WOW hagnaðist um 400 milljónir eftir skatta á fyrstu þremur mánuðum ársins

Skúli Mogensen er forstjóri, stofnandi og eigandi WOW air.
Skúli Mogensen er for­stjóri, stofn­andi og eig­andi WOW air. Mynd: Kjarninn.

Flug­fé­lagið WOW air hagn­að­ist um 400 millj­ónir króna eftir skatta á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2016. Tekjur félags­ins voru um fjórir millj­arðar króna á tíma­bil­inu, sem er aukn­ing upp á 141 pró­sent á milli ára. Tekjur þess á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2015 voru 1,7 millj­arðar króna. EBITDA-hagn­aður var 680 millj­ónir króna og jókst um einn millj­arð króna á milli ára. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá WOW air.

Þar segir einnig að flug­fé­lagið hafi flogið með 193 þús­und far­þega á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2016, sem er aukn­ing upp á 119 pró­sent milli ára. Sæta­nýt­ing var 88 pró­sent og fram­boðnum sæt­iskíló­metrum fjölg­aði um 164 pró­sent. Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, segir að félagið sé mjög ánægt með nið­ur­stöð­una. „Við höfum vaxið hratt og það er ánægju­legt að sjá hversu vel okkur hefur tek­ist að ná frá­bærri nýt­ingu yfir vetr­ar­mán­uð­ina þrátt fyrir meira en tvö­földun á fram­boði. Per­sónu­lega er ég fyrst og fremst þakk­látur fyrir hversu góðar mót­tökur við höfum fengið á Norður-Amer­íkuflugi okkar sem og hversu vel WOW teymið hefur haldið utan um þennan mikla vöxt með brosi á vör“ segir Skúli Mogensen for­stjóri og stofn­andi WOW air.“

Rekstr­ar­hagn­aður WOW air fyrir árið 2015 nam 1,5 millj­örðum króna. Það var umtals­verður við­snún­ingur frá árinu á undan þegar flug­fé­lagið tap­aði 700 millj­ónum króna. Tekjur árs­ins 2015 námu um 17 millj­örðum króna sem var 58 pró­sent aukn­ing miðað við árið 2014 þegar tekj­urnar voru 10,7 millj­arðar króna. Þá var EBITDA-hagn­aður 2,4 millj­arðar króna og jókst um 3 millj­arða á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár