Yfir 100 þúsund manns vilja náða Steven Avery

Yfir hund­rað þús­und manns hafa skrifað undir und­ir­skrift­ar­lista á síð­unni Change.org sem fer fram á að Steven Avery, umfjöll­un­ar­efni heim­ild­ar­mynda­þáttar­að­ar­innar Making a Murderer sem nýverið var sett í sýn­ingar á Netflix, og frændi hans Brendan Dassy verði náð­aðir af for­seta Banda­ríkj­anna. Auk þess hafa hátt í 20 þús­und manns skrifað undir form­lega beiðni til Hvíta húss­ins þar sem farið er fram á hið sama. Ef sú und­ir­skrift­ar­söfnun nær 100 þús­und und­ir­skriftum fyrir 16. jan­úar þá verður Hvíta húsið að svara henni opin­ber­lega. Frá þessu er greint á síðu Time.

Í þátt­unum, sem hafa vakið gríð­ar­lega athygli, er saga Steven Avery frá Manitowoc Country í Wisconsin-ríki sem var dæmdur í fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot árið 1985. Hann sat inni í 18 ár en var sleppt árið 2003 eftir að DNA-sýni sýndi fram á sak­leysi hans. Avery fór í kjöl­farið í mál við sýsl­una þar sem hann var dæmdur og krafð­ist 36 milljón dala í miska­bætur.

Í nóv­em­ber 2005 var hann síðan ákærður fyrir morð og hefur setið inni síðan. Making a Murderer-þætt­irnir rekja sögu hans, og frænda hans Brendan Dassy sem einnig situr inni fyrir aðild að morð­inu, frá 1985 og fram til dags­ins í dag.

Í fótspor Serial

Þátt­araðir sem fjalla um raun­veru­leg glæpa­mál hafa náð miklum vin­sældum und­an­farin miss­eri. Braut­ryðj­andi í þeim efnum var hlað­varpið Serial, sem sett var í loftið í októ­ber 2014. Það fjall­aði um mál Adnan Syed, sem var ákærður og dæmdur fyrir morð á 18 ára fyrrum kær­ustu sinni sem framið var árið 1999.

Þætt­irnir nutu for­dæma­lausra vin­sælda. Í febr­úar 2015 var búið að hlaða þeim niður 68 milljón sinnum. Þeir fengu Peabody verð­launin fyrir besta hlað­varp árs­ins í apríl síð­ast­liðnum. Önnur þátta­röð Serial fór í loftið í des­em­ber 2015 en þar umfjöll­un­ar­efnið annað.

Ljóst er að vin­sældir þátt­anna hafa haft mikil áhrif. Í nóv­em­ber heim­il­aði dóm­ari að lög­menn Syed myndu fá að leggja fram ný gögn í mál­inu sem mögu­lega sýna fram á sak­leysi hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár