Lág­marks­aldur umsækj­anda um ófrjó­sem­is­að­gerð niður í 18 ára

Frumvarp heil­brigð­is­ráð­herra til laga um ófrjó­sem­is­að­gerðir hefur verið sam­þykkt á Alþingi.

Ald­urs­mörk umsækj­anda um ófrjó­sem­is­að­gerð hafa nú verið færð úr 25 árum í 18 ár en frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra til laga um ófrjó­sem­is­að­gerðir var sam­þykkt á Alþingi í fyrra­dag. Með lög­unum er kveðið á um rétt fólks til ófrjó­sem­is­að­gerðir, að þær skuli vera gjald­frjálsar og fram­kvæmdar af þeim sem hafa til­skilda menntun og reynslu.

Frum­varpið var lagt fram sem hluti af heild­ar­end­ur­skoðun laga um ráð­gjöf og fræðslu varð­andi kyn­líf og barn­eignir og um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerðir. Nefnd um heild­ar­end­ur­skoðun þeirrar lög­gjafar lagði til að fjallað yrði um ófrjó­sem­is­að­gerðir í sér­lögum, enda væru þung­un­ar­rof og ófrjó­sem­is­að­gerðir væru mjög óskyldar aðgerðir sem ekki stæðu rök til að fjallað væri um í sömu lögum.

Nú verður ein­ungis heim­ilt að fram­kvæma ófrjó­sem­is­að­gerðir á ein­stak­lingum sem ekki hafa náð 18 ára aldri að upp­fylltum ströngum skil­yrðum um að frjó­semi hafi alvar­leg áhrif á líf eða heilsu ein­stak­lings­ins. Fyrir því er jafn­framt sett skil­yrði um að fyrir liggi stað­fest­ing tveggja lækna og sam­þykki sér­stak­lega skip­aðs lög­ráða­manns. Áður en ófrjó­sem­is­að­gerð er fram­kvæmd skal fræða ein­stak­ling um í hverju aðgerðin er fólgin, áhættu sam­fara henni og afleið­ingar.

Nefndin lagði til að ­lækka lág­marks­aldur niður í 18 ára

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sem lagt var í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í nóv­em­ber á síð­asta ári kemur fram að til­urð þess hafi verið að heil­brigð­is­ráð­herra skip­aði í mars 2016 nefnd sem ætlað var að vinna að heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um ráð­gjöf og fræðslu varð­andi kyn­líf og barn­eignir og um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerð­ir. Í nefnd­ina voru skipuð Sóley S. Bender for­mað­ur, sér­fræð­ingur í kyn­heil­brigði og pró­fessor við Háskóla Íslands, Guð­rún Ögmunds­dótt­ir, félags­ráð­gjafi, cand.com. og tengiliður vist­heim­ila í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, og Jens A. Guð­munds­son, sér­fræð­ingur í fæð­ing­ar- og kven­sjúk­dóma­lækn­ingum og dós­ent við Háskóla Íslands. Starfs­maður nefnd­ar­innar var Þór­unn Oddný Steins­dótt­ir, lög­fræð­ingur í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu.

Nefndin skil­aði skýrslu sinni til heil­brigð­is­ráð­herra í nóv­em­ber 2016 þar sem meðal ann­ars var lagt til að sett yrðu þrenn ný lög í stað eldri laga, það er lög um fræðslu og ráð­gjöf varð­andi kyn­heil­brigði, lög um þung­un­ar­rof og lög um ófrjó­sem­is­að­gerð­ir.

Í skýrsl­unni leggur nefndin til að lækka lág­marks­aldur umsækj­anda um ófrjó­sem­is­að­gerð niður í 18 ára í sam­ræmi við ákvæði lög­ræð­islaga, ein­ungis verði heim­ilt að fram­kvæma ófrjó­sem­is­að­gerðir á börnum yngri en 18 ára af lækn­is­fræði­legum ástæð­um, ef lífi eða heilsu stúlku væri stefnt í hættu með þungun eða fæð­ingu eða ef ein­sýnt væri að barn við­kom­andi yrði alvar­lega van­skapað og/eða lífs­hættu­lega veik sem og að afmá skuli alla mis­munun í lög­unum gagn­vart fötl­uðum ein­stak­ling­um. Til­lögur nefnd­ar­innar voru lagðar til grund­vallar við gerð frum­varps­ins.

Hund­ruð ófrjó­sem­is­að­gerðir fram­kvæmdar á ári

Í svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Páli Vali Björns­syni um ófrjó­sem­is­að­gerðir frá því í nóv­em­ber 2015 kemur fram að á árunum 1981 til 2014 hafi ófrjó­sem­is­að­gerðir verið á bil­inu 461 til 775 á ári. Flestar aðgerðir hafi verið gerðar á árunum 1996 til 2000 eða yfir 700 aðgerðir hvert ár.

Jafn­fram segir að umtals­verð breyt­ing hafi orðið á þessum árum á hlut­falli aðgerða eftir kyni en árið 1981 og fram til árs­ins 1988 hafi meiri hluti ófrjó­sem­is­að­gerða verið gerðar á konum en eftir árið 1988 hafi karl­menn verið í meiri­hluta. Í svar­inu kemur einnig fram að lang­flestar aðgerðir sem fram­kvæmdar eru séu byggðar á heim­ild í gild­andi lögum en á árunum 1981 til 2014 hafi 52 ófrjó­sem­is­að­gerðir verið fram­kvæmdar og af þessum 52 ein­stak­lingum hafi 41 verið konur og 11 karl­ar.

„Af þessu er ljóst að mik­ill meiri­hluti þeirra ein­stak­linga sem und­ir­gang­ast ófrjó­sem­is­að­gerðir af lækn­is­fræði­legum ástæð­um, félags­legum ástæðum eða ástæðum sem rekja má til fötl­unar eða afkom­anda við­kom­andi ein­stak­lings eru kon­ur. Á árunum 2014 til 2017 voru ófrjó­sem­is­að­gerðir 634 til 638 tals­ins á ári og af þeim voru aðgerðir sem byggðu á heim­ild í II. lið 18. gr. tvær árið 2014 og báðar fram­kvæmdar á konum og fjórar árið 2017, tvær konur og tveir karl­ar,“ segir grein­ar­gerð­ með frum­varp­inu.

15 ófrjósemisaðgerðir framkvæmdar samkvæmt umsókn sérstaklega skipaðs lögráðamanns

Á árunum 2000 til 2017 voru fimmtán ófrjó­sem­is­að­gerðir fram­kvæmdar sam­kvæmt umsóknum und­ir­rit­aðar af lög­ráða­manni. Þar af voru tólf konur og þrír karlar. Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráð­herra, Svan­dísar Svav­ars­dóttur, við fyr­ir­spurn frá Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, þing­flokks­for­manni Pírata, um ófrjó­sem­is­að­gerðir og þung­un­ar­rof í lok apríl síð­ast­lið­ins.

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­ala hafi engar ófrjó­sem­is­að­gerðir verið gerðar á grund­velli 22. gr. lag­anna frá árinu 2016 sem hljóðar svo: „Ef ástæður til ófrjó­sem­is­að­gerðar svo sem segir í 18. gr. II. eru fyrir hendi eða ef við­kom­andi er fullra 25 ára, en er vegna geð­sjúk­dóms, mik­ils greind­ar­skorts eða ann­arra geð­trufl­ana var­an­lega ófær um að gera sér grein fyrir afleið­ingum aðgerð­ar­innar, er heim­ilt að veita leyfi til aðgerðar sam­kvæmt umsókn sér­stak­lega skip­aðs lög­ráða­manns.“

Ein aðgerð var fram­kvæmd á Sjúkra­hús­inu á Akureyri árið 2017. Á árunum 2013 til 2016 var verk­lagið þannig að for­sjárað­ilar ein­stak­lings höfðu sam­band við Land­spít­ala. Yfir­læknir kven­sjúk­dóma­deildar átti í fram­hald­inu við­tal við for­sjárað­ila, og skjól­stæð­ing ef mögu­legt var, þar sem ræddir voru mögu­legir val­kostir, til að mynda lang­tíma­getn­að­ar­varnir, ásamt því að aðilar voru upp­lýstir um ferli umsóknar. Ef óskað var eftir ófrjó­sem­is­að­gerð sóttu félags­ráð­gjafi og yfir­læknir um hjá sýslu­manni að sér­stakur lög­ráða­maður yrði skip­aður til að gæta hags­muna ein­stak­lings­ins og við­kom­andi sendi í fram­hald­inu umsókn ásamt grein­ar­gerð til kvenna­deildar Land­spít­ala.

Með vísan til þess hversu við­kvæm mál af þessum toga eru þá var tekin ákvörðun um að vísa öllum mál­unum til úrskurð­ar­nefndar um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerðir til umfjöll­unar. Þegar ákvörðun lá fyrir um aðgerð var skjól­stæð­ingur kall­aður í aðgerð. Ef um stúlku undir 18 ára aldri var að ræða var hún inn­rituð á Barna­spít­ala Hrings­ins. For­sjárað­ilar voru í öllum til­vikum við­staddir, segir í svar­inu.

Þór­hildur Sunna spurði einnig hvort heil­brigð­is­starfs­fólk hefði þurft að beita þving­unum til þess að fram­kvæma ófrjó­sem­is­að­gerð eða þung­un­ar­rof. Í svar­inu segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­ala eru þving­anir, lík­am­legar eða and­legar af hálfu heil­brigð­is­starfs­fólks, aldrei við­hafðar á kvenna­deild Land­spít­al­ans hvort sem um er að ræða full­orð­inn ein­stak­ling, barn eða ung­menni með eða án greind­ar­skerð­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár