Samherji aftur kominn yfir 30 prósent í Eimskip og gerir yfirtökutilboð

Í annað sinn á þessu ári er Samherji Holding komið með yfir 30 pró­sent eign­ar­hlut í Eimskip, en þá mynd­ast yfir­töku­skylda. Síðast fékk félagið að sleppa undan henni vegna „sér­stakra aðstæðna sem hefðu skap­ast á fjár­mála­mark­aði vegna útbreiðslu Covid-19“.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

Samherji Holding ehf., annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, er kom­inn aftur yfir 30 pró­sent eign­ar­hlut í Eimskip og mun gera yfir­tökutil­boð til allra hluta­hafa félags­ins. Þetta gerð­ist í dag þegar félagið bætti við sig 2,93 pró­sent hlut í skipa­fé­lag­inu. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að Samherji stefni þó ekki að því að afskrá Eimskip. Alls á Samherji Holding nú 30,28 pró­sent í skipa­fé­lag­inu.

Þetta er í annað sinn á þessu ári sem Samherji Holding fer yfir 30 pró­sent hlut í Eimskip, en við það mynd­ast lög­bundin yfir­töku­skylda. Það gerð­ist fyrst 10. mars 2020.

[links]Ástæða þess er sú að þegar einn fjár­festir er far­inn að ráða yfir meira en 30 pró­sent í félagi þá eru tök hans á því orðin svo mikil að þær aðstæður geta skap­ast að hann geti tekið ákvarð­anir, og hrint þeim í fram­kvæmd, sem þjóna hags­munum fjár­fest­is­ins, ekki félags­ins eða ann­arra hlut­hafa. Því er um lyk­il­skil­yrði í lög­unum sem ætlað er að vernda minni hlut­hafa fyrir því að stórir fjár­festar geti valdið þeim skaða.

Tíu dögum síðar, 20. mars, hafði staðan í heim­inum breyst hratt. Hluta­bréfa­mark­aðir voru í frjálsu falli og hvert ríkið á fætur öðru var að loka landa­mærum sínum og hrinda í fram­kvæmd stór­felldum skerð­ingum á ferða­frelsi íbúa sinna, jafnt innan landamæra sem utan. Afleið­ingin var hrun í eft­ir­spurn eftir flest öllum vörum og þjón­ustum.

Þann dag sendi Samherji Holding Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands erindi þar sem félagið óskaði eftir að fá und­an­þágu frá yfir­töku­skyld­unni sem hafði mynd­ast. Sú und­an­þágu­beiðni var rök­studd vegna þeirra „sér­stöku aðstæðna sem hefðu skap­ast á fjár­mála­mark­aði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verð­bréfa­við­skipti er fjár­mála­eft­ir­lit­inu veitt heim­ild til að veita slíka und­an­þágu ef sér­stakar ástæður mæla með því.“

Þremur dögum síðar seldi Samherji 2,93 pró­sent hlut í Eimskip. Sú sala gerði það að verkum að atkvæða­vægi Samherja í Eimskip fór niður í 29,99 pró­sent, eða í hæsta mögu­lega fjölda atkvæða sem halda má á án þess að mynda yfir­töku­skyldu.

[adspot]Daginn eftir að Samherji seldi sig undir við­mið­un­ar­mörk ákvað Eimskip að fella afkomu­spá sína fyrir árið 2020 úr gildi vegna óvissunnar sem væri uppi vegna COVID-19.

Fjár­mála­eft­ir­litið sam­þykkti beiðni Samherja um að sleppa við yfir­töku­skyldu.

Við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði og innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins sögðu að mörgum fjár­festum þætti ákvörð­unin ótrú­leg. Svo virt­ist vera sem að hags­munir einnar fyr­ir­ferða­mik­illar sam­stæðu væru teknir fram fyrir hags­muni ann­arra hlut­hafa með því að „sleppa þeim af öngl­inum“ eins og einn við­mæl­andi orð­aði það. Hlut­hafar hafi verið full­færir til að taka þessa ákvörðun sjálfir og ákveða hvort að aðstæður köll­uðu eftir því að taka yfir­tökutil­boð­inu og hætta afskiptum að félag­inu, eða hafna því og halda áfram að vera í hlut­hafa­hópi þess á þeim krefj­andi tímum sem framundan eru.

Segjast vera að ljúka tilboðsskyldu sinni

Í til­kynn­ingu til Kaupa­hallar Íslands í dag segir að til­gangur Samherja Holding með hluta­fjár­kaup­unum nú sé fyrst og fremst að ljúka til­boðs­skyldu sinni gagn­vart öðrum hlut­höfum sem und­an­þága fékkst fyrir í mars síð­ast­liðnum.

Kaupin end­ur­spegli þá trú sem stjórn­endur Samherja Holding hafiá rekstri Eimskips. „Starfs­fólk félags­ins um allan heim hefur verið mjög sam­hent í þeirri umfangs­miklu end­ur­skipu­lagn­ingu sem fram hefur farið að unda­förnu og á þakkir skildar fyrir þann góða árangur sem náðst hefur. Með svo sam­hentan hóp að verki er það trú okkar að batn­andi afkoma eigi eftir að koma enn betur í ljós á næstu miss­erum. Eimskip er í meiri­hluta­eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem saman fara með rúm­lega helm­ing hluta­fjár. Samherji Holding telur Eimskip vel til þess fallið að vera áfram skráð á almennan hluta­bréfa­markað og stjórn­endur Samherja Holding binda vonir við að eiga áfram gott sam­starf við aðra hlut­hafa Eimskips.“

Mikill hagnaður og mikið eigið fé

Kjarninn greindi frá því í upp­hafi mán­aðar að Sam­herji hf., annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, hagn­að­ist um 64,8 millj­ónir evra, um níu millj­arða króna á með­al­gengi árs­ins 2019, í fyrra. Það er mjög svip­aður hagn­aður og var af starf­sem­inni árið 2018, þegar hagn­að­ur­inn var 63,7 millj­ónir evra. Um er að ræða þann hluta sem heldur utan um þorra inn­lendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og starf­semi hennar í Fær­eyj­um.

Til­kynnt var opin­ber­lega um eig­enda­skipti á Sam­herja hf. 15. maí síð­ast­lið­inn. Þá birt­ist til­kynn­ing á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar um að Þor­steinn Már, Helga S. Guð­munds­dóttir og Krist­ján Vil­helms­son væru að færa næstum allt eign­ar­hald á Sam­herja hf., sem er eign­ar­halds­fé­lag utan um þorra starf­semi sam­stæð­unnar á Íslandi og í Fær­eyj­um, til barna sinna.

Þau halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­sem­inni, og halda á hinum stórum hlut í Eim­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­ar­halds­fé­lagi, Sam­herja Hold­ing ehf. Það félag hefur enn ekki skilað inn árs­reikn­ingi.

Sam­herj­a-­sam­stæðan átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok árs 2018. Hagn­aður Sam­herja, þegar bæði Sam­herji hf. og Sam­herji Hold­ing voru talin sam­an, vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár