Einn sjúklingur á gjörgæslu og í öndunarvél

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir upp­lýsti um það á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að einn sjúk­lingur liggur nú á gjör­gæslu vegna COVID-19. Hann er á fer­tugs­aldri og í önd­un­ar­vél.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Í gær greindust sautján ný inn­an­lands­smit hér á landi. Í heild eru 109 með virk smit. Rað­grein­ingar sýna að um sömu gerð veiru er að ræða og teng­ist öðru hópsmit­inu sem fjallað hefur verið um síð­ustu daga. „Við erum ekki að sjá fleiri gerðir af veirunni. Og þessi gerð hefur greini­lega dreift sér víða um sam­fé­lagið,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag.

Smit hafa greinst í öllum lands­hlutum. Á Land­spít­al­anum liggur einn ein­stak­lingur með COVID-19. Sá er á fer­tugs­aldri. Hann er alvar­lega veikur, er á gjör­gæslu­deild og í önd­un­ar­vél. Til skoð­unar er að leggja fleiri sjúk­linga inn.

Þórólfur sagði snarpa fjölgun til­fella í gær aug­ljós­lega áhyggju­efni. „Þessi far­aldur sem nú er í gangi er í ein­hverjum vexti.“ Sagði hann greini­legt að til­fellum væri að fjölga og að þau væru að grein­ast á víð og dreif um landið. Sex ein­stak­lingar sem voru í Vest­manna­eyjum um versl­un­ar­manna­helg­ina hafa greinst með sjúk­dóm­inn og sagði Þórólfur lík­legt að þeim ætti eftir að fjölga. „Þetta sýnir þessa áhættu sem við höfum verið að tala um þegar fólk safn­ast saman.“

Ekki sér fyrir end­ann á þeirri ein­stöku hóp­sýk­ingu. Fjöl­margir hafa þurft að fara í sótt­kví vegna hennar. Íslensk erfða­grein­ing er að hefja skimun í Eyjum.

[links]„Við erum líka að sjá aukn­ingu á veik­indum,“ sagði Þórólfur. „Við höfum verið að ræða hvort að þessi veira sé að veikj­ast – en ég held að það séu ekki merki um það. Við erum núna að fara að sjá alvar­leg veik­indi eins og við gerðum síð­asta vetur.“ Sagðist hann hafa spurst fyrir erlendis og að eng­inn teldi að þessi veira væri eitt­hvað veik­ari núna en áður. Það hafi því verið „veik von“ að veiran væri að veikj­ast.

Þórólfur sagði að þessi reynsla sýni að við þurfum að skerpa á smit­vörnum og virða 2 metra regl­una. „Það eru van­höld á því að menn hafi farið eftir því til fulls“.

Hann sagði ljóst að núna væri far­ald­ur­inn í vexti. „Því er það til alvar­legrar skoð­unar af minni hálfu að herða sam­komu­tak­mark­anir frá því sem nú er. Ef að það verður gert munu þær tak­mark­anir standa skemur en fyrri tak­mark­anir – þó að það sé alls ekki hægt að full­yrða neitt um það.“

Það mik­il­væg­asta sem við getum gert núna, að sögn Þórólfs, er að standa saman og reyna að bæta okkur og fara eftir þeim reglum sem eru í gangi. Virða þarf 100 metra fjölda­tak­mörk, 2 metra regl­una og sér­stak­lega minnti hann á að ef fólk finnur fyrir ein­kennum á það að halda sig til hlés. „Því miður höfum við alltof mörg dæmi um að fólk sé ekki að fara eftir þessu og skilja eftir sig tölu­verða slóð.“

Þórólfur sagði ákveðin von­brigði að standa í þessu sporum í dag. „En horfum til reynsl­unnar – í vetur voru aðgerðir árang­urs­ríkar. Engin ástæða til að halda annað en að við getum náð böndum á þennan far­aldur.

Ég hef fulla trú á því að okkur muni takast það ef við stöndum saman og förum eftir reglum og allir þekkja en virð­ist vera dálítið erfitt að fara eftir.“

Hann sagði bar­átt­una verða öðru­vísi nú en í vetur. Hún verði jafn­vel lengri. Ein teg­und veirunnar sé að breiða úr sér víða. Þá séu margir þeirra sem greinst hafa núna mjög smit­andi. Næstu dagar munu skera úr um það hvort að færa þurfi fjölda­tak­mark­anir aftur niður í 50 eða 20. Það myndi hafa gríð­ar­leg áhrif á marga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár