„Við erum komin á hættuslóðir“

Fólk verður að fylgja regl­unum, segja for­sætis- og heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands. Fólk verður skikkað í ein­angrun og sótt­kví með lögum og brjóti það þau verður háum fjár­sektum beitt. Varn­að­ar­orðin líkj­ast flóð­bylgju­við­vörun í annarri bylgju far­ald­urs­ins.

Fjölgun smita í Bretlandi er uggvænleg og stjórnvöld vilja bregðast við án þess að grípa til sömu hörðu aðgerðanna og gert var síðasta vetur.
Fjölgun smita í Bret­landi er ugg­væn­leg og stjórn­völd vilja bregð­ast við án þess að grípa til sömu hörðu aðgerð­anna og gert var síð­asta vetur. Mynd: EPA

„Fólk verður að fylgja regl­unum og ef það gerir það ekki munum við bregð­ast við með miklu harð­ari aðgerðum,“ sagði Matt Hancock, heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands, um helg­ina.

Varn­að­ar­orð hans voru ekki að til­efn­is­lausu. Önnur bylgja kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins er við það að skella á. Hann úti­lokar því ekki að aftur verði gripið til útgöngu­banna og almennrar lok­unar í sam­fé­lag­inu, líkt og Bretar þurftu að búa við frá upp­hafi fyrstu bylgju og þar til í júlí.

Ný aug­lýs­ing stjórn­valda gefur tón­inn. Það ætti ekki að fara fram­hjá neinum að þeim er alvara. Hún minnir einna helst á flóð­bylgju­við­vörun. „Ef þú grein­ist með kór­ónu­veiruna eða ert beð­inn að fara í ein­angrun vegna smitrakn­ingar þá þarft þú sam­kvæmt lögum sem taka gildi 28. sept­em­ber að vera í ein­angrun til að lág­marka útbreiðsl­una.“

[adspot]

Þeir sem brjóta lögin eiga yfir höfði sér háar fjár­sektir, að minnsta kosti 1.000 pund, um 175 þús­und krónur. Sekt­irnar fara svo stig­hækk­andi eftir alvar­leika brot­anna.

„Ég vil ekki sjá aðra lokun sam­fé­lags­ins,“ sagði Hancock við BBC um helg­ina. „Eina leiðin til að forð­ast það er að fólk fylgi regl­unum.“

Tilefnið er aug­ljóst: Stað­festum smitum af kór­ónu­veirunni hefur farið hratt fjölg­andi á Bret­landseyjum síð­ustu daga. Á laug­ar­dag greindust svo 4.422 ný til­felli og hafa þau ekki verið fleiri frá því í byrjun maí.

Og vetr­ar­mán­uðir eru framundan. Mánuðir þar sem fólk heldur til inn­an­dyra sem skapar ákveðna hættu þegar kór­ónu­veiran er ann­ars vegar. „Við erum komin á hættu­slóðir,“ hefur Guardian eftir Patrick Vallance, helsta ráð­gjafa bresku rík­is­stjórn­ar­innar þegar kemur að far­aldr­inum. Land­lækn­ir­inn Chris Whitty segir að meta þurfi stöð­una og aðgerðir framundan með áskorun vetr­ar­mán­að­anna í huga. Þeir munu báðir ávarpa almenn­ing á dag­legum upp­lýs­inga­fundi stjórn­valda sem þykir til marks um alvar­leika máls­ins.

Borg­ar­stjóri London, Sadiq Khan, íhugar stað­bundnar aðgerðir. Hann vill bregð­ast við fyrr en síðar til að freista þess að ná tökum á auk­inni útbreiðslu í borg­inni.

Bretar eru langt í frá einir þegar kemur að því und­ir­bún­ingi fyrir aðra bylgju far­ald­urs­ins. Önnur Evr­ópu­ríki standa frammi fyrir sama vanda: Smitum hefur fjölgað hratt í haust og vís­bend­ingar eru um að dauðs­föllum, sem voru hlut­falls­lega mun færri í sumar en í vetur, fari einnig fjölg­andi.

Smit­sjúk­dóma­stofnun Evrópu, ECDC, greindi frá því í gær að dag­lega hefðu að með­al­tali yfir 45 þús­und manns greinst með veiruna í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins séu tölur síð­ustu tveggja vikna teknar saman. Dán­ar­tíðni af völdum COVID-19 hefur verið stöðug í 72 daga í Evrópu en þó hefur hún farið hækk­andi í Búlgaríu, Króatíu, á Möltu, í Rúmeníu og á Spáni.

Flest ríki höfðu slakað á hömlum en stjórn­völd ótt­ast nú aukið álag á sjúkra­hús og því vofa hertar tak­mark­anir yfir á ný.

Fyrir helgi ákváðu borg­ar­yf­ir­völd í Madrid á Spáni að herða aðgerðir á nýjan leik en þriðj­ungur nýrra til­fella á Spáni að und­an­förnu hefur greinst í borg­inni. Þar hafa greinst yfir 12 þús­und ný smit dag­lega um skeið og á föstu­dag voru þau 14 þús­und. Um 850 þús­und borg­ar­búa sæta nú útgöngu­banni. Allt eru það íbúar í hverfum þar sem far­ald­ur­inn er mjög útbreiddur. Fleiri stór­borgir en Madrid og London glíma við sam­bæri­lega „heita reiti“. Í Vín­ar­borg hefur smitum einnig fjölgað hratt svo dæmi sé tekið.

Grímuskylda og staðbundnar aðgerðir

Áhyggjur fara einnig vax­andi í Frakk­landi þar sem yfir 13 þús­und ný til­felli greindust á föstu­dag og hafa þau ekki verið fleiri frá því í apríl. Aukn­ing­unni hafa fylgt fleiri sjúkra­húsinn­lagnir. Dæmi eru um að gjör­gæslu­deildir sjúkra­húsa séu við það að fyll­ast.

Tékkar ákváðu að taka upp grímu­skyldu í skólum í síð­ustu viku og hertar tak­mark­anir tóku í gær gildi á veit­inga­húsum, kaffi­húsum og öld­ur­húsum á sex svæðum í Hollandi. „Þú þarft ekki að vera stærð­fræð­ingur eða far­alds­fræð­ingur til að skilja að þessi fjölgun mun að lokum skila sér inn á sjúkra­húsin,“ segir Mark Rutte, for­sæt­is­ráð­herra Hollands, en smit­stuð­ul­inn þar í landi gefur til kynna að með sama áfram­haldi muni um 10 þús­und ný smit grein­ast dag­lega.

Ítalía varð hvað verst úti af öllum löndum Evrópu í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins og fjöldi nýrra dag­legra smita er nú á pari við fjöld­ann í maí. Á laug­ar­dag greindust yfir þús­und smit í Póllandi of hafa þau aldrei verið fleiri.

Ýmsir þættir eru taldir geta skýrt þá stöðu sem nú er komin upp. Að ein­hverju leyti má fjölgun stað­festra smita rekja til þess að fleiri sýni eru nú tekin í mörgum löndum en í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Þegar tölur um dauðs­föll af völdum COVID-19 eru skoð­aðar kemur í ljós að um miðjan apríl er talið að um 3.500 manns hafi lát­ist í Evrópu dag­lega en um miðjan sept­em­ber voru um 500 and­lát á dag rakin til sjúk­dóms­ins. En þróun smita og skyndi­leg fjölgun þeirra er engu að síður vís­bend­ing um að far­ald­ur­inn sé að breið­ast hraðar út en síð­ustu vikur og mán­uði.

Líkt og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur sagt síð­ustu daga, eftir að til­fellum COVID-19 fór að fjölga hér á landi, þá hefur fólk snúið aftur í skól­ana sam­hliða því sem til­slak­anir hafa verið gerðar á ýmsum sótt­vörnum miðað við það sem var í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í vetur. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, telur skýr­ing­una einnig geta falist í því að sam­hliða til­slök­unum hafi almenn­ingur sofnað á verð­inum hvað varðar ein­stak­lings­bundnar sýk­inga­varnir. Hér á landi líkt og víð­ast ann­ars staðar í Evrópu er yngra fólk að sýkj­ast frekar en það eldra líkt og í fyrstu bylgju sem skýri það að færri hafa veikst alvar­lega og þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús.

Í Evrópu búa um 750 millj­ónir manna, 4,4 millj­ónir hafa greinst með veiruna og yfir 217 þús­und lát­ist vegna COVID-19. Miðað við þær tölur er staðan í álf­unni þó betri en í Banda­ríkj­unum þar sem 6,7 millj­ónir hafa greinst með veiruna og tæp­lega 200 þús­und lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins af um 330 millj­ónum manna sem þar búa. Miðað við opin­berar dán­ar­tölur er talið að einn af hverjum fimm sem deyja í heim­inum um þessar mundir af COVID-19 sé búsettur í Banda­ríkj­unum.

„Það er engin spurn­ing og ég hef sagt það vikum saman að við gætum séð aðra bylgju og nú erum við að sjá það ger­ast,“ sagði Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands fyrir helgi. „Við sjáum það ger­ast í Frakk­landi, á Spáni og víðar í Evrópu. Það var því algjör­lega óum­flýj­an­legt að það sama myndi ger­ast í okkar landi.“

Hvergi í Evrópu hafa fleiri lát­ist vegna COVID-19 en í Bret­landi eða yfir 40 þús­und manns. Í síð­ustu viku voru kynntar til sög­unnar hertar sam­komu­tak­mark­anir á Englandi. Johnson naut mik­ils stuðn­ings þrátt fyrir harðar aðgerðir stjórn­valda í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins en nú hefur „fallið á gljá­ann“ eins og það er orðað í leið­urum blaða á hægri væng stjórn­mál­anna, s.s. Daily Tel­egraph og Times of London.

Gagn­rýnin snýr aðal­lega að burðum yfir­valda til sýna­töku og smitrakn­ingar. Stór­kost­leg vanda­mál sköp­uð­ust í vetur vegna getu­leysis á þessu sviði og enn hefur ekki tek­ist að leysa þau flest. Það hefur Johnson sjálfur við­ur­kennt.

Mótmæla hörðum aðgerðum

Hópar fólks fóru út á götur Lundúna um helg­ina til að mót­mæla því að aðgerðir yrðu hertar aftur. Slík mót­mæli hafa einnig farið fram í öðrum Evr­ópu­löndum. Einnig eru skiptar skoð­anir meðal sér­fræð­inga hvort að strangar hömlur á sam­komur og ferða­lög séu rétta leiðin á þessum tíma­punkti.

Mark Woolhouse, pró­fessor í far­alds­fræði við Edin­borg­ar­há­skóla, segir að þótt lokun sam­fé­laga hafi hægt á útbreiðslu far­ald­urs­ins í fyrstu bylgj­unni hafi það „ein­fald­lega ýtt vand­anum til um nokkra mán­uði“. Hann sagði í sam­tali við CNN nýverið að svipuð staða blasi nú við og í mars: Veiran er á kreiki úti í sam­fé­lag­inu og getur valdið stór­kost­legum far­aldri rétt eins og þá. Og það að við séum í sömu stöðu þá og nú sýni ein­fald­lega að vanda­málið hafi ekki verið upp­rætt heldur því aðeins frestað.

Woolhouse sagði að yfir­völd hefðu nú mun meiri þekk­ingu en áður, viti hvað skili árangri og hvað ekki, og að miðað við allar þær upp­lýs­ingar sem aflað hefur verið gætu stað­bundnar aðgerðir skilað betri árangri en það að skella heilu sam­fé­lög­unum í lás líkt og gert var í vetur.

Hann benti á að smit­stuð­ull­inn, R-stuð­ull­inn, væri sú tala sem horfa ætti á – fjöldi smita segði alls ekki alla sög­una þegar mun fleiri sýni væru tekin en áður. Í fyrstu bylgju hafi R-stuð­ull­inn farið nálægt þremur í Bret­landi og „ég sé ekki fyrir mér að því verði leyft að ger­ast aftur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár