Illugi neitar að gefa upp hvort fyrirtæki hans fékk greiðslu frá Orku Energy

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra seg­ist hafa svarað öllu í Orku Energy mál­inu þrátt fyrir að hann hafi ekki svarað mörgum spurn­ingum fjöl­miðla um málið. Hann seg­ist per­sónu­lega ekki hafa fengið greitt meira frá Orku Energy en vill ekki ræða 1,2 millj­óna greiðsl­una til eign­ar­halds­fé­lags síns.

Segist hafa svarað öllu
Segist hafa svarað öllu Illugi segir að ekki sé neitt eftir til að svara eða opin­bera í Orku Energy-mál­inu. Samt hefur hann ekki svarað lyk­il­spurn­ingum í mál­inu. Mynd: Press Photos

Illugi Gunn­ars­son svarar ekki nánar um hags­muna­tengsl sín við Orku Energy. Hann seg­ist ekki hafa neitt meira til að upp­lýsa, en svarar ekki um greiðslu frá Orku Energy til einka­hluta­fé­lags síns.

Stundin hefur und­an­farið fjallað um hags­muna­tengsl Illuga við Orku Energy, en Illugi svarar ekki spurn­ingum Stund­ar­innar. Hann hefur hins vegar und­an­farið svarað öðrum fjöl­miðlum.

„Hvað OG Capital varðar, þá fékk ég engin laun eða arð frá því félagi, hvorki fyrr né síðar, sem áttu upp­runa sinn hjá Orku Energy,“ segir Illugi Gunn­ars­son í svari sínu til Íslands í dag sem Vísir birtir frétt um í dag. Með þessu svari bregst Illugi við frétt Stund­ar­innar frá því í fyrra­dag um að einka­hluta­fé­lag hans, OG Capital, hafi fengið greiddar 1,2 millj­ónir króna frá orku­fyr­ir­tæk­inu Orku Energy árið 2012. Illugi svarar því hins vegar ekki hvort OG Capital fékk þessa greiðslu frá fyr­ir­tæk­inu. Hann svarar aðeins því að hann per­sónu­lega hafi ekki fengið greidd laun út úr OG Capital sem komu Orku Energy. 

„Þetta eru einu tekj­urnar sem ég hef haft frá Orku Energy fyrr og síðar.“

Í frétt Stund­ar­innar í fyrra­dag kom heldur ekki fram að Illugi hefði tekið þessar 1,2 millj­ónir króna út úr fyr­ir­tæk­inu í formi launa. Þvert á móti sagði að pen­ing­arnir hafi orðið eftir inni í félag­inu. Með svörum sínum hefur Illugi því ekki ennþá svarað þeirri spurn­ingu hvort OG Capital fékk þessa 1,2 millj­óna króna greiðslu frá Orku Energy eða ekki. Hann neitar að svara þessu og kýs þess í stað bara að tala um eigin per­sónu­legu tekjur. „Ég hef birt og gert grein fyrir öllum upp­lýs­ingum er varða tekjur mínar vegna ráð­gjaf­ar­starfa fyrir Orku Energy. Eins og skatt­skýrslur mínar og eig­in­konu minnar frá árunum 2012 og 2013 sýna, er ein­ungis um eina launa­greiðslu að ræða frá Orku Energy[…] Þetta eru einu tekj­urnar sem ég hef haft frá Orku Energy fyrr og síðar.“

Aldrei kom fram að þessi greiðsla upp á 1,2 millj­ónir hefði runnið til Illuga sjálfs í formi launa. Þar af leið­andi segja þessi svör Illuga ekk­ert um efni frétt­ar­innar um 1,2 millj­óna greiðsl­una, alveg eins og opin­berun hans á eigin skatt­fram­tölum í fyrra­kvöld sagði ekk­ert um þessa frétt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Illugi Gunnarsson og Orka Energy

Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hlið­stæð spill­ing­ar­mál en bara ein athugun á mútu­broti

Mál utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunn­ars­sonar eru hlið­stæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af eink­að­ilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugð­ist við í til­felli Wallström en eng­inn eft­ir­lits­að­ili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli land­anna?
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir und­ir­menn sína sam­á­byrga

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra gerði und­ir­menn sína í mennta­mála­ráðu­neyt­inu sam­á­byrga við skipu­lagn­ingu á opin­berri heim­sókn til Kína þar sem Orka Energy var í við­skipta­sendi­nefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­is­ins vissu ekki um við­skipti Illuga og stjórn­ar­for­manns Orku Energy. Einn af und­ir­mönnum Illuga í ráðu­neyti er Ásta Magn­ús­dóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferð­ar­innar til Kína en ómögu­legt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurn­inga um ferð­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár