Seðlabankinn lætur skoða aflandsfélagaviðskipti Finns og Helga

Bankaráð Seðla­banka Íslands hefur falið lög­fræð­ingum bank­ans að kanna tengsl aflands­fé­laga­við­skipta Finns Ing­ólfs­sonar, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, og Helga S. Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi for­manns banka­ráðs Seðla­banka Íslands, við störf þeirra hjá bank­anum. Þetta gerði banka­ráðið dag­inn eftir að Kastljós, í sam­starfi við Reykja­vík Media, greindi frá aflands­fé­laga­við­skiptum þeirra. RÚV greinir frá.

Í frétt RÚV sagði einnig að banka­ráðið hafiu sam­þykkt ein­róma að óska eftir umsögn frá Seðla­bank­anum um hvort menn­irnir tveir hefðu upp­lýst bank­ann um aflands­við­skipti sín, hvort ein­hverjar reglur hefðu verið í gildi um slík við­skipti stjórn­enda bank­ans og þá hvort ástæða væri til við­bragða. Nið­ur­staða liggur ekki fyrir.

Kastljós greindi frá því 25. apríl síð­ast­lið­inn að Finnur, sem var vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ­þing­maður við­skipta­ráð­herra og síðar Seðla­banka­stjóri, hafi átt ýmis kon­ar ­per­sónu­leg við­skipti í gegnum aflands­fé­lög. Þau átti hann ásamt félaga sín­um, Helga S. Guð­munds­syni, sem Finnur skip­aði meðal ann­ars for­mann banka­ráðs Lands­banka Íslands á meðan að hann var ráð­herra banka­mála. Síð­ar, árið 2003, var Helgi skip­aður í banka­ráð Seðla­banka Íslands, þar sem hann sat til árs­ins 2008. Helgi, sem nú er lát­inn, var meðal ann­ars for­maður banka­ráðs Seðla­banka Ís­lands frá árinu 2006 og fram á árið 2007. Hann var auk þess áhrifa­maður í S-hópnum svo­kall­aða, sem keypti hlut íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum í banka­einka­væð­ing­unni árið 2002. VÍS, sem Finnur stýrði á þeim tíma, var einnig hluti af S-hópn­um.

Í gögnum Mossack Fon­seca kom meðal ann­ars fram að Finnur og Helgi hafi eign­ast félag í Panama í byrj­un ­febr­úar 2007, á meðan að Helgi var enn for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands­. ­Fé­lagið hét Adair SA. Í Kast­ljósi kom fram að til­gangur félags­ins væri að kaupa og eiga hluta­bréf í Lands­bank­an­um, sem Lands­bank­inn hafði lánað fyr­ir. Finn­ur ­sagði í skrif­legu svari til Kast­ljóss að til­gangur félags­ins hefði ver­ið fjár­fest­ing­ar. Það hefði tapað miklu og því hefðu aldrei orðið til tekjur í fé­lag­inu. Ef þær hefðu orðið þá hefði félagið greitt skatt í Panama en eig­end­ur þess fjár­magnstekju­skatt á Íslandi ef þeir hefðu fengið eitt­hvað út úr því.

Kast­ljós greindi einnig frá til­urð félags­ins Lozanne Inc. í Pana­ma, sem skráð var í eigu Finns. Engar frek­ari upp­lýs­ingar fund­ust um ­fé­lagið og Finnur kann­að­ist ekki við það þegar leitað var upp­lýs­inga hjá hon­um um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár