Netflix stærsti fjárfestirinn í heimildarmynd um Guðmundar- og Geirfinnsmálið

Efn­isveitan Netflix er stærsti ein­staki fjár­mögn­ung­ar­að­ili heim­ild­ar­myndar um Guð­mundar- og Geir­finns­málið sem Sagafilm vinnur nú að og til stendur að frum­sýna á fyrstu mán­uðum næsta árs. Myndin er sú fyrsta sem Netflix fjár­festir í á fram­leiðslu­stigi hér­lendis en heild­ar­kostn­aður við mynd­ina nemur um 100 millj­ónum króna. Auk Sagafilm og Netflix koma BBC og RÚV að verk­efn­inu, en myndin mun heita „Out of Thin Air“ og mun Ólafur Arnalds semja tón­list­ina í henni. Alls munu um 20 manns koma að gerð verk­efn­is­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Netflix hefur verið að færa sig hratt upp á skaftið sem fram­leið­andi myndefnis, bæði leik­ins og heim­ild­ar­mynda. Ein vin­sælasta heim­ild­ar­mynda­þátta­röð sem efn­isveitan hefur fram­leitt er Making A Murderer, sem fjallar um mann að nafni Steven Avery og ungan frænda hans sem dæmdir voru fyrir morð en halda stað­fast­lega fram sak­leysi sínu og berj­ast fyrir því að fá sak­fell­ingu sinni hnekkt. Íslenska myndin mun verða svipað upp­byggð og þeir hættir í þeim skiln­ingi að hún byggir að mestu á gömlu myndefni og við­tölum við þá sem tengj­ast mál­inu eða þekkja það vel.

Í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­unum voru sex ung­menni dæmd til þungrar fang­els­is­vistar fyrir að hafa orðið tveimur mönnum að bana. Lík mann­anna hafa aldrei fund­ist og byggð­ist dóm­ur­inn því á öðrum sönn­un­ar­gögnum, meðal ann­ars játn­ingum sem síðar voru dregnar til baka og haldið var fram að hefðu verið fengnar fram með pynt­ingum, meðal ann­ars með því að láta hina grun­uðu sitja í ein­angr­un­ar­vist í óhof­lega langan tima. Sex­menn­ing­arnir voru öll dæmd í Hæsta­rétti árið 1980. Sævar Ciesielski var dæmdur í sautján ára fang­elsi og Krist­ján Viðar Við­ars­son í sextán ára, Tryggvi Rúnar Leifsson var dæmdur í þrettán ára fang­elsi og Guð­jón Skarp­héð­ins­son í tíu ára fang­elsi. Erla Bolla­dóttir var dæmd í þriggja ára fang­elsi og Albert Klahn Skafta­son í árs fang­elsi.

End­ur­upp­töku­nefnd mælti í fyrra með því að mál Sæv­ars Ciesi­elskis, Tryggva Rún­ars Leifs­son­ar, Alberts Klahns Skafta­sonar og Guð­jóns Skarp­héð­ins­sonar verði tekin upp á nýjan leik. Hún mælti hvorki með né gegn því að taka upp mál Erlu Bolla­dóttur aftur og Krist­ján Viðar Við­ars­son fór ekki fram á end­ur­upp­töku máls síns. Búist er við nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar í haust og von­ast heim­ild­ar­gerð­ar­menn­irnir eftir því að hún liggi fyrir áður en að vinnslu við gerð mynd­ar­innar ljúki.

Vend­ingar urðu í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu um miðjan júní síð­ast­lið­inn þegar tveir menn voru hand­teknir og færðir til skýrslu­töku vegna þess. Þeim var sleppt að lok­inni yfir­heyrslu en nýr vitn­is­burður liggur nú fyrir í mál­inu. Báðir menn­irnir hafa komið við sögu lög­reglu áður og afplánað refs­ing­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár