Ljósvakamiðlar slökkva á útsendingum í sjö mínútur

Síminn er einn þeirra miðla sem tekur þátt.
Síminn er einn þeirra miðla sem tekur þátt. Mynd: Nasdaq Iceland

Einka­reknir ljós­vaka­miðlar á Íslandi ætla að stöðva útsend­ingar sínar í sjö mín­útur á fimmtu­dag­inn, 1. sept­em­ber, til að árétta ákall sitt um að fjöl­miðla­lögum á Íslandi verði breytt til að jafna sam­keppn­is­stöðu þeirra. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjöl­miðlum Útvarps Sögu, Símans, ÍNN, 365 og Hring­brautar.

Fjöl­miðl­arnir segj­ast fagna jákvæðum við­brögðum þing­manna þvert á flokka við ákalli þeirra um breyt­ingar á fjöl­miðla­lögum, en til árétt­ingar um mik­il­vægi máls­ins muni einka­reknir ljós­vaka­miðlar slökkva á útsend­ingum sínum í sjö mín­útur á fimmtu­dags­kvöld.

„Afar mik­il­vægt er að einka­reknir fjöl­miðlar sitji við sama borð og erlendir keppi­nautar sem nú herja bæði á áskriftar- og aug­lýs­inga­markað á sama tíma og þeir greiða hér hvorki skatta né gjöld. Þessir miðlar lúta ekki íþyngj­andi reglum um með­höndlun efnis sem inn­lendir fjöl­miðlar reglum gera. Einka­reknir miðlar treysta á tekjur af aug­lýs­inga­sölu til að standa undir starf­sem­inni og því væri öllum til hags­bóta væru opin­berir fjöl­miðlar ekki á þeim mark­aði,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Engar útsend­ingar verða á Útvarpi Sögu, ÍNN, Stöð 2, Stöð 3, Bíórásinni, Bylgj­unni, Létt­bylgj­unni, Gull­bylgj­unni, FM Extra, FMX 80's Bylgj­unni, FM957, X-inu, Sjón­varpi Símans, K100, Retro, Sjón­varpi Hring­brautar og Útvarpi Hring­brautar. Hvatt er til þess í yfir­lýs­ingu fjöl­milð­alnna að aðrir einka­reknir fjöl­miðlar taki þátt í þessum aðgerðum klukkan 21 á fimmtu­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár