„Sjálfstæðisflokkurinn kominn langt frá ábyrgum og skynsamlegum ríkisrekstri“

Þing­maður Við­reisnar spyr hvort þörf sé á öllum þeim 248 nýjum nefndum sem rík­is­stjórnin stofn­aði á síð­asta kjör­tíma­bili. Hún gagn­rýnir enn fremur fjölgun ráðu­neyta.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar segir að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi fallið á eigin prófi. Að baki fjölgun ráðu­neyta búi engin knýj­andi þörf – engin önnur þörf en sú að fjölga ráð­herrum svo valda­hlut­föllin milli stjórn­ar­flokk­anna hald­ist.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Benti hún á að Bjarni hefði þegar greint frá því að kostn­að­ur­inn við stofnun nýrra ráðu­neyta myndi hlaupa á hund­ruðum millj­óna króna og að þennan kostnað ætti að setja í sam­hengi við fjár­lögin í heild og öll þau verk­efni sem ríkið sinnir.

„Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra fellur þarna á eigin prófi. Hans verk­efni er að halda á veski skatt­greið­enda og fara skyn­sam­lega með fjár­muni almenn­ings. Að baki fjölgun ráðu­neyta býr auð­vitað engin knýj­andi þörf, engin önnur þörf en sú að fjölga ráð­herrum svo valda­hlut­föllin milli stjórn­ar­flokk­anna hald­ist.

Hundruð millj­óna króna-kap­all­inn er afleið­ing þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Framsókn, sam­þykktu að Vinstri græn héldu þremur ráð­herra­stólum þrátt fyrir mikið fylgis­tap og gjaldið fyrir það að lang­minnsti flokk­ur­inn fái samt að leiða rík­is­stjórn. Hérna þarf að segja hið aug­ljósa, sem er að fyrir þetta borga skatt­greið­endur. Almenn­ingur og fyr­ir­tækin í land­inu taka reikn­ing­inn og þessir fjár­munir fara ekki í önnur verk­efni,“ sagði Þorbjörg.

Tölvupósthólf þingmanna fyllast af bréfum frá fólki

Telur Þorbjörg að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé kom­inn langt frá ábyrgum og skyn­sam­legum rík­is­rekstri.

„Annað dæmi er það hvernig ráðu­neytin blása út og að á síð­asta kjör­tíma­bili stofn­aði þessi rík­is­stjórn 248 nýjar nefndir til við­bótar við allar þær sem þegar voru starf­andi. Var knýj­andi þörf á þeim öllum? Síðan eru dæmi um það þar sem þörfin er sann­ar­lega knýj­andi.

Tölvu­póst­hólf þing­manna eru að fyll­ast af bréfum frá fólki sem ekki sér fyrir sér að geta haldið jól. Rík­is­stjórnin virð­ist ekki ætla að veita öryrkjum sér­staka upp­bót fyrir jólin og bréfin end­ur­spegla sorg vegna þessa. Að sjá til þess að eng­inn líði sáran skort, það er verk­efnið sem rík­inu ber að sinna og það er sam­hengið sem fjár­mála­ráð­herra sjálfur lýsti eftir og það er dóm­ur­inn um for­gangs­röðun rík­is­stjórn­ar­innar,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár