Það slokknaði á LED perunni

Rífandi gangur, millj­óna­samn­ingar við stór fyr­ir­tæki og fram­tíðin björt. Þetta var lýs­ing for­stjóra danska ljósa­fram­leið­and­ans Hes­alight haustið 2015. Nokkrum mán­uðum síðar var Hes­alight komið í þrot og við blasti risa­stórt fjársvika­mál.

Um síð­ustu alda­mót réð þrí­tugur maður, Lars Nørholt að nafni, sig til starfa hjá bók­halds­stofu í Kaup­manna­höfn. Hann hafði stundað nám við Við­skipta­há­skól­ann i Kaup­manna­höfn, án þess þó að ljúka prófi. Hjá bók­halds­stof­unni sinnti hann ýmsum verk­efnum, honum lík­aði starfið vel, en ætl­aði sér ekki að verða ein­hver eilífðar augna­karl í bók­hald­inu, eins og hann sagði síðar í blaða­við­tali.

Meðal þess sem Lars Nørholt hafði á sinni könnu var bók­hald hjá litlu inn­flutn­ings­fyr­ir­tæki. Þetta fyr­ir­tæki flutti inn LED ljósa­búnað, en rekst­ur­inn gekk brös­ug­lega og fyr­ir­tækið lagði upp laupana árið 2008. Lars Nørholt sagði síðar að hann hefði í upp­hafi hreint út sagt ekki haft hug­mynd um hvað þetta LED væri en hefði kom­ist á snoðir um að það væri „stórt“ í Kína. „Ég komst að því að LED ljósa­perur not­uðu aðeins brot af orku glóp­er­unnar og voru sagðar end­ast marg­falt lengur. Ég sá að þarna var mitt tæki­færi komið.“

Hesalight

Í árs­byrjun 2009 stofn­aði Lars Nørholt, ásamt nokkrum öðrum, fyr­ir­tækið Hes­alight. Hann var frá upp­hafi for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og pott­ur­inn og pannan í rekstr­inum. Ætlunin var að kaupa per­urnar í Kína en smíða annan búnað í Danmörku. Eftir að hafa kynnt sér nokkra kín­verska ljósa­fram­leið­endur náði hann samn­ingum við stórt fyr­ir­tæki þar í landi. Fyrsti við­skipta­vinur Hes­alight var útibú Super­best fyr­ir­tæk­is­ins (síðar Meny) í smá­bænum Viby skammt frá Hró­arskeldu. Þar var ljósa­bún­að­inum sem fyrir var skipt út fyrir LED búnað. Í stórri verslun eru mörg ljós og versl­un­ar­stjór­inn, sem fylgd­ist grannt með orku­notk­un­inni, sá strax að raf­magns­mælir­inn sner­ist mun hægar en hann gerði með „gömlu“ per­unum.

Lars Nørholt lagði frá upp­hafi áherslu á að ná til fyr­ir­tækja. Það er dýrt að skipta út ljósa­bún­aði en Lars Nørholt kunni ráð við því. Við­skipta­vinum bauðst að borga kostn­að­inn við nýju ljósin á löngum tíma, Hes­alight kall­aði fyr­ir­komu­lagið „pay as you save“, borg­aðu það sem þú sparar. Sem sé kaup­and­inn borg­aði Hes­alight mis­mun­inn á gamla reikn­ingnum og þeim nýja, þangað til kaup­verðið væri upp­greitt. Með þessu fyr­ir­komu­lagi þarf selj­and­inn (í þessu til­viki Hes­alight) að ráða yfir miklu fjár­magni, því tekj­urnar koma hægt inn.

Hesalight gott dæmi sagði Helle Thorning-Schmidt

Hes­alight naut góðs af því að á upp­hafs­árum fyr­ir­tæk­is­ins var mikil umræða um orku­sparnað og umhverf­is­mál í Danmörku. Fyr­ir­tæki sem upp­fylltu til­tekin skil­yrði gátu fengið tals­verða styrki, „grænu styrk­ina“ eins og Danir nefndu það. Í umræðum á danska þing­inu, Fol­ket­inget, í maí 2013 nefndi Helle Thorning-Schmidt þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur Hes­alight sem dæmi um vel heppnað fyr­ir­tæki sem notið hefði góðs af græna styrknum. Fyrstu árin lifði Hes­alight ann­ars að mestu leyti á lánsfé frá Danmarks Eksport­kredit, EKF. Sá banki styður við frum­kvöðla­starf­semi með ýmsum hætti og aðstoðar við útvegun fjár­magns. Þar kom að fyr­ir­greiðsla EKF dugði ekki, enda urðu samn­ing­arnir sem Hes­alight gerði sífellt stærri.

[adspot]

Í við­tali við við­skipta­blaðið Finans í nóv­em­ber 2015 sagði Lars Nørholt að vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins væri hreint ótrú­legur. Til að afla rekstr­ar­fjár brá Hes­alight á það ráð að selja fjár­fest­inga­skulda­bréf, sam­tals að upp­hæð 562 millj­ónir danskra króna (tæpir 12 millj­arðar íslenskir). Nokkrir líf­eyr­is­sjóðir voru meðal kaup­enda. Tals­maður eins þeirra sagði síðar að ástæða kaupanna hefði verið að Lars Nørholt hefði greint frá því að mjög stórir samn­ingar væru ,,í píp­unum“, meðal ann­ars við kaffi­húsa­keðj­una Starbucks. Lars Nørholt hefði sýnt papp­íra (sem síðar kom í ljós að voru heima­til­búnir) þar sem fram kom að sam­ing­ur­inn við Starbucks væri uppá 49 millj­ónir evra (7,6 millj­arða íslenska).

Fellur á glansmyndina

Í mars árið 2016 birti danska við­skipta­blaðið Børsen greina­flokk um Hes­alight fyr­ir­tækið. Í fyrstu grein­inni var sagt frá því að í kynn­ing­ar­efni Hes­alight væru stór­fyr­ir­tækin Novo Nordisk og Arla meðal við­skipta­vina, þau væru „lyk­il­við­skipta­vinir“. Í við­tölum við blaða­menn Børsen neit­uðu tals­menn þess­ara fyr­ir­tækja að hafa átt nokkur við­skipti við Hes­alight. Umfjöllun Børsen vakti mikla athygli og nú fóru fleiri danskir fjöl­miðlar að fjalla um Hes­alight. Lars Nørholt réð fyrr­ver­andi fjöl­miðla­ráð­gjafa (spindoktor) Anders Fogh Rasmus­sen, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, til starfa en það breytti engu. Umfjöllun fjöl­miðla hélt áfram og sífellt kom fleira mis­jafnt í ljós.

Glansmyndin hrökk í sundur

Eft­ir­lits­stofnun danska atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins tók Hes­alight til sér­stakrar skoð­unar í maí 2016. Sú skoðun leiddi í ljós að hjá fyr­ir­tæk­inu var síður en svo allt í lagi. Vægast sagt. Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem keypt höfðu skulda­bréfin fyrr­nefndu kröfð­ust þess að fá pen­inga sína til baka. 18. nóv­em­ber 2016 var Hes­alight lýst gjald­þrota.

Rannsókn og réttarhöld

Umfangs­mikil rann­sókn dönsku lög­regl­unnar leiddi margt athygl­is­vert í ljós. Í stuttu máli sagt stóð ekki steinn yfir steini í rekstri Hes­alight. Svindl á svindl ofan sagði eitt dönsku blað­anna. Lars Nørholt bjó ásamt eig­in­konu sinni í stóru ein­býl­is­húsi við Hró­arskeldu­fjörð­inn á Sjálandi, ók um á Porche og átti að minnsta kosti tvo aðra bíla, sem að sögn Børsen voru ekki af ódýr­ara tag­inu. Hann átti enn­fremur að minnsta kosti tvö stór hús á Majorka. Rétt­ar­höldin fyrir Bæj­ar­rétti Hró­arskeldu hófust í sept­em­ber árið 2018 og dómur féll í jan­úar 2019. Í nið­ur­stöðu dóms­ins sagði að Lars Nørholt hefði dregið sér rúmar 400 millj­ónir króna (8,4 millj­arðar íslenskir) úr sjóðum Hes­alight.

Lars Nørholt var dæmdur í sjö ára fang­elsi, 15 millj­óna króna sekt (312 millj­ónir íslenskar) og missti jafn­framt rétt til að reka fyr­ir­tæki, ævi­langt. Enn­fremur var hann, ásamt fjórum öðrum fyrr­ver­andi starfs- og stjórn­ar­mönnum Hes­alight, dæmdur til að greiða þrota­búi fyr­ir­tæk­is­ins 200 millj­ónir króna (4,3 millj­arðar íslenskir).

Lars Nørholt áfrýj­aði dóm­inum sam­stundis.

Dómur Eystri-Landsréttar

Fyrir Bæj­ar­rétti Hró­arskeldu krafð­ist ákæru­valdið átta ára fang­els­is­dóms yfir Lars Nørholt. Nið­ur­staðan var eins áður sagði sjö ára fang­elsi. 2. apríl síð­ast­lið­inn stað­festi Eystri-Lands­réttur þann dóm en taldi hins­vegar að fjár­svikin væru mun umfangs­meiri en Bæj­ar­rétt­ur­inn hefði kom­ist að. Svikin hefðu, segir í nið­ur­stöðu Eystri-Lands­réttar, numið 600 millj­ónum króna (12,6 millj­arðar íslenskir).

Einn maður hefur áður hlotið svo þungan dóm í Danmörku fyrir fjár­svik. Það var Stein Bagger fram­kvæmda­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins IT-Factory. Sá dómur féll árið 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár