Fyrsta dauðsfallið í Noregi af völdum COVID-19

For­sæt­is­ráð­herra Noregs hefur greint frá fyrsta dauðs­fall­inu í land­inu vegna nýju kór­ónu­veirunnar. Um er að ræða aldr­aða mann­eskju sem hafði und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs.
Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs. Mynd: EPA

Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, greindi í gær­kvöldi frá fyrsta dauðs­fall­inu í land­inu af völdum COVID-19. Um er að ræða aldr­aða mann­eskju með und­ir­liggj­andi sjúk­dóm sem hafði verið lögð inn á háskóla­sjúkra­húsið í Ósló vegna veik­inda.

Solberg sagði í sam­tali við norska rík­is­út­varpið að hinar hertu aðgerðir sem gripið hefur verið til í land­inu væru einmitt til að vernda við­kvæma hópa eins og þá sem þessi ein­stak­lingur til­heyrði. „Til að sýna þessu fólki sam­stöðu reynum við að hefta útbreiðsl­una eins og við getum.“

Land­lækn­is­emb­ættið í Noregi býst við fleiri dauðs­föllum vegna sjúk­dóms­ins næstu daga.

„Fyrst og fremst er þetta sorg­legt en minnir okkur á hversu alvar­legur þessi far­aldur getur verið,“ sagði Camilla Stol­ten­berg land­læknir við NRK.

Í Noregi hafa greinst 489 smit og tíu af þeim hafa verið lagðir inn á sjúkra­hús.

Dauðs­fallið varð sama dag og gripið var til harðra aðgerða í Noregi vegna útbreiðsl­unnar. Ekki hefur verið beitt harð­ari aðgerðum á frið­ar­tímum, segir í frétt NRK.

Ákveðið hefur verið að loka skólum og fjöl­mörgum sam­komu­stöðum sem og að aflýsa mörgum við­burðum. Einnig var ákveðið að allir þeir sem hefðu ferð­ast til útlanda eftir 27. febr­úar skuli í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár