Dreymt og ælt

Doktor Gunni er mættur til leiks og skrifar um tón­list.

Tónlist

Ekki treysta fisk­unum

Gefðu umsögn

Ein alskemmti­leg­asta plata síð­asta árs er þessi önnur útgáfa Ólafs Kram. Ólafur er ekki ein­hver sér­vitur tón­list­ar­snill­ingur úti í bæ, heldur fimm manna hljóm­sveit frá Reykja­vík sem nefnir sig aft­urá­bak eftir leik­ar­anum Mark Rufalo. Ólafur hefur verið á mik­illi upp­leið síðan 2019 þegar sveitin varð til (ann­að­hvort í Vest­ur­bænum eða MH leyfi ég mér að álykta). Eftir sigur í Mús­íktil­raunum 2021 kom hin fína sex laga plata Nef­rennsli / Kossaflens, sem er gefin út af spútnik­merk­inu Post-dreif­ingu. Í októ­ber í fyrra kom svo þessi ell­efu laga gleði­hlunkur sem stimplar Ólaf inn sem eina athygl­is­verð­ustu hljóm­sveit nútím­ans hér­lendis.

Það er margt frá­bært við Ólaf Kram, en nátt­úr­lega það besta er að lögin eru flest skemmti­leg, frekar auð­melt og gáfu­leg. Það er sungið á íslensku og tón­listin er á vissan hátt gam­alt vín á nýjum belgjum, þótt sætur keimur nýja­brums­ins og ferska blóðs­ins sé alltaf það fyrsta sem grípur hlust­and­ann. Ólafur sækir bæði í Sjöuna og Áttuna og auð­veldasta útskýr­ingin væri að segja að útkoman sé eins og ef Grýl­urnar, Risa­eðlan og Spil­verkið væru sett í kok­teil­hrist­ara með dassi af óhefl­uðum töffara­skap pönks­ins. Það eru fjórar stelpur í Ólafi, en á bak við trommu­settið hírist fúl­skeggj­aður karl­maður, Sævar Andri Sig­urðs­son, sem hefur komið víða við, m.a. trommað með Skoffín. Stelp­urnar spila á gítar (Eydís Egils­dóttir Kvaran), bassa (Guðný Margrét Eyj­ólfs­dóttir), hljóm­borð (Iðunn Gígja Krist­jáns­dóttir) og trompet (Birgitta Björg Guð­mars­dóttir) og syngja allar, einar eða saman.

Þetta er vel æft og spilandi band, dúnd­ur­skemmti­legt á tón­leikum, enda eflaust ótelj­andi æfinga­tímar að baki. Það er bull­andi metn­aður í upp­tök­unum sem sveitin gerði með Árna Hjörvari stór­snill­ingi. Grunnar eru þéttir og nettir, álegg glettið og spenn­andi, smá­at­riði mörg og hljóð­rænar krúsídúllur skemmti­legar. Fáar hljóm­sveitir nú leggja jafn­mikið upp úr rödd­unum. Radd­pæl­ing­arnar eru frískar enda stelp­urnar allar ljóm­andi góðar söng­konur og sam­söngur til mik­illar fyr­ir­myndar.

Lögin eru mis­góð eins og gengur, en frá­bæra deildin er mun fyr­ir­ferð­ar­meiri en sú lak­ari. Aumingja Þuríður heitir helsti hitt­ari plöt­unnar, geggjað stuð­lag um ræf­il­inn hana Þuríði sem fer í spari­fötin og ælir í kló­settið. Sjaldan hefur verið sungið jafn­skemmti­lega um sukk ung­menna, sem er eins konar skylda á ákveðnu tíma­bili í okkar sukk­aða sam­fé­lagi – okkar her­skylda, ööö, sukk­skylda. Vit­an­lega er nokkuð um fem­inískar áherslur. Opn­un­ar­lagið, hið fína Hótun, tekur á hrút­skýr­ingum og í þéttrokk­ar­anum Gull­in­snið er sungið um hinn klass­íska gúmmí­töffara (sem við getum gefið okkur að sé í Versló og eigi heima í fínu hverfi í Garðabæ). Í enda lags­ins bregður fyrir óvæntum karla­kór, nett trix sem magnar upp hrúta­lykt í nokkrar sek­úndur. Í lag­inu Lista­sögu er ónefnd örugg­ari systir aum­ingja Þuríðar komin út á lífið, pælandi í strákum – „Er ég ást­fangin eða bara gröð“, spyr hún sig og hlust­and­inn sperrir eyrun, enda hefur dæg­ur­laga­söng­kona ekki játað á sig greddu fyrr á Íslandi (svo ég muni að minnsta kosti). Frakkt og fem­inískt.

Nokkur lög eru ekki jafn­mikið með báða fætur á jörð­inni, heldur í ein­hvers konar ævin­týra-nýbylgju-anda og þá jafnan hæg­ari og dreymn­ari. Af þessum eru hið seig­fljót­andi og dul­ar­fulla Silki­þræðir best, en Kóngur á þurru landi er líka flott og inni­heldur titil plöt­unnar, Ekki treysta fisk­unum. Ég veit ekk­ert hvað er verið að syngja um þar – alelda sækú?

Þegar þetta er skrifað er platan aðeins aðgengi­leg á streym­isveitum, en von­andi er von á vín­yl­plötu. Fyrri platan kom út á vínyl, svo það má gefa sér að þessi geri það líka. Ekki væri verra að það væri texta­blað svo þetta með alelda sækúna verði skýr­ara. Ekki treysta fisk­unum er lista­verk sem maður verður að geta hand­leikið. Mjög gott stöff.


Ólafur Kram - Ekki treysta fisk­unum
Útgef­andi: Fjár­hags­legt öryggi sf.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár