Vodafone í viðræðum um kaup á hluta eigna 365 miðla á átta milljarða

Fjar­skipti hf., móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, og 365 miðlar hf. hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um einka­við­ræður og helstu for­sendur og skil­mála kaup­samn­ings varð­andi mögu­leg kaup á eignum og rekstri ljós­vaka­miðla og fjar­skipta­þjón­ustu 365 miðla hf. Kaup­verðið er áætlað 3,4 millj­arðar króna, greitt með 1,7 millj­arði króna í reiðufé og útgáfu hlut­bréfa í Fjar­skiptum ehf. Auk þess mun félagið yfir­taka 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum 365 miðla, verði af kaup­unum. Heild­ar­kaup­verðið er því átta millj­arðar króna.

Kaupin eru háð ýmsum for­sendum og fyr­ir­vörum. Meðal ann­ars eru for­sendur um kaup­verð grund­vall­aðar á upp­lýs­ingum selj­anda og þeim for­sendum að rekstr­ar­hagn­aður hins keypta fyrir fjár­magnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA), að við­bættum sam­legð­ar­á­hrifum, geti numið allt að 2 millj­örðum króna á árs­grund­velli.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Vodafone, sem skráð er í Kauphöll Íslands. Þar segir „Eignir 365 miðla hf. sem und­an­skildar eru í við­skipt­unum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu eru Frétta­blaðið og visir.is. 365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri frétta­stofu og verður samið um miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.“

Stefán Sig­urðs­son, for­stjóri Vodafone, segir að of snemmt sé að segja til um hver end­an­leg nið­ur­staða í við­ræð­unum verði. „Við munum nýta næstu mán­uði vel til þess að kanna hvort for­sendur kaupanna stand­ist."

Undir ljós­vaka­miðla 365 miðla hf. falla bæði sjón­varps- og útvarps­rekstur félags­ins. Helstu sjón­varps­stöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin og á útvarps­svið­inu eru það meðal ann­ars Bylgjan, FM957 og X-ið. Á fjar­skipta­mark­aði hafa 365 miðlar 3,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði og 12,6 pró­sent á inter­net­mark­aði sam­kvæmt nýj­ustu töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar.

Í til­kynn­ing­unni frá Vodafone segir að þar sem aðilar eru sam­keppn­is­að­ilar á mark­aði hafi kaup­andi enn sem komið er haft aðgang að tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum um hið selda. „Sam­komu­lag þetta er því háð ýmsum for­sendum og skil­yrðum, þar á meðal að met­inn rekstr­ar­hagn­aður og horfur í rekstri byggi á for­sendum sem eru ásætt­an­legar að mati kaup­anda eftir fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­unar, auk sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og eftir atvikum ann­arra eft­ir­lits­að­ila. Nánar verður gert grein fyrir við­skipt­unum ef end­an­legur kaup­samn­ingur kemst á eða ef við­ræður aðila falla niður. Gangi við­skiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði end­an­lega frá kaup­unum á fyrri hluta árs­ins 2017.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár