Reykjalundur verður varasjúkrahús fyrir Landspítala

Ákveðið hefur verið að Reykja­lundur verði vara­sjúkra­hús fyrir Land­spít­ala í COVID-19 far­aldr­inum sem nú geisar.

Reykjalundur er í Mosfellsbæ.
Reykja­lundur er í Mos­fellsbæ. Mynd: landspitali.is

Ákveðið hefur verið að Reykja­lundur verði vara­sjúkra­hús fyrir Land­spít­ala í COVID-19 far­aldr­inum sem nú geisar. Páll Matth­í­as­son, for­stjóri spít­al­ans og Anna Stef­áns­dóttir, starf­andi for­stjóri Reykja­lundar, und­ir­rit­uðu sam­starfs­samn­ing­inn 26. mars 2020. Páll sagði af því til­efni að samn­ing­ur­inn bæri vitni hinni víð­tæku og góðu sam­vinnu sem Land­spít­ali á við Reykja­lund og raunar aðrar sam­starfs­stofn­anir. Það væru allir með á þessum vagni.

Til­gangur með samn­ingnum er að stytta legu á deildum Land­spít­ala í ljósi auk­ins álags vegna Covid-19 far­ald­urs­ins og veita sjúk­lingum nauð­syn­lega eft­ir­með­ferð. Enn­fremur að nýta til­tækt leg­u­rými og sér­þekk­ingu starfs­fólks Reykja­lundar á með­ferð og þjálfun að því marki sem unnt er án sér­stakrar þjálf­un­ar­að­stöðu. Sér­greinar lyf­lækn­inga sem um ræðir eru einkum lungna­lækn­ingar, tauga­lækn­ingar og hjarta­lækn­ingar auk almennra lyf­lækn­inga. Samstarf sem verið hefur um bækl­un­ar­sjúk­linga breyt­ist ekki, segir í frétt frá Land­spít­al­anum.

Reykja­lundur leggur til allt að 26 rúm á sól­ar­hrings­deild og þjón­ustan felst í hjúkrun, lækn­is­með­ferð, sjúkra­þjálfun, iðju­þjálfun, félags­ráð­gjöf og fleiru eftir þörfum.

Páll Matth­í­as­son sagði í sam­tali við Vísi í dag að þegar væri farið að flytja sjúk­linga á Reykja­lund, sjúk­linga sem ekki eru veikir af COVID.19

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár