Hvítbók um fjármálakerfið kynnt í vikunni

Ákvarð­anir um hvort og hvernig hlutir rík­is­ins í Lands­bank­anum og Íslands­banka verði seldir munu verða teknar eftir umfjöllun Alþingis um hvít­bók um fjár­mála­kerfið. Sú hvít­bók verður kynnt í þess­ari viku.

Bjarni Benediktsson,fjármála- og efnahagsráðherra, skipaði starfshópinn sem vann hvítbók um fjármálakerfið í febrúar.
Bjarni Bene­dikts­son,fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skip­aði starfs­hóp­inn sem vann hvít­bók um fjár­mála­kerfið í febr­úar. Mynd: Bára Huld Beck

Skýrsla starfs­hóps sem vinnur að gerð hvít­bókar um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi er í loka­vinnslu. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið von­ast til þess að hægt verði að kynna efni hennar í þess­ari viku. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Í skip­un­ar­bréfi hóps­ins kom fram að hann ætti að skila skýrslu fyrir 15. maí síð­ast­lið­inn en þau skil töfð­ust umtals­vert. Kjarninn greindi frá því í byrjun sept­em­ber að starfs­hóp­ur­inn hefði ekki hafið störf fyrr en í febr­úar og því hafi ekki verið raun­hæft að skila skýrsl­unni um miðjan maí. Hópurinn óskaði eftir umsögnum margra aðila og hafi þær síð­ustu borist í júlí. Síðan hefur verið unnið úr þeim. Í sept­em­ber stóð til að skýrslan myndi verða opin­berum í nóv­em­ber en nú liggur fyrir að það verður, að öllum lík­indum, í fyrstu viku des­em­ber­mán­aðar.

[adspot]Lárus L. Blöndal hæsta­rétt­­ar­lög­­maður og stjórn­­­ar­­for­­maður Banka­­sýslu rík­­is­ins er for­­maður starfs­hóps­ins. Með honum í hópnum hafa verið Guð­rún Ögmunds­dótt­ir, for­­stöð­u­­maður lausa­­fjár­­á­hættu og fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja hjá Seðla­­banka Íslands, Guð­jón Rún­­­ar­s­­son, lög­­­maður og fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri Sam­­taka fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja, Kristrún Tinna Gunn­­ar­s­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Oli­ver Wyman í Sví­­þjóð og Sylvía K. Ólafs­dótt­ir, deild­­ar­­stjóri jarð­varma­­deildar á orku­sviði Lands­­virkj­un­­ar. Sylvía hætti þátt­töku í hópnum en við sæti hennar tók Arnór Sig­hvats­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri.

Verður stefnumótandi fyrir framtíð ríkisbankanna

Í yfir­­lýs­ingu frá fjár­­­mála­- og efna­hags­ráðu­­neyt­inu sem send var út í febr­úar síð­ast­liðnum kom fram að mark­miðið með vinnu hóps­ins sé að skapa traustan grund­­völl fyrir umræðu, stefn­u­­mörkun og ákvarð­ana­­töku um mál­efni er varða fjár­­­mála­­kerf­ið, fram­­tíð­­ar­­gerð þess og þró­un.

Kveðið var á um stofnun hóps­ins í stjórn­­­ar­sátt­­mála rík­­is­­stjórn­­­ar­innar þar sem lögð var áhersla á að stefn­u­­mark­andi ákvarð­­anir um fjár­­­mála­­kerfið verði teknar eftir umfjöllun Alþingis um fram­­tíð­­ar­­sýn fjár­­­mála­­kerf­is­ins á Íslandi sem byggi á þess­­ari hvít­­bók um efn­ið. Hvít­­bókin hafi að leið­­ar­­ljósi aukið traust á íslenskum fjár­­­mála­­mark­aði, aukið gagn­­sæi og fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika.

[adspot]Í sátt­­mál­­anum segir einnig að rík­­is­­stjórnin vilji vinna að frek­­ari skil­­virkni í fjár­­­mála­­kerf­inu, að dregið verði úr áhættu vegna óskyldra þátta í starf­­semi fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja og að sér­­stak­­lega verði litið til ann­­arra lít­illa opinna hag­­kerfa og reynslu ann­­ars staðar á Norð­­ur­lönd­unum við mótun fram­­tíð­­ar­­sýn­­ar­inn­­ar

Nið­ur­staða starfs­hóps­ins getur haft veru­leg áhrif á næstu skref í þróun íslensks fjár­mála­kerfis, enda á íslenska ríkið tvo af þremur stærstu bönkum lands­ins, Lands­bank­ann og Íslands­banka. Heimild hefur verið í fjár­lögum til að selja allt að 30 pró­sent í Lands­bank­anum og allt hlutafé í Íslands­banka. Ákvörðun um hvort og hvernig bank­arnir verða seldir verður tekin á grund­velli hvít­bók­ar­innar.

Ýmsir bíða því birt­ingu hennar með óþreyju, enda mik­ill áhugi víða að losa um eign­ar­hald rík­is­ins á bönk­unum. Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, sagði til að mynda í þætt­inum 21 á Hring­braut í síð­ustu viku að hún líti mjög til skrán­ingu Íslands­banka og Lands­bank­ans á markað sem lyk­il­þátta í því að tvö­falda mark­aðsvirði félaga sem skráð eru hér­lendis.

Mismunandi greiðslur

Í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, um ráð­gjöf og störf við tíma­bundin eða afmörkuð verk­efni, sem birt var í byrjun mán­aðar, kom fram að sund­ur­liðun varð­andi greiðslur til með­lima í starfs­hópnum sem vinna að hvít­bók­inni séu mjög mis­jafn­ar.

Sam­kvæmt svar­inu hafði Kristrún hefur fengið tæpar 9,2 millj­ónir og Lárus tæp­lega 7,5 millj­ón­ir. Guð­jón hafði fengið greiddar 2,8 millj­ónir og þær Guð­rún og Sylvía 1,3 millj­ónir hvor. Þá hafði fyr­ir­tækið STC fengið þrjár millj­ónir fyrir efn­is­vinnu við gerð hvít­bók­ar­innar og Arn­aldur Hjart­ar­son, sem skip­aður var hér­aðs­dóm­ari í febr­ú­ar, fengið greidda eina milljón króna.

Ó­líkar greiðslur milli þeirra sem vinna að hvít­bók­inni skýr­ast af mis­mun­andi vinnu­fram­lagi, sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár