg­ar­stjóri Reykja­víkur árið 2018 í einu kosn­ing­unum sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni tekið þátt í. Þá fékk hann 6,4 pró­sent atkvæða og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir tók sæti í borg­ar­stjórn fyrir hans hönd í kjöl­farið.

Mikill munur á stöðu stjórnarflokka

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír, Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, hafa allir mælst með sam­eig­in­lega mun minna fylgi í reglu­legum könn­unum síð­ustu miss­erin en þeir fengu þegar talið var upp úr kjör­köss­unum haustið 2017. Þá fengu þeir 52,8 pró­sent atkvæða en í nýj­ustu könn­unum MMR og Gallup hefur það sam­eig­in­lega fylgi ann­ars vegar mælst 38,6 pró­sent og hins vegar 43,1 pró­sent. Hvorugt myndi duga til að tryggja rík­is­stjórn­inni áfram­hald­andi setu.

Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist mjög svipað hjá Maskínu og það gerir hjá MMR, eða 36,7 pró­sent. Munurinn er vel innan skekkju­marka. Fylgi stjórn­ar­flokk­anna hefur hríð­fallið frá því að könnun Maskínu sem gerð var í byrjun des­em­ber 2018 var birt, en þá mæld­ist það 43 pró­sent.

[adspot]Ein breyta sem getur þar haft veru­leg áhrif er að fylgi Mið­flokks­ins var botn­frosið í des­em­ber 2018, beint í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins. Flokknum tókst hins vegar að ná vopnum sínum á árinu sem var að líða og mæld­ist um tíma sem næst stærsti flokkur lands­ins í könn­unum MMR. Nið­ur­brot á könn­unum hefur sýnt að Mið­flokk­ur­inn hafi upp­runa­lega tekið mikið fylgi af Fram­sókn­ar­flokknum en í seinni tíð líka tek­ist að ná mörgum fyrr­ver­andi kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks yfir á sitt band.

Í nýj­ustu könnun Maskínu mælist fylgi Mið­flokks­ins 12,1 pró­sent sem er svipað og það mæld­ist hjá Gallup í des­em­ber (12,9 pró­sent), en heldur lægra en það mæld­ist hjá MMR (14,3 pró­sent).

Ef kosið yrði í dag myndi Flokkur fólks­ins, sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu, verða eini flokk­ur­inn sem á full­trúa á þingi í dag sem myndi lík­lega ekki ná inn kjör­dæma­kjörnum þing­manni, en fylgi hans mæld­ist 4,1 pró­sent.

Maskína gerði könnun sína dag­anna 12. til 20 des­em­ber og um sex­tíu pró­sent af 914 svar­endum tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár