365 kannar réttarstöðu sína gagnvart Netflix

365 er nú að láta kanna rétt­ar­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart Netflix. Dag­skrár­stjóri vísar í íslensk lög sem efn­isveitan þarf ekki að fara eftir. House of Cards verður áfram sýnt á RÚV og verður ekki aðgengi­legt á íslenska Netflix.

Lög­fræð­ingar 365 kanna nú rétt­ar­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart erlendu efn­isveit­unni Netflix. Jón Gnarr, dag­skrár­stjóri 365, segir umhugs­un­ar­vert að íslensk fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, sem séu bundin íslenskum fjöl­miðla­lögum, séu í sam­keppni við erlend fyr­ir­tæki sem þurfa ekki að lúta sömu lög­málum.

„Fjöl­miðla­lög á Íslandi setja okkur skorður,” segir Jón. „Við erum í sam­keppni við aðila sem eru ekki bundnir af fjöl­miðla­lögum, eins og Netflix, sem eru skráðir í Lux­emburg, og það er margt óljóst í þeim efnum. Við erum að skoða heild­ræna stöðu okkar gagn­vart þeim.”

Jón tekur dæmi varð­andi textun á efni.

„Við erum til dæmis skuld­bundin til að texta allt efni sem frá okkur kemur,” segir hann. „Lög­fræð­ingar okkar eru að skoða rétt­ar­stöð­una til að fá þetta allt saman á hreint.”

Engar drastískar breytingar á dagskrá

Netflix-þátta­röðin Orange is the New Black hefur verið sýnd á Stöð 2 und­an­farin ár og seg­ist Jón ekki eiga von á að drastískar breyt­ingar verði gerðar á efn­isvali Stöðvar 2 með til­komu Netflix .

„En í fram­tíð­inni munum við kannski taka til­lit til þess til að vera ekki að sýna sama efnið og aðrir eru að sýna,” segir hann. Ekki liggi fyrir hvort þátt­ur­inn verði sýndur á íslenska Netflix, en mun minna efn­is­val verður í boði þar heldur en í því amer­íska.

House of Cards á RÚV en ekki á Netflix

Fleiri þáttarraðir sem Netflix hefur sýnt hafa verið til sýn­inga hér á landi, eins og hin sívin­sæla House of Cards sem sýnd hefur verið á RÚV. Netflix hefur ekki sýn­ing­ar­rétt á House of Cards á Íslandi og verða þætt­irnir ekki aðgengi­legir á íslensku útgáf­unni. RÚV hefur sýnt allar þrjár þátt­arað­irnar og verður eins með þá fjórðu, að sögn Skarp­héð­ins Guð­munds­sonar, dag­skrár­stjóra RÚV.

RÚV verður með einka­rétt á sýn­ingu þáttarað­anna þar til hætt verður að fram­leiða þá. Samn­ingar sem gerðir eru ná yfir­leitt yfir allar ser­íur sem eru fram­leiddar af við­kom­andi þátta­röðum, það er að segja stöðin sem kaupir rétt­inn hefur hann fastan í hendi á meðan þætt­irnir eru fram­leiddir. Af því leiðir að Netflix getur ekki boðið upp á House of Cards hér á landi.

„House of Cards var ekki fram­leitt fyrir Netflix á sínum tíma, heldur fram­leiddi Sony þætt­ina og seldi Netflix sýn­ing­ar­rétt­inn í öllum þeim löndum Netflix þegar fyrsta ser­ían fór í loftið,” útskýrir Skarp­héð­inn. „Ísland var þá eitt Norð­ur­land­anna án Netflix og því stóð sjón­varps­stöðvum hér til boða að kaupa þætt­ina, sem RÚV gerði.”

Skarp­héð­inn segir það velta á Netflix hvort þeir muni sjá sér hag í því að kaupa aftur rétt­inn á ser­í­unum sem nú þegar eru lausar, það er fyrsta og önnur sería, en það liggur enn ekki fyrir.

Sýningar á fjórðu þátt­ar­röð­inni af House of Cards hefj­ast á RÚV mánu­dag­inn 7. mars og fer inn á banda­ríska Netflix 4. mars. RÚV hefur ekki rétt á að setja alla þætt­ina inn í einu og mun því sýna þá viku­lega og verða þeir aðgengi­legir í Sarpi og VOD.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár