Samherji tekur ekki yfir Eimskip

Sárafáir hlut­hafar í Eimskip tóku yfir­tökutil­boði Samherja í félagið, sem rann út í gær.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: www.svn.is

Eigendur 0,011 pró­sent hluta­fjár í Eimskip tóku yfir­tökutil­boði stærsta eig­anda félags­ins, Samherja Holding, í allt hlutafé þess. Tilboðið gilti þangað til í gær. Samherji mun því bæta sára­litlu við eign­ar­hlut sinn í Eimskip og á nú 30,28 pró­sent í félag­inu. 

Greint var frá því 21. októ­ber síð­ast­lið­inn að Samherji Holding, annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, væri kom­inn aftur yfir 30 pró­sent eign­ar­hlut í Eimskip sem skyldar félagið til að gera yfir­tökutil­boð.

Tilboðið hljóð­aði upp á 175 krónur á hlut sem hefði þýtt að Samherji Holding hefði þurft að greiða 22,7 millj­arða króna ef allir aðrir hlut­hafar hefðu sam­þykkt til­boðið. Það verð er langt undir mark­aðs­gengi Eimskips, en við lok við­skipta í gær var það 229 krónur á hlut. Þeir hlut­hafar sem seldu bréf sín til Samherja fengu því 23,5 pró­sent lægra verð fyrir en ef þeir hefðu selt á mark­aði í gær. Því blasti við nær allan tím­ann frá þvi að yfir­tökutil­boðið var gert að litlar sem engar líkur voru á því að flestir hlut­hafar myndu taka því.

[adspot]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar er haft eftir Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja Holding, að félagið hefði farið yfir 30 pró­sent við­miðið til að ljúka til­boðs­skyldu sem skap­ast hefði í mars. „Kaupin end­ur­spegla þá til­trú sem við höfum á rekstri Eimskips og þær vænt­ingar sem við höfum til félags­ins. Það er ánægju­legt að mik­ill meiri­hluti hlut­hafa Eimskips deilir þeirri sýn með okkur. Það var og verður áfram afstaða Samherja Holding að Eimskip sé vel til þess fallið að vera áfram skráð á almennan hluta­bréfa­markað og við bindum vonir við að eiga áfram gott sam­starf við aðra hlut­hafa félags­ins.“

Í annað sinn sem yfirtökuskylda myndaðist á árinu

Þetta var í annað sinn á þessu ári sem Sam­herji Hold­ing fór yfir 30 pró­sent hlut í Eim­skip, en við það mynd­ast lög­bundin yfir­töku­skylda. Það gerð­ist fyrst 10. mars 2020. 

Á­stæða þess er sú að þegar einn fjár­festir er far­inn að ráða yfir meira en 30 pró­sent í félagi þá eru tök hans á því orðin svo mikil að þær aðstæður geta skap­ast að hann geti tekið ákvarð­an­ir, og hrint þeim í fram­kvæmd, sem þjóna hags­munum fjár­fest­is­ins, ekki félags­ins eða ann­arra hlut­hafa. Því er um lyk­il­skil­yrði í lög­unum sem ætlað er að vernda minni hlut­hafa fyrir því að stórir fjár­festar geti valdið þeim skaða.

Tíu dögum síð­ar, 20. mars, hafði staðan í heim­inum breyst hratt. Hluta­bréfa­mark­aðir voru í frjálsu falli og hvert ríkið á fætur öðru var að loka landa­mærum sínum og hrinda í fram­kvæmd stór­felldum skerð­ingum á ferða­frelsi íbúa sinna, jafnt innan landamæra sem utan. Afleið­ingin var hrun í eft­ir­spurn eftir flest öllum vörum og þjón­ust­u­m.

Þann dag sendi Sam­herji Hold­ing Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands erindi þar sem félagið óskaði eftir að fá und­an­þágu frá yfir­töku­skyld­unni sem hafði mynd­ast. Sú und­an­þágu­beiðni var rök­studd vegna þeirra „sér­­­stöku aðstæðna sem hefðu skap­­ast á fjár­­­mála­­mark­aði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verð­bréfa­við­­skipti er fjár­­­mála­eft­ir­lit­inu veitt heim­ild til að veita slíka und­an­þágu ef sér­­stakar ástæður mæla með því.“

Þremur dögum síðar seldi Sam­herji 2,93 pró­sent hlut í Eim­skip. Sú sala gerði það að verkum að atkvæða­vægi Sam­herja í Eim­skip fór niður í 29,99 pró­sent, eða í hæsta mögu­lega fjölda atkvæða sem halda má á án þess að mynda yfir­töku­skyldu.

[links]Daginn eftir að Sam­herji seldi sig undir við­mið­un­ar­mörk ákvað Eim­skip að fella afkomu­spá sína fyrir árið 2020 úr gildi vegna óvissunnar sem væri uppi vegna COVID-19.

Fjár­mála­eft­ir­litið sam­þykkti beiðni Sam­herja um að sleppa við yfir­töku­skyld­u.

Við­mæl­endur Kjarn­ans á fjár­mála­mark­aði og innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins sögðu að mörgum fjár­festum þætti ákvörð­unin ótrú­leg. Svo virt­ist vera sem að hags­munir einnar fyr­ir­ferða­mik­illar sam­stæðu væru teknir fram fyrir hags­muni ann­arra hlut­hafa með því að „sleppa þeim af öngl­in­um“ eins og einn við­mæl­andi orð­aði það.

Hlut­hafar hafi verið full­færir til að taka þessa ákvörðun sjálfir og ákveða hvort að aðstæður köll­uðu eftir því að taka yfir­tökutil­boð­inu og hætta afskiptum að félag­inu, eða hafna því og halda áfram að vera í hlut­hafa­hópi þess á þeim krefj­andi tímum sem framundan eru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár