Þarf íslenskt sjónvarp pólitíska vernd?

Stjórn­endur íslenskra ljós­vaka­miðla hafa áhyggjur af veru RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og gjör­breyttu lands­lagi fjöl­miðl­anna í harð­andi sam­keppni við erlendar efn­isveitur. Hvað er til ráða?

Nýlega sendu æðstu stjórn­endur fimm íslenskra fjöl­miðla, þ.á.m. for­stjórar 365 og Símans (sem rekur Skjáinn), frá sér grein þar sem kallað var eftir laga­breyt­ingum á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði, svo fjöl­miðl­arnir geti betur átt í sam­keppni við RÚV ann­ars vegar og erlenda keppi­nauta hins vegar. Lagðar eru fram til­lögur að breyt­ingum, meðal ann­ars að RÚV hverfi af aug­lýs­inga­mark­aði, fjöl­miðlar fái und­an­þágu frá virð­is­kauka­skatti og að erlendar efn­isveitur lúti sömu lögum og íslenskir fjöl­miðlar hvað varðar textun og tal­setn­ingu. Til að árétta kröfur um laga­breyt­ingar boð­uðu fjöl­miðl­arnir síðan sjö mín­útna langa stöðvun á útsend­ingum fimmtu­dag­inn 1. sept­em­ber.

Hægt er að skipta áhyggjum stjórn­end­anna í tvennt. Annars vegar veru RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og hins vegar gjör­breytt lands­lag fjöl­miðl­anna í harðn­andi sam­keppni við erlendar efn­isveitur um áskrift­ar­tekjur og sam­fé­lags­miðla um aug­lýs­inga­tekjur. Fyrr­nefnda málið er langt því frá nýtt af nál­inni og útlit er fyrir að þverpóli­tísk sam­staða sé um það. Hið síð­ar­nefnda, þ.e. inn­reið efn­isveita og sam­fé­lags­miðla, er síðan kjarni þess nýja veru­leika sem hefð­bundnir, línu­legir sjón­varps­miðlar starfa nú við. Og þótt Alþingi verði við kröfum fjöl­miðl­anna, með því að veita und­an­þágur frá skatti og almennt slaka á gerðum kröfum, þá er alls óvíst hvort núver­andi við­skipta­módel fjöl­miðl­anna eigi sér fram­tíð.

Breyttur heimur

Sjón­ar­horn stjórn­end­anna er auð­skilj­an­legt, að minnsta kosti hvað varðar for­stjóra 365 og Símans. Netflix, Hulu og aðrar streym­isveitur hafa haft gríð­ar­leg áhrif á rekstr­ar­grund­völl hefð­bund­inna sjón­varps­stöðva. Það þarf ekki að eyða mörgum orðum í það hvernig erlendu efn­isveit­urnar eiga í beinni sam­keppni við sjón­varps­stöðvar, inn­lendar sem erlendar. Efn­isveit­urnar bjóða upp á sömu þjón­ustu (sjón­varps­gláp) á þægi­legri og ódýr­ari hátt. Og þrátt fyrir að vera ekki opið íslend­ingum með beinum hætti fyrr en í jan­úar 2016, þá nýttu þús­undir íslenskra heim­ila sér Netflix langt fyrir þann tíma með ein­földum króka­leiðum. Í febr­úar 2014 voru um 16,7% heim­ila lands­ins með aðgang að Netflix, sam­kvæmt könnun MMR. Þegar MRR kann­aði vin­sæld­irnar að nýju í febr­úar 2016, skömmu eftir að opnað var fyrir aðgang á Íslandi, þá var hlut­fallið tvö­falt hærra eða 33,2%.

Sam­keppnin hefur síðan harðnað á allra síð­ustu árum, en eitt helsta útspil Netflix er fram­leiðsla á eigin efni. Tíma­ritið The Economist fjall­aði nýverið um stöðu Netflix og benti á að fyr­ir­tækið eyðir sex millj­örðum doll­ara í efn­is­fram­leiðslu- og kaup á þessu ári, sam­an­borið við 2 millj­arða hjá sjón­varps­ris­anum HBO, sem lengi hefur sett við­miðið í sjón­varps­fram­leiðslu gæða­efnis eins og The Wire og Game of Thrones. Það er eflaust ljúfsárt fyrir íslensku stöðv­arnar að sýna vin­sælar sjón­varps­s­er­íur á borð við Orange is The New Black og The Peaky Blinders – fram­leiddar af efn­isveit­unni Netflix sem ógnar rekstr­ar­grund­velli þess­ara sömu miðla.

Sportið og innlent efni til bjargar?

Aukið val neyt­enda er að öllu leyti jákvætt fyrir þá, og ljóst að margir velja erlendu efn­isveit­urnar fram yfir áskrift að stöðvum 365 eða Símans. En það má ekki skilja sem svo að sjón­varps­stöðvar eigi sér enga von.

Í fyrsta lagi hefur sjón­varp­s­væð­ing inter­nets­ins, enn sem komið er, ekki boðið upp á betri leiðir til að horfa á íþróttir en hefð­bundnar sjón­varps­stöðvar. Blaða­mað­ur­inn Ben Thompson, sem heldur úti síð­unni Stratechery um við­skiptaum­hverfi tækni­fyr­ir­tækja, telur íþróttir vera það besta sem stöðv­arnar hafa fram yfir net­fyr­ir­tæki. Þótt blikur séu á lofti, m.a. dvín­andi áhorf á Ólymp­íu­leik­ana í línu­legri dag­skrá og áhugi Twitter á að sýna leiki NFL deild­ar­innar, þá vilja fyr­ir­tæki enn ólm aug­lýsa í kringum íþrótta­við­burði og neyt­endur eru til­búnir að greiða fyrir áhorfið.

Í öðru lagi verður inn­lend dag­skrár­gerð áfram sterk og sér­stæð sölu­vara fyrir hefð­bundnu stöðv­arnar. Það vita íslensku stöðv­arnar vel og hafa lagt mikið fé í inn­lenda dag­skrár­gerð á síð­ustu árum. Þó er vert að hafa í huga að þessi sér­staða er ekki sjálf­sögð, eins og fjár­mögnun Netflix á heim­ild­ar­þáttum um Guð­mundar- og Geir­finns­málið sýnir.

Í þriðja lagi hafa sjón­varps­stöðv­arnar reynt að bjóða upp á sam­bæri­lega þjón­ustu og efn­isveit­urnar gera. Að áskrif­endur geti horft á efnið hvenær sem er auk þess sem boðið er upp á kvik­myndir og eldri þætti sem ekki eru lengur í sýn­ingu frá einni viku til ann­arar. Þar feta íslensku stöðv­arnar nú í sömu spor og erlendar stöðvar, t.d. HBO sem hefur á allra síð­ustu árum stór­aukið aðgengi og úrval í gegnum eigin efn­isveitu.

Í könnun MMR síðan í febrúar á þessu ári kemur fram að um þriðjungur íslenskra heimila hefur aðgang að Netflix. Vinsældirnar höfðu tvöfaldast á tveimur árum. Það er bara ein þeirra efnisveita sem í boði.
Í könnun MMR síðan í febr­úar á þessu ári kemur fram að um þriðj­ungur íslenskra heim­ila hefur aðgang að Netflix. Vin­sæld­irnar höfðu tvö­fald­ast á tveimur árum. Það er bara ein þeirra efn­isveita sem í boði.

Í fjórða og síð­asta lagi má benda á sam­þætt­ingu fjar­skipta­þjón­ustu og fjöl­miðla­þjón­ustu. Fjar­skipta­geir­inn er arð­bær og stöndug fjar­skipta­fyr­ir­tæki hafa ekki barist við sterka nýliða í sama mæli og þekk­ist t.d. í hót­el­brans­anum, leigu­bíla­geir­anum, og fjöl­miðlum. Við­skipta­mód­elið þar sem fjar­skiptum og fjöl­miðlun er tvinnað saman er vel þekkt, enda eiga þjón­ust­urnar að mörgu leyti vel við hvor aðra. Þetta hefur Síminn lengi gert, og skerpti á með fullri sam­ein­ingu við Skjáinn á síð­asta ári. 365 hefur í um tvö ár boðið upp á fjar­skipta­þjón­ustu, þ.e. inter­net og síma, eftir yfir­töku á rekstri Tals fjar­skipta­fyr­ir­tækis. Í gær dró síðan til tíð­inda, þegar Vodafone til­kynnti að við­ræður standi yfir um kaup á stórum hluta fjöl­miðla 365. Það er engin til­viljun að við­ræð­urnar eigi sér stað á sama tíma og fjöl­miðla­heim­ur­inn gengur í gegnum örar breyt­ingar.

Viðskiptamódelið mikilvægara en regluverkið

Þótt íslensku fjöl­miðl­arnir boði sjö mín­útna svart­nætti á fimmtu­dag, þá er tónn­inn í bar­áttu þeirra nokkuð mýrki en áður. Hið minnsta tala þeir ekki gegn því að Netflix og aðrar efn­isveitur fái að starfa á Íslandi, enda væri það að berja höfð­inu við stein­inn (þó reyndar megi færa rök fyrir því að íslenskir rétt­hafar hafi lengi gert nákvæm­lega það). Netflix er komið til Íslands, og jafn­vel þótt úrvalið sé ekki nema um 20% af því sem sést í Banda­ríkj­unum þá er það meira en stöðv­arnar bjóða upp á.

Það er ekki alveg ljóst hvernig Útvarp Saga leikur hlut­verk í þessu öllu saman, en fyrir 365 og Símann þá er umhverfi þeirra orðið alþjóð­legt, eins og fyr­ir­tækin sjálf benda á. Það er sjálf­sagt að bæta lagaum­hverfið þannig að þau verði sam­keppn­is­hæf­ari, en það má alls ekki fela í sér vernd af neinu tagi, t.d. auknar kvaðir á erlendar efn­isveitur um textun og tal­setn­ingu efnis eða skatt­lagn­ingu. Þá minnkar sam­keppnin og neyt­and­inn tapar.

Í þessu sam­hengi sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að það yrði á skjön við hans stefnu ef einni atvinnu­grein yrði veitt und­an­þága frá greiðslu virð­is­auka­skatts, eins og stjórn­endur vilja. „En menn verða þá bara að skoða rökin ef til þess kæmi. Ég er ekk­ert búinn að kom­ast að nið­ur­stöðu, ég er bara að segja að það er ósann­gjarnt ef aðrir geta komið hingað án þess að greiða sam­bæri­lega skatta þar sem þeir starfa, veita þjón­ust­una og er lausir undan skatt­skyldu. Það bara gengur ekki upp,“ sagði Bjarni í við­tali hjá Þorbirni Þórð­ar­syni, frétta­manni 365.

Breytt sam­keppn­is­staða íslensku fjöl­miðl­anna felst að hluta til í ójafn­væg­inu hvað varðar skatt­lagn­ingu, þar sem erlendu efn­isveit­urnar greiða ekki skatta hér­lendis. En að langstærstum hluta felst breytt sam­keppn­is­staða íslensku miðl­anna í tækni­breyt­ing­unum sem orðið hafa, og auknu vali neyt­enda. Sterkasti leikur 365 og Símans felst í sömu meg­in­þáttum og fyrr: Sam­keppn­is­hæfum verðum og þjón­ustu. Sam­keppni er góð. Margt bendir til að aukin sam­keppni erlendis frá hafi bætt íslenska fjöl­miðla og þá þjón­ustu sem þeir veita. Það sést meðal ann­ars á auknu aðgengi að eldra efni og bættu við­móti efn­isveita þeirra. Stöðv­arnar hafa, a.m.k. enn sem komið er, ýmsa styrk­leika umfram erlendu efn­isveit­urnar og geta bætt eigin efn­isveitur marg­falt. Þegar öllu er á botn­inn hvolft skiptir við­skipta­mód­elið meira málið en reglu­verkið.

Uppfært: Vert er að taka fram að Síminn breytti við­skipta­mód­eli sínu í októ­ber 2015 og varð að efn­isveitu, fremur en sjón­varps­stöð. Línu­legri dag­skrá á Sjón­varpi Símans er haldið úti í opinni dag­skrá en efn­isveitan er aðgengi­leg gegn áskrift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár